Bandarískar sjónvarpsstövar leggja mikið upp úr því að fastagestir á skjánum séu fríðir sínum. Það trekkir. Hvað skildu t.d. þær stöllurnar Rosalyn Sanchez og Poppy Montgomery eiga stóran þátt í vinsældum sjónvarpsþáttarins Sporlaust (Without a Trace) sem Ríkissjónvarpið sýnir á mánudagskvöldum í vetur? Samúel hefur sagt frá högum þeirrar fyrrnefndu ( HÉR ) og vill nú leiða lesendur í allan sannleika um Poppy.
Hún er fædd í Sidney í Ástralíu 19. Júní 1972. Hún heitir fullu nafni Poppy Petal Emma Elizabeth Deveraux Donahue, hvorki meira né minna. Móðir hennar er markaðsfræðingur en faðir henna veitingamaður. Foreldrarnir skildu þegar hún var lítil og gengu bæði í hjónabönd að nýju sem leiddi til þess að hún eignaðist átta hálfsystkini. Fjögur þeirra bera blómanöfn líkt og hún; Rosie Thorn, Lily Belle, Daisy Yellow og Marigold Sun.
HEILLUÐ AF MARILYN MONROE
Frá unga aldri var Poppy heilluð af kvikmyndaleikkonunni Marilyn Monroe og las allar bækur sem hún komst yfir um þá amerísku goðsögn. Aðeins fjórtán ára að aldri ákvað Poppy að hætta í skóla. Hún vann á veitingastað föðus síns þar til hann rak hana þar eð honum þótti hún ekki standa sig nægilega vel í framreiðslustörfunum.
FJÖGUR ÁR Á LEIÐ ÚR SKÓLA TIL HOLLYWOOD
Sextán ára yfirgaf Poppy Ástralíu og þvældist um í tvö ár. Átján ára endaði hún í Bandaríkj- unum eftir að hafa elt þangað amerískan skiptinema sem hún hafði komist í kynni við í Evrópu og orðið hrifin af. Það slitnaði fljótt upp úr sambandi þeirra og Poppy hoppaði upp í Greyhound rútu á Flórída og fór með henni til Los Angeles til að freista gæfunnar í draumaborginni þar sem Monroe hafði gert það svo gott forðum daga.Á leiðinni ákvað hún að taka upp eftirnafn móður sinnar, Montgomery. Í Los Angeles fann hún bók sem bar nafnið Hvernig á að meika það í Hollywood. Uppnumin af boð- skap bókarinnar æfði hún amerískan fram- burð af kappi, þræddi áheyrnarprufur kvikmyndaveranna og sendi andlitsmyndir af sér til Bob McGowan, fyrrum umboðsmanns Juliu Roberts.
ÓBIRT AUGLÝSING DUGÐI
McGowan var tregur í fyrstu en sendi Poppy loks til annars umboðsmanns sem tókst að útvega henni hlutverk í sjónvarpsauglýs ingu. Auglýsingin fór að vísu aldrei í loftið en þetta reyndist nóg til að koma Poppy af stað. Árið 1965 fékk hún hlutverk í kvikmyndinni Devil in a Blue Dress þar sem Denzel Washington var í aðalhlutverki, sem aftur leiddi til þess að hún fékk það sama ár gestahlutverk í tveimur vinsælum sjónvarpsþáttum; Party of Five og NYPD Blue. Til að hafa ofaní sig og á vann Poppy svo jafnframt við afgreiðsustörf í einni af verslunum GAP.
Árið 1996 landaði hún svo föstu hlutverki í sjónvarpsþáttunum Relativity. Þó framleiðslu þeirrar þáttaraðar væri hætt ári síðar var Poppy komin á skrið. Hún fékk fyrsta kvikmyndahlutverkið 1998, í myndinni Dead Man on Campus og árið eftir lék hún í Eddie Murphy-myndinni Life. Í kjölfarið fylgdi hlutverk í myndinni This Space Between Us.
HLUTVERK LJÓSKUNNAR KOM HENNI Í SPORLAUST
Það má svo segja 2001 haf hún fengið sitt draumahlutverk þegar henni var falið að leika Marilyn Monroe í sjánvarpsþáttaröðinni Ljóskan. Til að passa í hlutverkið hætti Poppy allri líkamsrækt til að ná holdarfari þokka- gyðjunnar.
Vegna góðrar frammistöðu sinnar í Ljóskunni bauðst Poppy eitt aðalhlutverkanna í hinni vinsælu sjónvarpsþáttaröð Without a Trace og gerði CBS ekki einu sinni kröfu til þess að hún gengi fyrst í gegnum áheyrnar- prufur.
Poppy hefur verið að leika í sjónvarps- myndum samhliða því að gegna hlutverki rannsóknarlöggunnar. Hún hefur jafnframt komið fram í fleiri viðtalsþáttum en margar aðrar Hollywood-stjörnur geta státað af. Hún nýtur líka mikilla vinsælda hjá ljósmyndurum.
Að lokum skal upplýst, að hún Poppy Petal Emma Elizabeth Deveraux Donahue hefur gaman af útreiðum, ljósmyndun, snjóbrettabruni og ferðalögum. Til að ná slökun og andlegu jafnvægi leggur hún stund á jóga.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.