Kynning á keppendum hefur staðið yfir síðan í vor. Hver keppandi er kynntur á sérstakri síðu hér á Samúel.is. Þú getur séð tilvísanir á síðurnar HÉR
Krúttlegt kar, iQ. Einn svona stendur á sviðinu á Broadway við hlið Regínu, krýningarstólsins frá Casa, á glæsilegu lokahófi Samkeppninnar 19. nóvember. Sigurvegarinn ekur heim á bílnum af lokahófinu og hefur bílinn til afnota í heilt ár.
Undirbúningur að framleiðslu iQ hófst fyrir all mörgum árum með aukinni umræðu og auknum kröfum til bílaframleiðenda um að bjóða farartæki sem hafa sem minnst umhverfisáhrif og taka lítið pláss í ofurþéttri borgarumferð Japans.
LÖÐUR hefur heitið því að halda bílnum hreinum allt árið með vikulegum þrifum.
Til að lesa um iQ smellir þú HÉR
CASA stóllinn Regina gegnir hlutverki krýningarstóls á lokahófi Samkeppninnar á Broadway. Stóllinn kostar um hálfa milljón króna og verður eign sigurvegara keppninnar. Stóllinn Regína er verk hins margverðlaunaða, ítalska hönnuðar Paolo Rizzatto, sem fæddur er í Mílanó og rekur þar hönnunarstofu. Er hann á meðal virtustu hönnuða Ítala. Hann er fæddur í Mílanó 1941 og er enn sprækur í hönnuninni.
Kíktu á stólinn Regínu í CASA í Skeifunni. Nánari upplýsingar HÉR.
Úrslit Samkeppninnar verða tilkynnt á glæsilegu lokahófi á Broadway næstkomandi föstudagskvöld, 19. nóvember. Meðal þeirra sem þar koma fram er Haffi Haff, sem einnig hefur tekið til við að undirbúa stúlkurnar í Samkeppninni fyrir þrjár innkomur sem þær eiga á svið á krýningarkvöldinu. Forsala aðgöngumiða er á Broadway frá kl. 13:00 til 15:00. Sími miðasölu 533 1100. Aðgangseyrir er aðeins kr. 1.500. (Kr. 2.500 með djúsi Samborgara, sósu og salati.) Allt um lokahófið á FACEBOOK.
Módelmyndataka erlendis bíður sigurvegarans og sömuleiðis fá stúlkurnar í öðru og þriðja sæti farseðla i hendur.
Berglind Ólafsdóttir
er formaður
dómnefndar Samkeppninnar 2010, en hún hefur starfað sem fyrirsæta í Kaliforníu síðustu 17 ár og sömuleiðis komið fram í sjónvarpi og leikið í nokkrum kvikmyndum.
SMELLA HÉR til að sjá myndir sem einn dómnefndarmanna tók af Berglindi nýverið.
Í dómnefndinni á líka sæti lljósmyndarinn Marcel Indik sem hefur bækistöðvar í Hollywood og er önnum kafinn við að mynda þar fallega og fræga fólkið. Kvikmyndastjörnur og tónlistarmenn eru tíðir gestir í stúdíóinu hans við Melrose og í áraraðir hefur hann myndað fyrir öll vinsælustu tímarit karla og nægir að nefna Playboy, FHM og Maxim. Marcel tók myndina af Berglindi hér til vinstri. ALBÚM.
Þá er að nefna tískuljósmyndarann Sam Norval sem er fæddur í Suður-Afríku, en býr núna í New York. Í millitíðinni starfaði hann með evrópskum ljósmyndurum. Hann er í dag einn af eftirsóttustu auglýsinga- og fyrirsætuljósmyndurum Bandaríkjanna.
F jórði dómarinn er m ódelið Bruno Santos sem er á fljúgandi ferð um heiminn til að sinna fyrirsætustörfum fyrir Gioerrgio Armani, Versase og fleiri slíka.
Loks er það svo svissneski ljósmyndarinn Marco Iemmola sem hefur stundað ljósmyndun ákaft í Evrópu.
Auk þess sem dómnefnd er nú að störfum gefst lesendum Samúels kostur á að leggja lóð sín á vogarskálarnar í netkosningu.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.