Nú segist hinn 83ja ára gamli Hugh Hefner vera of upptekinn af vinskapnum við nýju kærusturnar til að geta gefið sér tíma til sakna hinna fráfarandi; Holly Madison, Kendru Wilkinson og Bridget Marquardt.
NENNTI EKKI AÐ KLÚÐRA
ÞRIÐJA HJÓNABANDINU
Hefner segir samband sitt við Holly hugsan- lega hafa getað endað með hjónabandi ef hann væri ekki tvígiftur og hjúskaparárin hafi ekki akkúrat verið mestu hamingju- stundirnar í lífi hans. „Ég nennti ómögulega að standa í að klúðra því þriðja,” segir hann, en bætir því við að hann sé viss um að Holly hefði orðið hin ágætasta eiginkona.
Holly hefur um skeið búið með rokkaranum Chris Angel, en íslenskum sjónvarps- áhorfendum gafst tækifæri til að sjá nokkra þætti þar sem hann sýndi margvísleg- ustu töfrabrögð. Á gamlársdag sást parið skoða demantshringa í skartgripaverslun í Las Vegas og á Angel að hafa borið þá upp bónorð. Holly mun ekki hafa svarað. Síðustu níu dögum janúarmánaðar vörðu þau á sólbaðsströnd í Mexíkó.
Kendra Wilkinson er trúlofuð Hank Baskett, stjörnu úr ameríska fótboltanum, en ekki er Samúel kunnugt um að Bridget Marquard hafi nælt sér í nýjan eftir að hún yfirgaf Hefner. Hins vegar er hún þegar komin í nýja þáttaröð, sem hún stýrir sjálf. Þar munu vera á ferðinni þættir um æsilegustu sólarstrendur heims. Ekki mjög leiðinlegt starf!
Þú getur kynnt þér fyrirsætuhæfileika fráfarandi vinkvenna Hefners með því að SMELLA HÉR
KÆRUSTURNAR KRINGUM TVÍTUGT - BÆTIST SÚ FJÓRÐA Í HÓPINN?
Hugh Hefner kynntist hinum 19 ára gömlu tvíburusystrum Karissu og Kristinu Shannon þegar þær komu í prufumyndatökur fyrir 55 ára afmælisrit Playboy fyrr í vetur.Skömmu síðar flutti þriðja ljóskan einnig inn á herragarðinn. Hún er 22ja ára og heitir Crystal Harris. Vinskapur hennar við ritstjór- ann hófst í Hrekkjavökuteiti á herragarðinum.
Hvort rétt sé að fjórða stúlkan muni fljótlega bætast í hópinn svarar Hefner: „Það er engin sérstök í sigtinu, en það er ekki útilokað. Ég er vissulega sprækur, en þó ekkert í líkingu við það þegar ég átti sjö kærustur.”
Þú getur horft á viðtal sjónvarpsstöðvarinnar E! með því að SMELLA HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.