Samúel fékk Njarðvíkur- stúlkuna Margréti Örlygs- dóttur, sem þá var 18 ára, til að fara til Atlantic City árið 1984 og vera þar fulltrúi Íslands í keppninni One Million Dollar Pet of the Year sem tímaritið Penthouse stóð fyrir með miklum glæsibrag. Keppninni var sjónvarpað víða um heim og vakti gríðarlega athygli og þá ekki síst fyrir að verðlaunin voru ein milljón dollara.
Enn er sagt frá því á innsoginu þegar verðlaun í amerískri söngva- eða spurn- ingakeppni eru ein milljón dollara. Sú verðlaunaupphæð setur ekki Samúel úr jafnvægi. Það er að verða liðinn aldar- fjórðungur síðan Samúel sendi Suður- nesjastúlku, Margréti Örlygsdóttur, vestur um haf til að vera fulltrúi Íslands í feg- urðarsamkeppni á vegum Penthouse tíma- ritsins. Keppt var um milljón dollara sem svaraði þá til 30 milljóna íslenskra króna og á þeim tíma kostaði eintakið af Samúel kr. 65 en mundi kosta núna á bilinu tíu til fimmtán sinnum meira. Reiknaðu nú!
“Ég tók fyrst og fremst þátt í keppninni ævintýranna vegna. Og þetta var sko sann- kallað ævintýri,” sagði Margrét í viðtali við Samúel. “Ein glæsilegasta veislan var haldin í húsi Bob Guccione, eiganda Penthouse,” sagði hún. “Reyndar er réttara að tala um höll en hús í þessu tlfelli. Allt var þakið marmara og þjónn á hverjum fingri. Þarna var líka sundlaug innandyra. Algjört æði.”
LÍKLEGA ÍBURÐARMESTA FEGURÐARSAMKEPPNI SÖGUNNAR
Veislan sjálf á úrslitakvöldinu stóð þó mun lengur og var gríðarlega íburðarmikil. Voru fjölmiðlar á einu máli um að þeir hefðu ekki orðið vitni að glæsilegri fegurðarsamkeppni og þótti íburðurinn fram úr hófi á köflum.
ANDY GIBB STÖÐUGT AÐ FÍFLAST
“Miss World tók þátt í kynningunni á okkur keppendunum, en Andy Gibb í Bee Gees var aðal kynnir og skemmtikraftur kvöldsins. Við stúlkurnar kynntust honum vel á æfingum og eins mörgum öðrum frægum skemmtikröftum sem komu fram eða sátu í dómnefnd eins og t.d. sjálfum Rocky, Sylvester Stallone," rifjaði Margrét upp í viðtalinu við Samúel.
“Andy Gibb var sífellt að fíflast á æfingum fyrir úrslitakvöldið,” sagði Margrét. “Hann gerði mikið grín að sjálfum sér og okkur. Þegar við vorum ekki að æfa átti hann það til að setjast við píanóið og syngja eitthvað og við sungum oft með.”
"MARGRÉT HREIF HINAR STÚLKURNAR AUÐVELDLEGA MEÐ SÉR"
“Margrét var hreint stórkostleg,” sagði Griff O’Neal, framkvæmdastjóri Penthouse-keppn- innar, í viðtali við Samúel síðar. “Hún var svo hress og jákvæð að hún hreif allar hinar stúlkurnar auðveldlega með sér.”
TVÆR GÓÐAR SAMAN
Margrét deildi herbergi með ítalska keppand- anum, sem hún kvað hafa verið afburða skemmtilega. “Hún talaði ekki boffs í ensku en átti þrátt fyrir það auðvelt með að koma öllum til að hlæja. Það spáðu henni margir sigri, en hún komst ekki nema í fimmta sæti. Trúlega vegna málakunnáttunnar, eða öllu heldur skorti á henni.”
Margréti hafði hins vegar náð góðum tökum á enskunni er hún dvaldi í Bandaríkjunum í hálft ár nokkru áður.
MARGRÉT Í VIÐTALI Á CBS
Æft var mestallan daginn fram að úrslitunum og hófust æfingarnar snemma dags þrátt fyrir mikil veisluhöld sem stóðu oft langt fram á nótt. Fjölmiðlar fylgdust mjög vel með stúlkunum og tóku við þær mörg viðtöl. Meðal annars var rætt við Margréti fyrir útsendingar CBS sjónvarpsstöðvarinnar.
Verðlaunin voru þau glæsilegustu sem veitt hafa verið í fegurðarsamkeppni í heiminum fyrr og síðar. Stúlkan sem bar sigur úr bítum fékk pelsa, skartgripi og dýrindis útgáfu af Rolls Royce að ógleymdum mörghundruð þúsund dollurum í reiðufé.
SAMÚEL SKÚBBAÐI PENTHOUSE ...
Danska stúlkan sem sigraði, Jeanette Dyrkjær, hafði prýtt forsíðu Samúels árið áður en hún tók þátt í keppninni. Sömu sögu er að segja af keppandanum frá Svíþjóð, Carine Lideholm. Það má því segja að þar hafi Samúel skúbbað Penthouse rækilega. Líklega rétt að fara í myndafælinn og draga fram myndirnar sem við birtum í Samúel 1983 og lofa þeim að njóta sín á nýjan leik. Snotrustu nektarmyndir, því megið þið trúa. Það skal hins vegar tekið fram, að í tenglsum við Penthouse-keppnina í Atlantic City fóru ekki fram neinar nektar- myndatökur.
ÞJÓÐÞEKKTIR BRÆÐUR MARGRÉTAR
Að lokum sakar ekki að geta þess, að Margrét á þjóðþekkta bræður. Tveir þeirra eru þekktir úr íþróttaheiminum, þeir Teitur og Sturla Örlygssynir, en þriðji bróðirinn er þekktari úr heimi stjórnmálanna. Sá heitir Gunnar og er fyrrum þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Í þann flokk kom hann úr Frjálslynda flokknum.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.