Fullt nafn: Móeiður Sif Skúladóttir
Fæðingarstaður: Keflavík
Fæðingardagur: 8. janúar
Hæð: 168 cm
Háralitur: Ljóst/skollitað
Augnlitur: Blár
Systkini: Tveir yngri bræður, Lárus og Halldór
Foreldrar
: Halldóra E og Skúli B
Stjörnumerki: Steingeit, me e
Móeiður Sif Skúladóttir bar sigur úr bítum í Samkeppni Samúels 2010 og hlaut að launum verðlaun. Hér má sjá Móeiði Sif komna á Toyota iQ vandlega merkta keppninni af fyrirtækinu G3, en bílinn fékk hún til afnota í eitt ár. Móa er í jakkanum frá Pelsinum sem hún sýndi á lokahófi Samkeppninnar á Broadway. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá fleiri myndir af Móu og svör hennar við spurningum Samúels. Mynd: ÞJM
Á FORSÍÐU KEPPENDURNIR ALLT UM KEPPNINA
Uppáhalds máltíðin þegar þú vilt vera góð við þig? Serrano og taco bell!!! ELSKA það :)
Hvaða kostum þarf maki þinn að vera búinn?
Hress, traust/ur, opin og með mikinn og góðan húmor :)
Hefur þú horft á kynlífsmyndband? Kannski.
Hefur þú gert þér upp veikindi til að komast hjá vinnu eða fjölskylduboði? Aldrei ;)
Inn í hvaða fræga fjölskyldu vildir þú vera gift eða fædd?
Adams family.
Hefur þú átt í sambandi við fleiri en einn eða tvo karlmenn samtímis?
Nei, það væri of mikið vesen held ég.
Ögrar þú sjálfri þér með einhverju sem þú ert smeyk við eins og t.d. með teygjustökki? Já, ég á raunar enn eftir að prófa tyeygjustökk, en ég ögra mér í mörgu öðru eins og til dæmis tívolítækjum og bara ýmsu í daglegu lífi.
Hvað viltu eignast mörg börn? Pass við þessa spurningu, hehe.
Snyrting: Vax, rakvél eða annað? Já , þú? Ég? Þú? ... rakvél og vax sem spari.
Hvar í heiminum vildir þú geta verið stödd akkúrat núna?
Miami, Florida, því þar er sólin og ströndin ... og fólk sem talar ensku.
Hvaða frægri persónu vildir þú kynnast afar náið?
Kendra Wilkinson og Jason Statham ;)
Hvað er mesta turn-off sem þú manst eftir?
ANDFÝLA og ósprengdar bólur!
Hvaða kveikir blossann?
Leyndó ;)
Hvernig líkar þér best að verja frístundunum ein?
Mála með góða tónlist.
Kúra svo undir sæng og horfa á góða hryllingsmynd með nóg af nammi. Ahh thats life :D
Hvernig líkar þér best að verja frístundunum með öðrum?
Elta býflugur! Nei, segi sona. Bara rúnta og spjalla, fara í pool eða eitthvert að borða.
Stígur þú á vigt ina daglega og telur kalóríurnar í því sem þú lætur ofan í þig? Stíg á vigtina já, en nei ég tel vinkonurnar ekki ofan í mig ;)
Hver er helsti ávani þinn?
Horfa á eitthvað af elsku besta flakkaranum mínum áður en ég fer að sofa.
Eldri eða yngri karlmenn?
Góð spurning, hehe, nei yfirleitt eru þeir eldri - en það eru undantekningar :)
Hvað leiðist þér mest í fari fólks?
SNOBB, það er það helsta ... annars er fer líka frekja og baktal rosalega í mig.
Hefur þú einhvern tíma gefið þér sérstaklega tíma til að horfa á sólarupprásina?
Neibb.
Hver er svalasta persónan sem þú hefur hitt til þessa?
Vá, uh ... ég veit ekki- Jated Leto og amma mín!
Hefur þú verslað í munúðarvöruverslun ástarlífsins? Já, það fæst nefnilega ekki allt í Hagkaup ;)
Í hverju sefur þú?
Náttbuxum eða boxer.
Hefur þú málað mynd, samið ljóð, lag eða smásögu, leikið, dansað eða sungið? Jebbs, ég er mikið fyrir að mála myndir og semja texta/ljóð, dansa stundum og raula með góðum lögum ;)
Hver er þinn helsti veikleiki?
Mætti hafa meira sjálfstraust og ég treysti ekki mörgum - en kannski kemur það með tímanum.
En kostur?
Ég er stundvís,vingjarnleg, kurteis og traustur vinur- held ég ;)
Hvar kaupir þú helst á þig skó og föt?
Gallerý í Kef, Topshop, 17 og bara þar sem ég finn eitthvað flott og á ágætu verði.
Besta útvarpsröddin?
Frosti og Máni á X-inu, alltaf gaman að hlusta á þá.
Hvað lætur þú fara mest í taugarnar á þér?
Það, að ég búi ennþá í Keflavík og allt þetta baktal og slúður sem fylgir því litla pleisi.
Áttu gæludýr? Já, kött og hund. Held ég muni alltaf eiga hund og/eða kött í framtíðinni.
Eftirlætis skemmti- og/eða veitingastaðurinn þinn? Sódóma Reykjavík, alltaf eitthvað að gerast, góð bönd að spila og aldrei leiðinleg tónlist:) Annars er það bara Halinn/yello í Keflavík.
Hverju vildir þú helst geta breytt í lífi þínu? Hmm...já það er alveg slatti sem ég vildi breyta, vonandi fer það að breytast fljótlega ;)
Ertu hjátrúafull?
Já, svolítiðið. Er alla vega mjög opin þegar það kemur að andlegum hlutum.
Trúir þú á framhaldslíf?
Auðvitað. Engin spurning um það.
Hver er draumabíllinn?
Ford Mustang '70 árgerð, dökk-fjólublár
Hvað er líklegast til að koma þér í vandræði?
Þegar ég kemst í kynni við karlrembusvín og áfengi hehe.
Ljúfustu bernskuminningarnar? Þegar ég og yngri bróðir minn vorum í sumarbústað með mömmu og pabba og við vorum að tala inn á glataða dagskrá sem var á RÚV - settum á mute og skemmtum okkur konunglega :)
Hefur þú sett þér strangar reglur í mataræði?
Já, verð að segja það. Ég passa rosalega vel það sem ég borða, en leyfi mér auðvitað stundum að detta í óhollustu.
Hvaða líkamsræktartól áttu eða hefur átt og notað?
Ég á ekkert svoleiðis, ég fer bara í ræktina - þar er allt sem ég þarf.
Æfir þú reglulega?
Já, reyni að mæta á hverjum virkum degi.
Hver er skemmtilegasti staðurinn sem þú hefur komið til?
Hong Kong og Minneapolis. Rosalega ólíkar borgir en báðar æði.
Furðulegasti matur sem hefur verið borinn á borð fyrir þig?
Í Hong Kong, þegar mér var boðið bæði sushi og eldaður fiskur í heilu lagi (með hausnum og öllu) og heilan kjúkling (með fótum, hausnum og öllu) ég kúgaðist!
Til hvaða staða erlendis langar þig mest til að fara (sem þú hefur ekki farið til áður).
Til dæmis New York, Flórída og Japans. Ég elska að ferðast :)
Í hvaða skólum hefur þú verið? Grunnskólum og Fjölbraut í Keflavík.
Hvar starfar þú í sumar? Í Fríhöfninni, Duty free store þriðja sumarið í röð.
Teldu upp nokkur störf sem þú hefur unnið?
hmm...klinka hjá tannlækni, IGS ræstingar (þrífa flugvélar), IGS flugeldhús og fleira.
Óskemtilegasta starf sem þú hefur unnið?
Að þrífa flugvélarnar uppá flugstöð. Það versta sem ég hef gert!!
Draumastarfið?
Gera tattoo og eiga mína eigin tattoo-stofu í USA.
Hvar hefur þú átt heima?
Hef búið í Keflavík allt mitt líf, nema í þrjá mánuði þegar ég bjó í Hollandi.Stefni á að flytja út og fara í háskóla, en er ekki ennþá ákveðin hvert.
Hvaða persónu vildir þú leika í kvikmynd eða á leiksviði?
„Baby" í myndinni House of 1000 corpses eða kattakonuna í Batman ;)
Hver er mesta tímasóunin sem þú minnist að hafa staðið í?
Þegar ég var að safna fyrir útskriftarferð sem var svo ekki farið í! Ekki sátt með það – hefði getað einbeitt mér ennþá betur að náminu frekar.
Hatar þú einhvern?
Hehe auðvitað, en maður verður bara að lifa með því.
Hverju tekur þú fyrst eftir í fari og útliti karlmanns?
Brosið, klæðnaður og hárið.
Hverju tekur þú fyrst eftir í fari og útliti kvenmanns? Brosið, hárið, klæðnaður ... og rassinn.
Hefur þú hugleitt að flytja úr landi? Já, dreymir að flytja til USA en þetta blessaða græna kort er allt of mikið vesen, svo ég fer örugglega til Danmerkur, Svíþjóðar eða Noregs.
Besta pick-up línan sem þú hefur heyrt? „Koddí sleik.″ hahaha, æði :)
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.