SKJÁR 1 Ef matarást dregur ekki lesendur Samúels að sjónvarpsskjánum, þegar hin ný þáttasería Top Chef er á dagskrá Skjás 1, er vel líklegt að fegurð- arskynið geri það. Nú er það nefnilega hin fagra Padma Lakshmi sem er við stjórnvölin. Þessi indversk-ameríska kona er því sem næst jafnaldra Samúels. Á sem sé ekki langt í fertugt.
KOMST Í UPPÁHALD HJÁ
TÍSKUKÓNGINUM RALPH LAUREN
Lakshmi var tvítug þegar hún hóf fyrsætu- ferilinn og var gjarnan kölluð fyrsta indverska ofurfyrrsætan. Hún var uppgötvuð á Spáni, komst í uppáhald hjá Ralph Lauren og hafði nóg að gera í París, Mílanó og New York um langt skeið eða þar til hún hóf kvikmyndaleik og síðan gerð matreiðsluþátta fyrir sjónvarp.
Fyrsti sjónvarpsþátturinn hét The Melting Pot og var sýndur á sjónvarpsstöðinni Food Network. Síðan tók við þátturinn Planet Food á sjónvarpsstöðinni Discovery og nú er það Top Chef á sjónvarpsstöðinni Bravo TV, sá þáttur sem Skjár 1 er byrjaður að sýna. Fimmtán kokkar hefja leikinn og í hverri viku þurfa þeir að sýna snilli sína og matreiða gómsæta rétti.
VANN TIL VERÐLAUNA FYRIR SÍNA FYRSTU MATREIÐSLUBÓK
Lakshmi hefur stýrt Top Chef í rúm þrjú ár, en þáttaraðirnar eru teknar upp hver í sinni borginni í Bandaríkjunum. Um þessar mundir er Lakshmi við tökur í New York.
Þættirnir eru teknir upp í törnum og þess á milli segist Lakshmi einkum verja tíma sínum í ræktinni til að ná af sér aukakílóunum sem hún segir safnast utan á sig meðan á matreiðslunni stendur. En hún notar líka tímann til að skrifa og hefur m.a. skrifað fjölda greina um mat í blöð eins og Vogue, Gourmet og Harpers Bazaar og fastar greinar í New York Times dagblaðið. Auk þess hefur hún gefið út matreiðslu- bækur og vann strax til verðlauna fyrir fyrstu bókina.
Þá má geta þess að Lakshmi hefur einnig haslað sér völl á sviði skartgripagerðar og kynnti sína fyrstu skartgripalínu árið 2007. Kosta gripirnir allt frá jafnvirði 70 til 700 þúsunda króna íslenskra. Til að skoða skartgripina smellir þú HÉR
Til að sjá flottar myndir af þessum kokki án klæða smellir þú HÉR
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.