Samúel hefur fengið margskonar ábendingar um efni af ólíkum toga. Fjöldi karlmanna hefur t.d. látið fljóta með óskir um kynningu á kynþokkafullum konum bæði innlendum og erlendum.
Meðal þeirra erlendu er leikkonan Roselyn Sanchez sem spilar stóra rullu í sjónvarps- þáttunum Sporlaust (Without a Trace) sem Ríkissjónvarpið sýnir á mánudagskvöldum í vetur.
HÓF UNDIRBÚNINGINN KORNUNG
Hún er fædd í San Juan í Puerto Rico 2. apríl 1973 og á þrjá eldri bræður. Ung að árum sýndu hún strax mikinn áhuga á leik og dansi og sló oft og iðulega upp sýningu fyrir fjöl- skyldu sína. Hún hóf nám í ballett fjögurra ára og píanónám sex ára.
Fimmtán ára gömul var hún farin að verða sér úti um hlutverk í tónlistarmyndböndum og auglýsingum, sem leiddi til þess að hún var loks orðin kynnir í afar vinsælum gamanþætti og fékk þar tækifæri til að sýna hæfileika sína sem leikari, dansari og dansahöfundur í þrjú ár.
Engu að síður ákvað hún að hefja nám í markaðsfræði við háskólann í Puerto Rico eins og faðir hennar og bræður. En þetta var ekki köllun hennar í lífinu og eftir að hafa verið þrjú ár við markaðsnám skellti hún aftur skólabókunum.
HÁSKÓLANÁM EKKI HENNAR TEBOLLI
Árið 1991, þá 18 ára gömlu, flutti hún til New York þar sem hún lagði stund á dans, söng og leiklist. Hún snéri aftur til Puerto Rico ári síðar og náði að næla sé þar í lítið hlutverk í kvikmyndinni Capain Ron, sem var að hluta til tekin á eyjunni. Aðalleik- ararnir voru þeir Martin Short og Kurt Russell.
KJÖRIN FEGURÐARDROTTNING
Ekki spillti fyrir frekari leit að frama, að hún var kjörin fegurðardrottning Ppuerto Rico árið 1993 og í framhaldi af því sigraði hún í keppninni Miss American Petite. Sigurinn jók verulega á frægð hennar og hvert karlatímaritið á fætur öðru hefur æ síðan sett hana á lista yfir fegurstu konur heims.
BOLTINN FÓR AÐ RÚLLA
Athyglin leiddi til þess að hún fékk ýmis hlutverk í bæði sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, en það var ekki fyrr en hún hafði leikið í kvikmyndinni Rush Hour 2 árið 2001 sem hún vakti almennilega athygli. Árið eftir lék hún með í kvikmyndinni Boat Trip á móti grínleikararnum Cuba Gooding jr. Hefur mörgum manninum orðið sérstaklega minnisstætt er hún setti upp í myndinni sýnikennslu þar sem banani lék erótískt hlutverk.Hún gerði stormandi lukku með söng sínum í Boriqueuena árið 2003 og smáskífa með laginu Amor Amor af þeim diski skaust á topp vinsældalista. Myndband með laginu var síðan tilnefnt til latnesku Grammy-verðlaunanna.
TVÆR EÐA ÞRJÁR KVIKMYNDIR Á ÁRI
Næst fór hún með hlutverk Lorena í kvikmyndinni Chasing Papi (2003) þar sem hún lék við hlið Jaci Velasquez og Sofiu Vergara. Kvikmyndirnar sem hún hefur leikið í eru nú orðnar liðlega tuttugu talsins, þeirra á meðal eru myndirnar Edison (2005), Underclassman (2005), Cayo (2005) og The Game Plan (2007). Í þeirri síðastnefndu lék hún ballettkennara. Sama ár var önnur mynd með henni í aðalhlutverki frumsýnd þó hún hafi verið kvikmynduð tveimur árum fyrr. Það er myndin Yellow sem lýsir framadraumum stúlku sem hefur æft ballett frá ungum aldri en verður að horfast í augu við annan raunveruleika en draumarnir snérust um ...
Þessa stundina er Roselyn Sanchez að leika i myndinni Venus & Vegas sem frumsýnd verður í byrjun næsta árs og sömuleiðis er í vinnslu mynd með henni undir nafninu The Purfect Sleep .
Roselyn Sanchez hafði komið fram í ýmsum sjónvarpsmyndaflokkum áður en kom að því að hún fékk hlutverk í Sporlaust (Without A Trace), þeirra á meðal Kojak, American Idol, As the World Turnes og , Fame L.A sem var sýndur í um 80 þjóðlöndum.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.