Fullt nafn: Jórunn Steinsson
Heimabær: Keflavík City
Fæðingarstaður: Reykjavík/Seltjarnarnes
Fæðingardagur: 29. ágúst 1989
Hæð: 168 cm
Háralitur: Dökkbrúnn
Augnlitur: Á það til að breytast, en er oft grænn
Systkini: Yndislegan yngri bróður og einn eldri hálfbróður.
Foreldrar: Jóhann Steinsson og Jnný Þorsteins
Skólar: Mýró, Lindaskóli, MK, FB og FS
Á FORSÍÐU FYRSTU KEPPENDURNIR Cover Girl-video
Hvaða tvo mótleikara kysir þú helst í kvikmyndinni? Johnny Depp og Cameron Diaz eða Scarlett Johanson.
Hver er mesta tímasóunin sem þú hefur staðið í? Ég tel ekkert sem ég geri tímasóun, maður græðir eitthvað á flestu sem maður gerir, en því miður hef ég oft eytt löngum tímum í að bíða eftir fólki sem svo lætur ekki sjá sig!
Hvar starfaðir þú í sumar? Ég er búin að vera í námi í sumar og sinna líka einstaka verkefni hér og þar um landið.
Óskemmtilegasta starf sem þú hefur unnið? Ég hef nú yfirleitt skemmt mér að einhverju leiti í hverju einasta starfi sem ég hef verið í. En ég entist þó ekki nema einn og hálfan tíma í unglingavinnunni á sínum tíma.
Hvað viltu eignast mörg börn? Tvö eða þrjú. Eina stelpu og tvo stráka.
Hefur þú horft á kynlífsmyndband? Who hasn’t?
Hefur þú gert þér upp veikindi til að komast hjá vinnu eða fjölskylduboði? Again ... who hasn’t?
Hatar þú einhvern? Það eru svo sannarlega til manneskjur sem eiga það skilið að vera hataðar, en þær manneskjur eru ekki tilfinninga minna virði.
Hverju tekur þú fyrst eftir í fari og útliti karlmanns? Hvernig hann ber sig. Ég skynja það vel ef manneskjan er full sjálfstrausts eða ekki. Annars eru falleg augu, fallegar tennur og breiður brjóstkassi eftirtektarverðast í mínum bókum ;)
Hverju tekur þú fyrst eftir í fari og útliti kvenmanns? Sömuleiðis hvernig hún ber sig og svo göngulagið. Annars tek ég fyrst eftir brosinu og vextinum.
Hefur þú farið í rúmið með tveimur í einu eða gætir hugsað þér það? Jájájá ég lá nú bara uppí rúmi rétt um daginn með tveimur vinkonum að horfa á bíómynd.
Hefur þú hugleitt að flytja úr landi? Ég hugsa oft um það, það er líka stefnan um leið og ég og kærstinn getum það. Við getum til dæmis bæði fengið vinnu á Spáni.
Besta pick-up línan sem þú hefur heyrt? Yfirleitt finnst mér týpískar pickup línur mjög lame, en um daginn lenti ég í því að útlendur maður (með móður sína við hlið sér) pikkaði í mig og sagði: With my bone structure and your complexion our babies would be beautiful. Þetta var voða sætt eitthvað með mömmu gömlu skælbrosandi á meðan.
ÁÐUR BIRT:
Hvar í heiminum vildir þú að módel- myndataka Samúels færi fram?
Ef ég mætti ráða þá væri það annaðhvort Miami eða LA !
Eftirlætis skemmtistaðurinn þinn?
Hmm ... ég hef mjög gaman af bar/pöbba stemmningu, bara þar sem tónlistin dregur mig.
Hverju vildir þú helst geta breytt í lífi þínu?
Engu, nema hvað að ég vildi eiga stærri íbúð.
Ertu hjátrúafull?
Já að vissu leyti, en ég lifi ekki lífinu eftir því.
Trúir þú á framhaldslíf?
Já, það geri ég.
Draumabíllinn?
Ég er að leita mér að bíl þessa stundina, en ég á marga draumabíla, t.d. Gallardo lp560-4.
Ljúfustu bernskuminningarnar?
Margar þeirra eru allavega frá tímum mínum vestur á fjörðum
Hvað er líklegast til að koma þér í vandræði?
Hehe, ætli það séu ekki bara vinirnir, það er auðvelt að plata mig út í eitthvert ævintýri! En ég er lítið að lenda í vandræðum samt.
Hefur þú sett þér strangar reglur í mataræði?
Ég hef gert það já.
Hvaða líkamsræktartól áttu eða hefur átt og notað?
Ég á boxpúða og æfingahanska, er ekki búin að setja púðann upp aftur eftir að ég flutti, þarf að finna góðan stað.
Æfir þú reglulega?
Ég fer ekki í ræktina, en ég teygi og geri jóga, geng mjög mikið og dansa eins og brjálæðingur. Er almennt mikið á hreyfingu.
Hver er skemmtilegasti staðurinn sem þú hefur komið til?
Á Íslandi er Súðavík paradís æsku minnar og er enn í miklu uppáhaldi, en erlendis verð ég að segja Spánn í heild sinni, love it!
Furðulegasti matur sem hefur verið borinn á borð fyrir þig?
Samkynhneigður hamstur illa grillaður á teini með tabasco sósu í útjaðri pólsku nýlendurnar í Súdan, semí spes.
ÁÐUR BIRT
Hvernig líkar þér best að verja frístundunum með öðrum?
Mér líður alltaf vel þegar ég er með góðum vinum og fjölskyldu.
Stígur þú á vigtina daglega og telur kalóríurnar sem þú lætur ofan í þig?
Ég á ekki vigt heima, en ég stíg stundum ofan á hana hjá foreldrum mínum. En þó ég telji kaloríurnar ekki ofan í mig þá hugsar ég samt um það hvað ég set ofan í mig.
Hver er helsti kækur þinn? Hmm..
Eldri eða yngri karlmenn? Eldri.
Hvað leiðist þér mest í fari fólks?
Óstundvísi, óheiðarleiki og óþarfa tíkarskapur. Ó-in þrjú !
Hefur þú einhvern tíma gefið þér sérstaklega tíma til að horfa á sólarupprásina?
Óteljandi oft ... ennþá oftar á sólsetrið.
Hver er svalasta persónan sem þú hefur hitt? Jóhann D. Bianco ... klárt mál
Hefur þú verslað í munúðarverslun ástarlífsins? Hafa ekki allir gert það en þora ekki að viðurkenna það ? Þær eru þarna til að verslað sé í þeim !
Hefur þú málað mynd, samið ljóð, lag eða smásögu, leikið, dansað eða sungið?
All of the above ... og geri það allt enn.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Ég er með svolítið stuttan þráð ...
En kostur? Mjög bjartsýn og hress.
Í hverju sefur þú?
Boxerum og hlýrabol yfirleitt.
Uppáhalds sjónvarpsefni?
Teiknimyndaþættir (Family Guy, Drawn Together…), læknadrama, ævintýramyndir og margt fleira.
Hvar kaupir þú helst á þig skó og föt?
Versla talsvert á netinu, en annars eru það engar sérstakar búðir, innihaldið í fataskápnum mínum er mjög fjölbreytt.
Besta útvarpsröddin?
Af þeim sem er í loftinu í dag þá fíla ég Frosta og Mána í ræmur
Hvað lætur þú fara mest í taugarnar á þér?
Frekjur og tíkur.
Áttu gæludýr? Ég á hund heima hjá foreldrum mínum, og kisuna mína hjá mér, Tyson.
ÁÐUR BIRT:
Stjörnumerki: Ég er algjör meyja, þó ég reyni að hemja mig oftar en ekki. Ákveðin, smá stjórnsöm og með algjöra fullkomnun-aráráttu, sérstaklega varðandi sjálfa mig.
Nokkur störf sem þú hefur unnið: Sjoppudama, dagpössun í líkamsræktarstöð, ljósmyndafyrirsæta, sjúkraliðanemi (á öldrunarheimili, dagvistun fjölfatlaðra barna, geðdeild o.fl.)
Hvar í heiminum vildir þú geta verið stödd akkúrat núna? Úff ... það allra fyrsta sem kemur mér í huga er Miami
Uppáhalds máltíðin þegar þú vilt vera góð við þig? Ég elska mexíkanskan mat.. líka Kebab!!
Hvaða kostum þarf maki þinn að vera búinn? Hann þarf að vera opinn, fyndinn, yndislegur, myndarlegur og getað þolað mig þegar ég er uppá mitt versta !
Inn í hvaða fræga fjölskyldu vildir þú vera gift eða fædd? Enga sérstaka ... hef lítinn áhuga á að fara inní fjölskyldu bara vegna frægðar hennar
Hefur þú átt í sambandi við fleiri en einn eða tvo karlmenn samtímis? Auðvitað, ég stofnaði trúarsamfélag álíkt mormóna ... nema við kvenfólkið fáum böns af karlmönnum.
Ögrar þú sjálfri þér með einhverju sem þú ert smeyk við eins og t.d. með teygju- stökki? Úff já, ég elska að ögra sjálfri mér með slíku, taka það skrefinu lengra og finna adrenalínið pumpa. Það á við marga aðra hluti í mínu lífi, ekki bara jaðaríþróttir.
Hvaða frægri persónu vildir þú kynnast afar náið? Það er án alls efa Bruce Willis og Johnny Depp! Ég er m.a.s. búin að fá leyfi !
Kirkjubrúðkaup eða fógeti? Hvorugt. Brúðkaupið utandyra og sá sem framkvæmir athöfnina verður sérstaklega valinn.
Hvað er mesta turn-off sem þú manst eftir? Slæm líkamslykt finnst mér ógeð.
Hvaða kveikir blossann? Rómantík og falleg orð ;)
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.