Þú sendir okkur línu með því að smella HÉR
Til að fræðast örlítið um sögu Samúels smellir þú HÉR
Hér getur að líta þá sem þegar eru farnir að leggja Samúel lið á netinu. Enn fleiri eru í startholunum. Síðan eru það vitaskuld allir Samstarfsmennirnir frá aldarfjórð- ungnum sem Samúel kom út óslitið. Við eigum eftir að líta á þeirra verk líka og fá þá til að rifja upp með okkur söguna.
Hér á þessari síðu erum við sem sé að kynna sérstaklega þá sem eru að koma nýir til sögunnar. Efst til hægri er forsprakkinn sjálfur, Steindór Þórarinsson, sem átti frumkvæðið að því að Samúel væri komið á netið. Síðan Steindór lærði margmiðlun um aldamótin hefur hann gengið með þann draum í maganum að næra nostalgíuna með því að koma Samúel á veraldarvefinn. Starf hans fyrir Netmiðla og Hýsi hafa síður en svo orðið til að draga úr þeim áhuga hans, en þar er Steindór sölu- og markaðsstjóri.
LÍKAMI OG SÁL Í GÓÐUM HÖNDUM GILLZENEGGERS
Egill Gillz Einarsson eða Gillzenegger, eins og hann er jafnan kallaður, mun svara fyrirspurnum frá lesendum. Það mun gerir hann með sama hætti og hann er landsþekktur fyrir af netinu en hann er e nginn nýgræðingur á netmiðlunum. Enda höfðum við ekki fyrr kynnt lesendaþjónustu Gillzeneggers hér á samuel.is en honum bárust fyrstu bréfin. Hann er að sjálfsögðu þegar farinn að svara. Gillz hefur, sem kunnugt er, starfað sem einkaþjálfari um all nokkurt skeið og ber ábyrgð á flottu lúkki myndarlegra karlmanna út um allar trissur, en einkaþjálfun stráksins er ekki einskorðuð við líkamsræktarsalina þar eð hann hefur komið sér upp fjarþjálfun á netinu sem náði þegar í stað miklum vinsældum. Góður!
TOPPMAÐUR Í SKRIFUM UM TÓNLIST OG TÖLVUR
Franz Gunnarsson skrifar um tónlist og tölvuleiki fyrir Samúel. Fyrstu skrif hans birtust í Undirtónum en síðar átti hann eftir að skrifa fyrir Sánd, Fréttablaðið, Tölvuheim, Dagskrá Vikunnar og Morgunbla eth;ið. Um tíma stýrði hann vefsíðu um tækni og tölvuleiki á visir.is. Hann starfaði á XFM 91,9 sem markaðsfulltrúi og þáttastjórnandi. Síðar var hann ráðinn til að reka útvarpsstöðina Reykjavík FM 101,5.
Franz er tónlistarmaður og á þeim vettvangi hefur hann spilað með Bubba Morthens, Quarashi, Bang Gang, Mugison, Ensími og Sverri Bergmann. Nú um stundir spilar hann aðallega með Dr. Spock. Þess má svo geta að Franz rekur, ásamt nokkrum félögum sínum, viðburðafyrirtækið Icelandic Music Factory og veitingastaðinn Dillon. Er nokkur furða þó Samúel hafi sóst eftir samstarfi við Franz?
LJÓSMYNDIR HAFA ÆTÍÐ SKIPAÐ VEGLEGAN SESS Í SAMÚEL
Rétt eins og þegar Samúel kom út sem prentmiðill munu ljósmyndir vera í öndvegi á samuel.is. Ein fyrsta ákvörðun ritstjórans var því sú, að velja Súperljósmyndara vikunnar hverju sinni og birta nýjar myndir eftir viðkomandi á hverjum degi í heila viku. Sá fyrsti sem við gerum þannig skil er Marinó Thorlacius. Við valið eru Samúel einkum til trausts og halds þeir Árni Torfason, ljósmyndari og formaður Blaðaljósmyndara- félags Íslands, og Ari Sigvaldason, sem rekur ljósmynda- verslunina Fótógrafí. Ari og Árni eru afar færlr ljósmyndarar og hafa báðir setið í mörgum dómnefndum þegar ljósmyndarar hafa leitt saman myndir sínar.
ÚTLENDINGAHERDEILDIN
Þá er að nefna tii sögunnar þá Lárus Óskarsson og Mattías Árna Ingimarsson. Sá fyrrnefndi var að hefja annan veturinn við ljósmyndanám á Miami, Flórída. Hinn síðarnefndi lauk ljósmyndanámi í sumar frá Los Angeles í Kalíforníu og er nú á flakki um Asíu og Evrópu, en hyggst að því búnu búa um stund í Danmörku. Báðir hafa þeir heitið Samúel myndskreyttum frásögnum að utan og er þess ekki langt að bíða að fyrstu færslur þeirra birtist hér á vefsíðunni. En áður munum við birta viðtöl við þá félagana um dvölina vestan hafs.
Þar sem Matthías acute;rni hefur yfirgefið Los Angeles hefur Friðgeir Helgason ljósmyndanemi þar í borg tekið að sér að flytja okkur fréttir frá kvikmyndaborginni. Friðgeir verður einnig kynntur nánar hér á vefsíðunni á næstunni.
STÚDÍÓLJÓSMYNDARINN
Síðast en ekki síst mun Samúel svo njóta liðsinnis ljósmyndarans Gústafs Guðmundssonar. Hann tók m.a. mikið af þeim frábæru stúdíómyndum sem Samúel og önnur tímart Samútgáfunnar birtu á árunum áður og var síðan nánasti sam- starfsmaður ritstjórans er hann gaf út tímiritin Lífsstíl og Heimsmynd.
Samúel heldur áfram að kynna Samstarfsfólk sitt næstu dagana.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.