AFTUR Á FORSíÐU PÍURNAR
Þeir eru margir drengirnir sem heilluðust af leikkonunni Shannon Elizabeth þegar hún birtist í sinni fyrstu kvikmynd, gamanmyndinni American Pie árið 1999 og síðan Scary Movie. Enda snotur stúlka á ferð og engin tepra. Áður en hún snéri sér að kvikmyndaleik hafði hún notið mikillar velgengni sem tískufyrirsæta.
Því er Samúel að minnast á stúlkuna hér, að hún varð 36 ára í gær, 7. september. Hún er fædd og uppalin í Huston, Texas og stefndi ötullega að atvinnumennsku í tennis þegar fyrirsætustörfin yfirtóku skyndilega tíma hennar og kvikmyndaleikur í framhaldi af því.
Shannon Elizabeth sást síðast í myndinni Deal, sem gerð var í fyrra, en fyrr á þessu ári lék hún í mynd sem ber nafnið Night of the Demons, þokkalegri hrollvekju sem frumsýnd var vestahafs nýverið. Síðasta áratuginn hefur hún líka leikið í ýmsum sjónvarpsþáttum.
Shannon var með leikaranum og kvikmyndaframleiðandanum Joseph D. Reitman í tíu ár, þar af þrjú ár í hjónabandi. Þau skildu að skiptum 2005. Síðan hefur hún fyrst og fremst átt spilafélaga, en hún hefur gjarnan verið kölluð stjarnan í pókerspili.
Annað áhugamál hennar er dýravernd og hefur hún iðulega lagt sitt af mörkum til að vekja athygli á þeim málaflokki opinberlega og safnað fé til hinna ýmsu félaga- samtaka sem vinna að dýravernd.
Valin sýnishorn úr kvikmyndunum sem Shannon Elizabeth hefur leikið í.
Nokkrar undurfagrar ljósmyndir af Shannon ...
Hér fyrir neðan er vídeó sem sýnir Shannon í myndatöku fyrir forsíðu MAXIM.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.