Karitas Ósk Þorsteinsdóttir
Kölluð supergirl og Karí af nánastu.
Fæðingarst.: Fæðingarheimilið.
Heimabær í dag: Grafarholtið
Fæðingardagur: 13.mars1990
Hæð: 1,70
Háralitur: Brúnn
Augnlitur: Brúnn
Systkini: 5 falleg systkini.
Andri Snær Þorsteinsson
Sindri Snær Þorsteinsson
Bjarki Snær Þorsteinsson
Katrín Hildur Eyjólfsdóttir
Sara Dögg Helenudóttir
Foreldrar: Svava Kristín Gísladóttir og Þorsteinn Örn Andrésson.
Stjörnumerki: Ég er fiskur, stjörnumerkið er mitt !
Á FORSÍÐU KEPPENDURNIR ALLT UM KEPPNINA
Hefur þú einhvern tíma gefið þér tíma til að horfa á sólarupprásina? Já, ég hef einu sinni gert það, þá var ég í Namibiu í Afríku með Töru Ósk og Kobusi vini mínum. Sátum við sjóinn, afskaplega fallegt og áhrifamikið. Sáum líka rosalega fallegt stjörnuhrap á svipuðum stað.
Í hverju sefur þú? Engu, langbest!
Uppáhalds sjónvarpsefni? Horfi aldrei á sjónvarp, ég hef ekki einu sinni komist svo langt að spá að kaupa mér sjónvarp.
Besta útvarpsröddin? Þær eru á Flash 104,5.
Hatar þú einhvern? Kannski ekki beint hata, en mér líkar ekki við alla.
Hvar kaupir þú helst á þig skó og föt? Versla nánast aldrei hérna heima, en mínar uppáhaldsbúðir hérna á Íslandi eru Kiss, Dúkkuhúsið, Ég og þú og Lazenza.
Ertu hjátrúafull? Já, hef eytt tíma í að reyna að afsanna hjátrú, líkt og að brjóta spegill, labba yfir holræsi og fleira þess háttar. Hef lært það af eigin reynslu að maður á að vera hjátrúarfullur.
Hvað lætur þú fara mest í taugarnar á þér? Þegar að fólk lítur stórt á sig, hvísl og baktal.
Áttu gæludýr? Nei, hef samt átt fullt af dýrum. Seinasta gæludýrið mitt var Iguana, sem hét „Lalli″. Svo átti ég tvo páagauka sem ég kallaði Aríel og Páfagauk.
Eftirlætis skemmti-/veitingastaðirnir? Hvíta perlan og English pub. Þarf raunar að kanna veitingastaðina betur.
Draumabíllinn? Ég á algjöra drusslu sem heitir Íkael, Mazta '97.
Ég á marga draumabíla.
Trúir þú á framhaldslíf? Já.
Hefur þú sett þér strangar reglur í mataræði? Nei, ég kann engan aga, þykist vera í megrun og borða kleinur og kók :/
Hvaða líkamsræktartól áttu eða hefur átt og notað? Ég sippa. Svo hjóla ég líka og skokka.
Æfir þú reglulega? Já, ég æfi alla daga sem ég get. Alla vega þrisvar í viku, en reyni að komast fimm sinnum í viku.
ÁÐUR BIRT:
Hvað hafðir þú fyrir stafni í sumar? Ég eyddi tímanum með fjölskyldunni minni, ferðaðist til Spánar og með litla stráknum mínum.
Hvað muntu gera í vetur? Ég er í nagla- námi, alls konar prógrömum, svo er ég byrjuð að módelast eitthvað.
Í hvaða skólum hefur þú verið? Ég var í Engjaskóla, fór svo í Klébergsskóla og þaðan í Iðnskóla Reykjavík eða Tækniskólinn eins og hann er kallaður í dag.
Hvað viltu eignast mörg börn? Ég á nú þegar einn gorm sem heitir Róbert Örn Davíðsson. Held að eitt sé alveg nóg í bili :) Annars langar mig að eignast tvö börn, alls ekki fleirri en þrjú börn. Yndislegt að vera mamma!
Hefur þú hugleitt að flytja úr landi? Ég á mér þann draum að flytja út í hitann, og hanna eitthvað spennandi
Hvaða mótleikara kysir þú helst í kvik- mynd? Mér finnst aðalleikarinn í Spartacus ótrúlega hott, samt bara í Spartacus, svona skítugur og loðinn. Væri til í að leika á móti honum.
Hverju tekur þú fyrst eftir í fari og útliti karlmanns? Hmm, það er margt sem ég skoða í dag þegar ég virði fyrir mér karlmenn, hehe. Hef verið með alltof mikið af kjánum, kröfurnar hafa orðið meiri, ég tek eftir hæðinni, hvernig hann ber sig, hvort hann hugsi vel um tennurnar, hvort neglurnar séu hreinar, klippingunni og skónum, hvort að hann sé heiðarlegur og fleira og fleira.
Óskemmtilegasta starf sem þú hefur unnið? Snælandsvideo/sjoppuvinna og Hárrétt.
Í hvernig kvikmynd mundir þú vilja leika? Hasarmynd eða í rómantískri gamanmynd :)
Hefur þú málað mynd, samið ljóð, lag eða smásögu, leikið, dansað eða sungið? Ég lék oftast öll aðalhlutverk í grunnskóla, á árshátíðum/Samfés. Hef aldrei sungið, en langar samt rosalega að þora því og sömuleiðis að leika eitthvað í framtíðinni, er reyndar nýbúin að leika lítið hlutverk í tónlistamyndbandi fyrir rapparann „Big J“ Svo hef ég prófað að æfa alls konar dansa líka. Fannst ofboðslega gaman í súludansi.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.