Fullt nafn: Emma Lovísa Eðvarðsdóttir Fjeldsted.
Fæðingarstaður: Fædd í Sandgerði en uppalin í Reykjavík.
Fæðingardagur: 9. mars 1987.
Hæð: 178 cm.
Háralitur: Svartur.
Augu: Brún.
Systkini: Herdís Dröfn 38, Daniel Hrafn 35, Sigurpáll Davíð 31, Kristjana Þórunn 27 og Laufey Ebba að verða 17.
Foreldrar: Kristjana Þórunn Fjeldsted og Eðvarð Sigurvinn Ólafsson.
Stjörnumerki: Fiskur.
Ögrar þú sjálfri þér með einhverju sem þú ert smeyk við eins og teygjustökk? Já, ef ég mundi fá tækifæri til þess mundi ég klárlega gera það. Langar einmitt heví að prófa fallhlífarstökk.
Inn í hvaða fræga fjölskyldu vildir þú vera gift eða fædd? The Simpsons eða Family Guy, alveg klárlega.
Hefur þú horft á kynlífsmyndband? Já það hef ég gert. Hver hefur ekki gert það? ;)
Hefur þú sett þér strangar reglur í mataræði? Nei, það hef ég ekki gert. Ég borða bara það sem ég vil.
Hvaða kostum þarf maki þinn að vera búinn? Hann þarf að vera hávaxinn, góður við mig og virkilega ástfanginn af mér og ég af honum:)
Sérkennilegasti staðurinn sem þú hefur gert það á? Me 2 know, you 2 find out :)
Hefur þú að fyrra bragði gefið þig á tal við gæja sem þig hefur langað til að kynnast? Já, það hef ég gert.
Hefur þú verslað í munúðarvöruverslun ástarlífsins? Já, finst heví gaman að fara í svoleiðis búðir
Uppáhalds leikarar? Bratt Pitt, Jason Statham :) Jón Gnarr og Pétur Jóhann :)
Bestu kaupin? Kjóllinn sem ég lét hanna á mig og svo bíllinn minn.
Eldri eða yngri karlmenn? Mér finnst aldur vera afstæður sérstaklega þegar maður er ástfangin.
Hvað viltu eignast mörg börn? Fimm, en ætla ábyggilega milliveg og segi þrjú.
Hefur þú farið á myndlistarsýningu, ballett eða sinfóníu hljómleika? Já, fullt af myndlistarsýningum.
Snyrting: Vax, rakvél eða annað? Já, þú? Rakvél en langar heví að prufa vax.
Hvað leiðist þér mest í fari fólks? Fýla útaf engu. Dregur mann alveg niður. Sérstaklega ef viðkomandi vill ekki segja út af hverju fýlan í honum stafar.
Hefur þú einhvern tímann gefið þér tíma til að horfa á sólarupprásina? Já, einu sinni á svölunum þar sem ég bjó. Með mínum fyrrverandi.
ÁÐUR BIRT:
Er hægt að segja að þú sért annað hvort nísk eða gjafmild? Ég er mjög gjafmild manneskja því það lætur mér líða vel og ég trúi á karma .
Ertu hjátrúafull? Nei, það er ég ekki.
Trúir þú á framhaldslíf? Ég trúi á eitthvað annað eftir þetta líf, en get ekki ímyndað mér hvað það gæti verið.
Hver er draumabíllinn? Ég á Yaris en draumabíllinn er Range Rower sport.
Hvað er líklegast til að koma þér í vandræði? Ég k em mér oft í vandræði á ótrúlegasta hátt, hehe.
Besta pick-up línan sem þú hefur heyrt? Man ekki eftir neinni góðri í augnablikinu, en man eftir einni hörmulegri: "Var það vont þegar þú féllst af himnum ofan?”
Eftirlætis skemmtistaðurinn? Ég skemmti mér alltaf vel á Nasa, 101 og Jakobsen. Annars er það bara Kef.
Í hverju sefur þú? Það fer eftir … oftast bara í nærbuxum.
Hefur þú málað mynd, samið ljóð, lag eða smásögu, leikið, dansað eða sungið? Ég er hræðileg söngkona. Þegar ég syng í bílnum halda hundarnir mínir fyrir eyrun. Hehe. Ég var vön að mála þegar ég var yngri og samdi líka ljóð en ég dansa enn og finnst það ýkt gaman.
Hvar í heiminum vildir þú geta verið stödd? Miami, Hawai og Las Vegas eru á óskalistanum svo einhverjir staðir séu nefndir.
Hvaða frægri persónu vildir þú kynnast afar náið? Ég hefði ekkert á móti því að Johnny Depp liti við hjá mér ber að ofan eða Jason Statham lægi butt naked við hliðina mér. Mjjjjjáááwww ...
Ef þú fengir kvikmyndahlutverk, hvaða tvo móttleikara veldir þú? Jessica Alba og Jason Statham.
Hvað lætur þú fara mest í taugarnar á þér? Geltið í hundunum mínum er það eina sem ég man svona eftir i augnablikinu.
Hvernig líkar þér best að verja frístundunum ein? Uppi í rúmi með dýrunum mínum, snakk, fullt af nammi, kók og góðar bíómyndir.
Hvernig líkar þér best að verja frístundunum með öðrum? Bara í faðmi fjölskydunnar og í góðra vina hópi.
Hvaða kveikir blossann? Kertaljós og manneskja sem ég elska. Það þarf ekki mikið meira til að kveikja í mér.
Besta útvarpsröddin? Frikki á Flass FM og Sigga Lund í Zúúber.
Telur þú kalóríurnar sem þú lætur ofan í þig og stígur daglega á vigtina? Nei, alls ekki. Man ekki hvenær ég vigtaði mig seinast. Kílóinn skipta engu máli. Það skiptir öllu máli að maður sé ánægður með sig eins og maður er.
ÁÐUR BIRT:
Ljúfustu bernskuminningarnar? Það er svo margt. Kemur fyrst í hug ein jólin þegar ég var lítil. Pabbi átti ekkert jólaskraut tiltækt og setti nammikarla og eina jólaséríu á jólatréð. Undir trénu voru tveir pakkar einn til min og einn til Kristjönu systur minnar. Í mínum var Barbie hús og ólétt Barbie dúkka og svo máttum við systurnar borða kallana af trénu. Ein af mínum bestu jólum.
Hver er skemmtilegasti staðurinn sem þú hefur komið til? Kína. Elska menninguna þar.
Furðulegasti matur sem hefur verið borinn á borð fyrir þig? Þegar ég var í Kína fékk ég fullt af furðulegum mat. Eitt skiptið fékk ég kolkrabba og kláraði af diskinum.
Til hvaða staðar erlendis, sem þú hefur ekki komið til áður, langar þig mest til að fara? Indland er draumastaðurinn minn. Þekki fólk þar sem viðheldur lönguninni til að heimsækja landið.
En hjá kvenfólki ? Ég mundi segja augun og brosið.
Þú ert mikill dýravinur. Já, núna á ég á tvo hunda og þrjá ketti. Svo er ég líka með shar pei tík í pössun þessa dagana.
Hefur þú farið í rúmið með tveimur í einu? Já, Nölu minni og Leylu :) Kemur fyrir að við séum fimm saman í rúminu.
Uppáhalds tónlist ? Ég fýla rapp, techno og margt fleira. Fer bara eftir því hvernig stuði ég er í á hvað ég er tilbúin að hlusta hverju sinni.
Flottasta sýningarstúlkan? Adriana Lima er mín uppáhalds.
Hvernig mundir þú lifa lífinu ef þú ynnir milljarð? Ég mundi byrja á því að gefa fjölskyldu minni nokkrar milljónir, styrkja gott málefni kaupa mér penthouse-íbúð í New York og aðra hér heima. Ég mundi líka kaupa einhvern geggjaðan bíl og fara til Bandaríkjana og kaupa mér helling af fötum. Svo mundi ég bara einbeita mér að því að njóta lífsins.
ÁÐUR BIRT:
Í hvaða skólum hefur þú verið? Ég hef verið í um tuttugu grunnskólum og síðan Fjölbrautarskóla Suðurnesja.
Við hvað starfar þú núna? Er atvinnulaus í augnablikinu, en hef samt nóg að gera.
Nokkur störf sem þú hefur unnið? Á leikskólum, elliheimilum, kaffibarþjónn og sem pókerdealer, sem var það seinasta sem eg var í, svo eitthvað sé nefnt:)
Óskemmtilegasta starf sem þú hefur unnið? Hmm, líklega leiðinlegast þegar ég var að vinna við þrif.
Draumastarfið? Hef alltaf langað að vera dýralæknir, arkitekt og auðvitað supermodel fyrir Viktoria Secret.
Hvar hefur þú átt heima? Ég er búin að búa alls staðar í Reykjavík, Kópavogi, Sandgerði og svo Reykjanesbæ og bý þar enn og líður bara best þar :)
Hefur þú tekið að þér formennsku í félagi eða nefnd? Nei, það hef ég ekki gert.
Hvaða persónu vildir þú leika í kvikmynd eða á leiksviði? Hmm, ætli það væri ekki í hryllingsmynd eða gamanmynd annars hef ég ekki hugmynd.
Hver er mesta tímasóunin sem þú minnist að hafa staðið í? Horfa á myndina Gone. Mesta tímasóun sem ég man eftir.
Hverju vildir þú helst geta breytt í lífi þínu? Ég mundi ekki breyta neinu sem ég man eftir á bestu foreldra og vini og er rosalega ánægð með lífið.
Hatar þú einhvern? Ég hata engan. Eyði ekki orku í það.
Hver er þinn helsti veikleiki? Ég er þrjósk, sem er líka kostur. Svo hef ég mikla fullkomnunaráráttu. Mætti vera smá kærulaus stundum. Svo er ég heví morgunfúl.
En kostur? Ég er heví góð í rúminu, hehe.
Er lottóvinningur eða annar happdrættisvinningur inni í fjárhagsáætlun þinni? Nei, hef einu sinni keyft mér lottómiða en vann ekkert. Á því eru svo litlar líkur. Væri ekkert á móti því að landa eins og einum stórvinningi.
Gagnlegasta námskeið eða fyrirlestur sem þú hefur farið á? Fór á námskeið hjá Eskimo. Svo hef ég farið á tölvu-, dans- og skyndinámskeið.
Eftirminnileg bók? Dauðarósir. Mér finnst Arnaldur Indriðarson mjög góður höfundur. Ég er ekki mikið fyrir að lesa, en þetta er svona sem mér dettur í hug núna.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.