Tíu milljónir lesenda vefsíðunnar ASKMEN.COM hafa tjáð sig og ljóst er orðið hvaða kona karlmönnum er helst að skapi. Í fyrra var það leikkonan Katherine Heigl (Greys Anatomy) en núna er það Eva Mendes og öðru sæti situr Megan Fox, en báðar eru þær leikkonur. Í þriðja sæti er aftur á móti ofurfyrirsæta, Marisa Miller heitir hún.
Lögð var áhersla á að karlmenn horfðu framhjá fegurðinni og gæfu gáfum kvenfólks- ins þeim mun meiri gaum, sem og gletni, metnaði og útgeislun. Samúel á bágt með að trúa því á nokkurn karlmann að hafa svindlað í atkvæðagreiðslunni og látið kyn- þokka hafa áhrif á sig við valið, en það er skemmtilegt tilviljun hvað 99 eftirsóttu stu konur heims eru allar kynþokkafullar.
ÖFUNDAR KATE WINSLET AF HLUTVERKUNUM - OG HUGREKKINU
Eva Mendes, sem er 34. ára, sigraði með miklum yfirburðum og ritstjórar askmen.com gleyma sér sjálfir er þeir tjá sig um þessa súperkonu og segjast bókstaflega ekki getað haft af henni augun. Sé þvílíkt augnayndi.
Leikkonan viðurkennir að sér þyki mikið til aðdáunarinnar koma, en segist þó mikið fremur vilja vera metin sem hæfileikarík leikkona en kyntákn. Sjálf segist hún vera einlægur aðdáandi Kate Winslet, sem sópar nú að sér verðlaunum og tilnefningum til kvikmyndaverðlauna. „Ég hefði viljað getað stolið af henni hlutverkunum, hverju einu og einsta,” segir Mendes. „Það er eins og hún geti ekki gert mistök. Hún er stórkostleg. Ég dáist líka að hugrekki hennar þegar kemur að nektarsenum. Hún hikar ekki við að koma fram kviknakin í hverri myndinni á fætur annari. Ég gæti þetta ekki.”
HÁTTAÐI SIG FYRIR PETA
Mendes, sem hefur ekki þurft að kvarta undan skorti á kvikmyndatilboðum, hefur verið fremur tepruleg við kvikmyndaleik, en taldi það hins vegar ekki eftir sér að hátta sig úr hverri spjör í þágu auglýsingaherferðar dýraverndunarsamtakanna PETA.
Hvaða karlmaður skildi nú helst heilla eftirsóttasta kvenkost heims? Það stendur ekki á svari: „Liam Gallagher í hljómsveitinni Oasis er einn af kynþokkafyllstu karlmönnum heims,” segir Eva Mendes, en tjáir sig ekki um hvort hún hafi haft fyrir því að meta metnað, gletni og gáfur mannsins …
HVAÐ TEFUR HANDRITAHÖFUNDANA?
Það kemur sjálfsagt ekki nokkrum manni á óvart að hin 22ja ára gamla Megan Fox skuli hafa komist þetta nálægt því að sigra keppn- ina þegar haft er í huga, að lesendur karla- tímaritsins Maxim völdu hana kynþokkafyllstu konu heims í fyrra. Hún öðlaðist frægð fyrir leik í sjónvarpsþáttum árið 2004, en hérlendis er hún kvikmyndahúsagestum sennilega eftir- minnilegust fyrir leik sinn í myndinni Trans- formers sem gerð var árið 2007.Ólíkt Evu Mendes kveðst Megan Fox ekkert hafa á móti því að sýna sig nakta á hvíta tjaldinu ef hlutverkið krefðist þess. Hún væri þess vegna reiðubúin til að vera allsber út alla myndina ef á þyrfti að halda. Góðar fréttir, strákar! Hvað eru helv…. handrita- höfundarnir að gaufa í Hollywood?
HVAÐA GÁFNAPRÓF STUDDUST KJÓSENDUR VIÐ?
Samúel efast ekki eitt augnablik um að kjós- endur hafi haft gáfur, gletni og metnað kven- fólksins í huga þegar þeir gerðu það upp við sig hvaða kvenmann þeir vildu helst komast í tæri við. Hvernig þessir kostir voru þeim ljósir þegar þeir greiddu ljósmyndafyrirsætunni Marisu Miller atkvæð í þriðja sætið veit Samúel ekki, en svo mikið er víst að hann gæti alveg hugsað sér að horfa á hana tala um sjálfvalið efni heilt kvöld.
ER EIN TEKJUHÆSTA FYRIRSÆTA HEIMS
Marisa Miller náði að vekja á sér athygli nánast á táningsaldri árið 1998 þegar hún birtist nakin á síðum tímaritsins Perfect 10. Síðan hafa myndir verið að birtast af henni í Sport Illustradet, Shape, GQ, Maxims og virtum tískublöðum eins og t.d. Vogue. Mun hún vera á meðal tekjuhæstu ljósmynda- fyrirsæta heims þessa stundina og ekki spillir nýafstaðin vinsældakosning AskMen.com fyrir frama hennar og vinsældum.
Viljir þú sjá listann yfir 99 eftirsóttustu konur heims SMELLIR ÞÚ HÉR.
Önnur myndasyrpa sem sýnir allar stúlkurnar 99. SMELLTU HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.