Fyrsti Afríkunegrinn hefur nú verið kjörinn Leikfélagi ársins af Playboy, en þetta er í 50. sinn sem karlaritið velur sigurvegara úr hópi opnustúlkna tíma- ritsins. Sú útvalda er 27 ára og heitir Ida Ljungquist. Nafnið er ekki beint úr frumskógum svörtustu Afríku. Skýringin er sú að faðir hennar er sænskur. Móðir hennar kemur hins vegar frá Tanzaniu.
Það var Leikfélagi ársins 2007, Sara Jean Underwood , sem kom auga á hana við afgreiðslustörf í tískuversluninni Bebe, tískuverslun hinna ríku og frægu við Rodeo Drive í Beverly Hills, og kom henni á framfæri við Holly Madison, sem þá var ljósmynda- ritstjóri Playboy og ein af ástmeyjum Hefners.
Verðlaunaupphæðin sem Ida hlaut er ríflega 12 milljónir króna og glæsibifreið af gerðinni Mazda R6. Verðlaunaafhendingin fór fram í heljarinnar veislu að hætti Playboy á Palms Resorts í Las Vegas.
Ok, minna mas, meira af myndum. Til að sjá hvað Leikfélagi ársins 2009 hefur til að bera smellir þú á tenglana hér fyrir neðan:
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.