FLUG OG PYLSA Í VERÐLAUN
Atkvæðaseðill fylgdi Samúel þegar allir þátttakendurnir í keppninni um titilinn ungfrú Hollywood 1980 höfðu verið kynntir á síðum blaðsins og í Hollywood.
Kosningin var ekki leynilegri en það, að þeir sem vildu taka þátt í smá happdrætti, gátu skrifað nafn sitt og heimilisfang á seðil- inn. En það var úr vöndu að ráða þegar kom að því að ákveða hver verðlaunin skildu vera. Samúel þótti alltof venjulegt að bjóða uppá tveggja til þriggja vikna sólarlandaferð. Að lokum var ákveðið að bjóða vinnings- hafanum upp á eina með öllu úr pylsuvagninum á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn. Flug fram og til baka ásamt næturgistingu eina nótt − auk kvöldverðar á fínum veitingastað um kvöldið.
Verðlaunin þóttu athyglisverð í meira lagi og var sagt frá þeim í öllum dagblöðunum.
Af þessu tilefni var pylsuvagn Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar dreginn úr Austurstræti upp í Ármúla og stillt upp fyrir framan Hollywood er krýningarhátíðin var haldin. Þar buðu Ásgeir og SS upp á pylsur og kók eins og menn gátu í sig látið undir dynj- andi lúðrablæstri Lúðrasveitar Reykjavíkur. Nokkrum dögum síðar dró svo nýkjörin Holly- wood-drottning úr aðsendum atkvæðaseðlum.
Upp kom nafn átján ára Reykja- víkurstúlku, Írisar Hreinsdóttur. Það kom ekki Samúel á óvart, að vinningshafinn væri af veikara kyninu. Stelpurnar voru mikið öflugri í kosningaþátttökunni en strákarnir.
Efnt var til Hollywood-keppninnar að frumkvæði Samúels árið 1979. Auður E. Guðmundsdóttir hlaut titilinn Ungfrú Hollywood og fékk að launum lúxusferð til Hollywood í Kaliforníu. Árið eftir veittu lesendur Samúels Valgerði Gunnarsdóttur titilinn og voru verðlaunin þá orðin enn veglegri vegna þeirrar athygli sem keppn- in hafði náð að vekja. Auk þess að fá afhentan farrseðil til Ibiza ók Valgerður heim eftir krýninguna á glænýjum, loga- gylltum Mitsubishi Colt.
MEÐ COLTINN UPPÁ HILLU
„Ég átti bílinn í rúmlega fjögur ár og var hæstánægð með hann,” rifjaði Valgerður upp í samtali við Samúel fyrir skemmstu.
„Er raunar enn með einn Colt á heimilinu í dag. Hann er uppi á hillu. Ég fékk nefnilega að eiga gyllta leikfangabílinn sem var nákvæm eftirmynd verðla unabílsins. Líkanið notaði hönnuður skreytinganna á Coltinum til að máta skreytingarnar á.”
DROTTNINGIN Á ÓLAFSVÍK
Valgerður átti heima í foreldrahúsum í Hafnafirði þegar hún var kjörin Ungfrú Hollywood. Hún segist hafa misst talsvert úr námi meðan á keppnishaldinu stóð fram eftir vetriAð keppni lokinni hafi hún því ákveðið að fara bara að vinna en taka svo þráðinn uipp að nýju um haustið og þá var námið tekið föstum tökum.
Vorið eftir kláraði hún svo stúdentspróf og um haustið flutti hún ásamt kærasta sínum til Ólafsvíkur. Kærastinn, Stefán Snær Konráðs- son, fékk vinnu við íþróttakennslu og þjálfun og Valgerður fékk við vinnu í Lands- bankaútibúinu á staðnum.
„Jú, jú, það vakti heilmikla athygli að Ungfrú Hollywood væri sest að í Ólafsvík. Fólk horfði heilmikið á mig. En það vandist. Eins gott, því maður var innilokaður í snjó út mest allan veturinn þarna. En ég kunni vel við mig á Ólafsvík og hefði vel getað hugsað mér að vera þar tvö ár í viðbót,” segir Valgerður. En hún og Stefán fluttu aftur suður eftir eitt ár og þá fór hún að vinna í SPRON. Í dag vinnur er hún farin að vinna hjá Landsbankanum á nýjan leik.
FYRSTA HOLLYWOOD-DROTTNINGIN TIL AÐ VERÐA MÓÐIR
Það var hins vegar ekki við það komandi að ljósmynda hana eða tvítuga systir hennar í tilefni af þessari upprifjun Samúels. Þið verðið því bara að hafa orð Samúels fyrir því að þær eru bráðfallegar báðar tvær – enda hafa báðar verið beðnar um að taka þátt í Fegurðarsamkeppni Íslands. Sú eldri varð raunar við þeirri bón en systurna eru sammála um að þar hafi punkturinn verið settur aftan við feril heimilisfólksins í samkeppnum. Ekki vitum við hvort sautján ára bróðir þeirra hafði atkvæðisrétt í þeirri ákvörðunartöku.
SÖNGLEIKUR UM VALGERÐI Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Samúel spurði Valgerði að því hvort hún hafi séð söngleikinn um hana í Þjóð- leikhúsinu, en söngleikurinn Ástin er diskó, lífið er pönk fjallar um það þegar Ungfrú Hollywood fer á nýja verðlaunabílnum sínum frá Heklu niður í bæ og kynnist þar pönkara. Jú, Valgerður hafði farið og séð verkið ásamt dæturum sínum og þær allar skemmt sér hið besta. „Mér fannst pönkinu að vísu gert hærra undir höfði en það átti skilið. Í minningunni voru pönkararnir fámennur hópur sérvitringa á meðan diskóið var alls ráðandi,” sagði Valgerður.
HINAR STELPURNAR Í HOLLYWOOD-KEPPNINNI 1980
Valgerður segist aðeins eiga skemmtilegar minningar frá Hollywood-árunum. „Ég man ekki eftir neinu öðru en skemmtilegheitum í sambandi við keppnina og allt það sem henni fylgdi,” sagði Hollywood-drottningin 1980 að lokum.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.