Það þótti ekkert sjálfsagðara en að dagblaðið bæri nafnið FRÉTTABLAÐIÐ enda fylltu fréttir síður blaðsins horn í horn. Bæði innlendar og erlendar fréttir, íþróttafréttir og dagskrá ríkisfjölmiðlanna Útvarps og Sjónvarps. Kanasjónvarpinu hafði verið lokað.
VINNUFÉLAGARNIR AF VÍSI
Þaulvant lið blaðamanna skrifaði Fréttablaðið. Ritstjórar Samúels, þeir Ólafur Hauksson og Þórarinn Jón Magnússon, komu þar að sjálfsögðu að verki, en þeir höfðu áður starfað á dagblaðinu Vísi um nokkurra ára skeið. Þangað sóttu þeir líka liðsstyrk, en blaðamenn Vísis sátu að sjálfsögðu aðgerðalausir í prentaraverkfallinu. Þau Edda Andrésdóttir, Óli Tynes og Kjartan Stefánsson settust við ritvélarnar á ritstjórn Samúels og tóku aftur til við fréttaskrif.
Það þarf vart að geta þess hér hverjir þessir blaðamenn eru, en þau Edda og Óli þekkja allir af Stöð 2 og Bylgjunni, en Kjartan, sem um skeið ritstýrði Frjálsri verslun, er nú hjá almannatengslafyrirtækinu KOM.
EDDA VARÐ EFTIR HJÁ SAM
Edda var raunar um þessar mundir að hætta störfum á Vísi og hefja störf hj cute; Samútgáfunni sem ritstjóri nýs tímarits útgáfunnar; Húsum & Híbýlum, en undirbúningur að útgáfu fyrsta tölublaðs þess tímarits stóð einmitt yfir þegar prentaraverkfallið skall á.
SNÖR HANDTÖK
Framkvæmdastjóri Samútgáfunnar var Sigurður Fossan Þorleifsson prentari og stýrði hann dreifingu Fréttablaðsins. Bjó hann þar að öflugu dreifingakerfi Samúels og fór létt með að koma blaðinu hratt og örugglega á yfir hundrað sölustaði á einum til tveimur klukkutímum á Reykjavíkursvæðinu. Blaðið var einnig sent á sölustaði í Vestmannaeyjum og á Akureyri og Suðurnesjum.
Fréttablaðið var brotið um hjá Samútgáfunni og tilbúið til prentunar um miðnætti. Fór það þá til vinnslu í Prentiðn í Garðabæ þar sem Emil nokkur Vilhelmsson sá um plötugerð og prentun. Snemma morguns fór upplagið svo í bókband í Arnarfelli. Um hádegi var það svo komið á blaðsölustaði.
LJÓSMYNDIN
Á myndinni hér fyrir ofan má sjá staffið að störfum á skrifstofu Samúels við Laugaveg 48 B. Við ritvélarnar sitja þau Óli Tynes og Edda, Ólafur vinnur að umbroti en standandi eru þeir Sigurður Fossan og Þórarinn Jón. (Á myndina vantar Kjartan.) Það þarf vart að taka það fram, að þetta var fyrir tíma tölvutækninnar.
Ljósm.: Ragnar Th. Sigurðsson (þáverandi fréttaljósmyndari á Vísi.)
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.