Svo vildi til að þegar atvinnuleysistryggingar urðu að veruleika á Íslandi var lítið atvinnuleysi og fyrstu þrjú árin sem sjóðurinn var starfræktur var lítið sem ekkert greitt úr honum í bætur og sáralítið fyrstu þrettán árin, fram til atvinnuleysisáranna 1969 og 1970 en íslenskt atvinnulíf þurfti að þola gífurlegan samdrátt um það leiti.
Geir Hallgrímsson var borgarstjóri. Hann gengdi því embætti frá árinu 1959 til 1972.
Bjarni Benedikt sson var forsætisráðherra. Gengdi því virðulega embætti frá árinu 1963 til dauðadags, en hann lést í eldsvoða á Þingvöllum 10. júlí 1970.
Davíð varð þjóðkunnur 1969, þegar hann lék aðalhlutverkið í leikritinu Bubbi kóngur eftir A. Jarry á Herranótt Menntaskólans, en það var líka sýnt í sjónvarpi. Um þetta leiti var hann líka um það bil að hefja þáttagerð fyrir útvarp undir nafninu Útvarp Matthildur. Samstarfsmenn hans á þeim vettvangi voru tveir skólafélagar hans úr MR, þeir Hrafn Gunnlaugsson og Þórarinn Eldjárn.
Stóriðja hófst á Íslandi þegar ÍSAL, Álverið í Straumsvík, hóf rekstur.
Nokkur ráðuneyti voru lögð niður og ný stofnuð árið 1969 þegar ný lög voru sett um Stjórnarráðið. Urðu þau til að byrja með þrettán talsins. Þannig var forsætisráðuneytið formlega stofnað þetta ár, sömuleiðis sérstök ráðuneyti landbúnar, iðnaðar og sjávarútvegs.
Þjóðskráin vélvædd í upphafi sjöunda áratugarins og áform voru uppi um að afla manntalsupplýsinga framvegis með aðstoð stjórnsýsluskráa, einkum þjóðskrár og fyrirtækjaskrár sem stofnuð var 1969.
Á bak við útrásarstarfsemi Íslendinga í orkumálum er dálítil saga sem teygir sig allt aftur til 1969 þegar Virkir var stofnaður, en fyrst og fremst var þetta takmarkað við ráðgjöf. Nokkur tímamót urðu árið 2001 þegar Enex var stofnað. Þá stækkar það með aðkomu orkufyrirtækjanna og menn fara úr því að vera bara að selja ráðgjöfina yfir í að vera komnir með orkufyrirtæki. Yfirstandandi efnahagshrun hefur ekki leitt Enex hjá sér.
Stofnun lífeyrissjóða fyrir alla landsmenn á vinnumarkaði varð að veruleika þegar Verkalýðsfélög og atvinnurekendur gerðu nýja kjarasamninga árið 1969. Tvímælaust má því telja að stofnun lífeyrissjóðanna sé einn merkasti áfangi í langri baráttu verkalýðshreyfingarinnar fyrir réttindum félagsmanna sinna.
Umferðarráð var stofnað í janúar 1969, en stofnunin Umferðarráð var sameinuð Skráningarstofunni hf. í Umferðarstofu, 1. október árið 2002.
Loftleiðir yfirtóku flugfélagið International Air Bahama sem var með áætlunarflug milli Luxemborgar og Bahamaeyja. Loftleiðir tóku sína fyrstu þotu í notkun árið eftir en hún var af gerðinni Douglas DC-8-63CF. Þessar langdrægar þotur höfðu sæti fyrir 249 farþega.
Stofnun Reykjanesfólkvangs var samþykkti samhljóða í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fólkvangurinn skildi að ná frá Elliðavatni að Krýsuvíkurbergi.
Myntsafnarafélag Íslands var stofnað. Félagið skal vera vettvangur þeirra sem safna og vilja fræðast um íslenska og erlenda gjaldmiðla, minnispeninga og því um líkt.
Alþjóðleg samtök eigenda íslenskra hesta, FEIF, voru stofnuð. Í dag samanstanda samtökin af 18 hesteigendafélögum víða um heim.
Breiðholtsskóli stofnaður.
Samtök frjálslyndra og vinstri manna voru stofnuð sem sérframboð Hannibals Valdimarssonar, (föðurs Jóns Baldvins fyrrv. ráðherra og sendiherra.) Samtökin buðu fyrst fram í alþingiskosningunum tveimur árum síðar og sat í ríkisstjórn næsta kjörtímabilið. Eftir slit stjórnarinnar og brotthvarf Hannibals úr pólitík fjaraði fljótt undan flokknum og hann var lagður niður tíu árum eftir stofnun.
Félag einstæðra foreldra var stofnað. Félagið er fyrir allar einstæðar mæður og feður, svo og forsjárlausa foreldra.
Menntaskólinn við Sund (áður Menntaskólinn við Tjörnina) stofnaður. Gylfi Þ. Gíslason þáverandi menntamálaráðherra tilkynnti um stofnun skólans. Þá voru aðeins fjórir framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu; MR, MH, Verslunarskóli Íslands og Iðnskólinn. (MH yngstur, stofnaður 1966.)
Skógræktarfélag Kópavags stofnað.
Örnefnastofnun var sett á fót sem deild í Þjóðminjasafninu, en í raun sjálfstæð stofnun með eigin fjárhag.
Félagið Íslensk Grafík er stofnað í núverandi mynd.
Hafnarsamband sveitarfélaga stofnað.
Handknattleiksdeild Gróttu stofnuð.
Þróttur starfaði í vesturbænum fyrstu 20 árin. Aðstöðuleysi einkenndi þetta tímabil og peningaskortur var oft mikill. Árið 1969 fékk félagið lóð í austurbænum, nánar tiltekið við Sæviðarsund og fluttist þangað.
Borðtennisdeild KR stofnuð.
Körfuboltadeildin Vikings stofnuð í Njarðvík með aðstoð nokkurra varnarliðsmanna.
Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ) stofnað en eitt markmiða þess er að vernda og rækta íslenska fjárhundinn.
Hjálparsveit Skáta í Kópavogi stofnuð.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stofnuð.
Héraðsskjalasafnið á Akureyri stofnað.
Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins stofnaður.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.