Ásdís Rán Gunnarsdóttir prýðir forsíðu júlíheftis búlgörsku útgáfunnar af karla- tímaritinu Maxim. „Þetta er frekar stór áfangi þar sem þetta er talið flottasta karlatímaritið á þessum markaði og margir að bíða eftir blaðinu,” segir Ásdís Rán.
„Myndirnar eru íslenskar og ég kem til með að birta sýnishorn á fansíðunni minni www.facebook.com/asdis.ran og svo birti ég allan myndaþáttinn í FanSpace á www.icelandicbeauty.com og þar er hægt að kaupa mánaðaráskrift af myworld. Einnig kem ég til með að senda nokkur blöð til Íslands fyrir mína stærstu aðdáendur,” segir gyðjan á bloggsíðu sinni.
KLÁR Í CHATTIÐ
Á bloggsíðu sinni segir Ásdís Rán frá því að hún hafi loksins opnað live chattið á síðar nefndu síðunni. „Til að nota það þarf að skrá sig í mánaðaráskrift, sem kostar um 2000 krónur, og þá er hægt að tala við mig beint um hinar ýmsu ráðleggingar varðandi diet, fitness eða hvað sem er milli himins og jarðar. Einnig er hægt að finna þar ýmsar greinar um heilsu og fegurð, nýjar sexy myndir, fréttir, módel-ráðleggingar og margt fleira!! Þetta er eitthvað sem ég er að prufa svo endilega skráið ykkur ef þið viljið halda þeim möguleika opnum að fá ráðleggingar beint frá mér,” segir Ásdís Rán á bloggsíðu sinni.
ÁSDÍSI BERST MIKILL TÖLVUPÓSTUR
„Því miður hef ég ekki tíma til að svara persónulega öllum þeim tölvupósti sem ég fæ daglega heldur finnið þið upplýsingarnar þarna á einum stað og getið spjallað við mig líka vikulega!”
Smella hér til að sjá heimasíðu Arnolds.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.