Í dag þekkja allir Formúlu-unnendur Gulla, en hann er maðurinn sem átti frumkvæðið að því að færa landsmönnum það úrvals sjónvarpsefni sem Formúlu-keppnin er.
NÍU GULL TIL AKSTURSLIÐS SAMÚELS 1989
Gulli hafði yfirumsjón með samskiptum Samúels við akstursíþróttamenn og vegna þekkingar sinnar ákvað hann hvaða ökumönnum hlotnaðist sá heiður að mega merkja bíla sína með nafni Samúels, en það vildu undantekningarlaust allir gera. Samúel vildi hins vegar ekki taka neina sénsa í þeim efnum og valdi úr þá sigurstranglegustu.
Sumarið 1989 fór það líka svo, að níu gull komu í hlut aksturskappa Samúels.
GULLI HREPPTI SJÁLFUR GULLI Í FYRSTU TILRAUN
En það var ekki nóg með að gullið sópaðist að akstursliðinu, Gulli sjálfur hreppti gullverðlaun þetta sumar. Það sem er athyglisverðast við þann sigur er að hann var þá að keppa í fyrsta skipti í kvartmílu. Meira svona upp á grín!
Gulli viðurkenndi að keppni lokinni, að sér hafi alltaf þótt kvartmílan hálf brosleg íþrótt en þegar hann einn góðan veðurdag var skráður í keppni og á hólminn var komið hafi hann alvarlega íhugað að flýja af þeim hólmi. Sér hafi ekkert litist á blikuna þegar hann var kominn á brautin á óbreyttum Peugeot GTi á nýjum dekkjum og sá við hvaða stórlaxa í kvartmílunni væri að etja - og hann með öllu reynslulaus.
En kærasta taldi nægilegan kjark í Gulla til að hann harkaði af sér og ákvað að klára dæmið. Hann vann gullið. Í nafni Samúels - gleymum því ekki.
Kunnum við gömlu kærustunni hinar bestu þakkir fyrir aðstoðina.
SAMÚEL MUN KÍKJA BETUR Í SPORT-FÆLINN SINN
Það er af nógu að taka þegar flett er í gegnum þann fæl í safni Samúels sem geymir myndir og frásagnir af akstursíþróttum á tímum tímaritsins. Við eigum svo sannarlega eftir að fara vel í gegnum það efni.
Auk þess hafa svo kunnáttumenn á sviði akstursíþrótta í dag komið til liðs við Samúel og munu þeir flytja hér fréttir af því nýjasta á þeim vettvangi.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.