Þú sendir okkur línu með því að smella HÉR
Til að sjá minnispunkta Samúels frá ferlinum smellir þú HÉR
Útgáfa Samúels hófst árið 1969 og náði miklum vinsældum strax frá fyrsta tölublaði. Samúel fagnar því 40 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni hefur þessari vefsíðu verið hleypt af stokkunum. Hugmyndin er að þú getir gengið að Samúel á netinu út afmælisárið 2009 og fundið þar margt af því bitastæðasta sem birtist í Samúel og öðrum tímaritum hans frá síðustu fjórum áratugum. Auk þess verður fylgst með nútíð og framtíð að hætti Samúels.
Þegar Samúel kom fyrst á markaðinn var þar lítið að gerast annað en reglubundin útgáfa Vikunnar og söguritanna Eros og Sannar Sögur. Samútgáfan átti eftir að kaupa þau tímarit og hressa upp á þau.
Einnig keypti Samútgáfan tímaritin Hús & Híbýli og Bleikt & Blátt eft ir að þeim hafði báðum verið siglt í strand af fyrri útgefend- um. Undir ritstjórn Þórarins Jóns Magnússonar, ritstjóra Samúels, rauk salan á H&H og B&B samstundis upp í hæstu hæðir og náðu þau bæði að verma toppsætin í óháðum lesendakönnunum.
SAMÚEL EKKERT ÓVIÐKOMANDI
Samúel fjallaði m.a. um bíla, sport, ferðalög, fjármál, tísku, tónlist, djammið, græjur og pæjur. Í mörgum tilvikum lét Samúel sér ekki nægja að fjalla um hugðarefni sín heldur lét oft til sín taka eins og t.d. hvað bílasport snerti sem og baráttu fyrir frjálsu útvarpi og bjór, kjöri fegurðardrottninga og þokkafyllstu karlanna líka ...
SAMÚEL VARÐ SAMTALS YFIR 7000 BLAÐSÍÐUR Á 25 ÁRUM
Á aldarfjórðungi urðu blaðsíður Samúels yfir 7000 talsins og margt af því sem þar birtist er mönnum enn í fersku minni. Þannig gleymist seint að í viðtali við Samúel 1975 varð Hörður Torfason fyrsti íslendingurinn til að koma út úr skápnum. Hollywood-keppnin, sem Samúel átti frumkvæðið að, er líka mörgum ógleymanleg og um hana hefur verið saminn söngleikur sem frumsýndur var í Þjóðleikhússinu í vor. Barátta Samúels fyrir frjálsu útvarpi var öflug og undirbúningsfundir að stofnun fyrstu frjálsu útvarpsstöðvarinnar fóru fram á ritstjórnarskrifstofum Samúels.
EKKI AF BAKI DOTTIN N
Samúel er aldeilis ekki af baki dottinn þó hlé hafi orðið á útgáfunni. Ritstjóri hans frá fyrstu tíð, Þórarinn Jón, hefur starfað að tímarita- útgáfu óslitið frá því árið 1968 en þá gaf hann út tímaritið Topp Korn, forvera Samúels. Á síðustu sjö árum hefur hann m.a. ritstýrt tímaritinu Lífsstíl sem MasterCard dreifði í stórum stíl allt þar til í fyrra. Fór upplagið í allt að 100 þúsund eintök.
FRÁ RITVÉLINNI Í NETMIÐLA
Fyrstu tölublöð Samúels voru vélrituð. Síðan keypti Samúel blýsetningarvél, sem var nútímaleg útgáfa af setningaraðferð Gutten- bergs sáluga. Samúel varð svo eitt fyrsta tímarit landsins til að hefja tölvusetningu textans. En nú er komið fram á 21. öldina og Samúel lagar sig að breyttum aðstæðum og bregður sér á netið.
Það verður af nógu að taka eins og sjá má á hráum minnismiða ritstjórans sem við birtum hér á vefsíðunni. Ef þú vilt skyggnast yfir öxl ritstjórans og sjá minnismiðann smellir þú HÉR .
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.