Bahama: Ungfrú Alheimur krýnd í nótt
Ingibjörg Egilsdóttir var fulltrúi Íslands í keppninni Ungfrú Alheimur 2009. Keppnin fór fram á Paradísareyju, sem er ein af eyjum Bahama. Ingibjörg þótti standa sig afar vel og naut mikillar athygli fjölmiiðla og í netheimum. Meðal annars sagðist Playboy á netsíðu sinni vilja sjá hana í fyrsta sæti. Ingibjörg komst í fimmtán stúlkna úrslit, en náði ekki áfram í næsta niðurskurði.
Það var fulltrúi Venesúela, Stefania Fernandez, sem krýnd var Ungfrú alheimur. Í næstu sæti röðuðust stúlkurnar frá Dóminíska lýðveldinu, Kosovo, Ástralíu og Puerto Rico. Venesúela átti einnig sigurvegara keppninnar í fyrra.
Ingibjörg er Seyðfirðingur og segist eiga ættir sínar að rekja til Austfjarða langt aftur í ættir. Ingibjörg er fædd 21. mai 1985.
„Unnusti minn til fjögurra ára heitir Guðmundur Oddgeir Þorgeirsson og er frá Höfn í Hornafirði. Ég er búsett á Höfn og starfa þar í apóteki Lyfu," upplýsir Ingibjörg. „Ég er metnaðarfull og lífsglöð stúlka sem stefni hátt í lífinu. Draumurinn og markmiðið er að vera verkfræðingur."
Rómantískt kvöld segir hún vera kvöld með ástinni sinni. Þegar hún er spurð að því hvern hún vilji helst hitta svarar hún: „Jón Gnarr í gervi Georgs Bjarnfreðarsonar."
Ingibjörg var kosin Fegurðardrottning Austurlands í fyrra. Hún komst síðan í annað sæti keppninnar um titilinn Fegurðardrottning Íslands.
TIL BAKA Á FORSÍÐU VÍDEÓ: INGIBJÖRG Í 90 SEKÚNDUR
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.