“Þegar ég lít til baka þá er þetta tímabil í lífi mínu mér mjög minnisstætt. Ég bý vel að þeirri reynslu og sé ekki eftir einni mínútu af mínu lífi í þau ævintýri sem Forsíðutitillinn færði mér,” segir Laufey Bjarnadóttir, sem kjörin var Forsíðustúlka Vikunnar og Samúels árið 1991. Laufey er vafalítið sá þátttakandi í fegurðarsam- keppni á vegum Samútgáfunnar sem upplifði hvað flest ævintýri í framhaldi af þátttöku sinni.
Vikan hafði komist í eigu Samúels fjórum árum fyrr og saman stóðu tímaritin að vali á forsíðu- stúlku ársins. Keppendurnir voru kynntir á síðum tímaritanna og síðan efnt til veglegrar krýningarhátíðar á Broadway 2. janúar 1992 þar sem troðfullt var út úr dyrum.
KEPPTI Í TYRKLANDI
OG BANDARÍKJUNUM
Verðlaunin sem Laufey hlaut voru um hálf milljón í peningum, skarti og öðru fíneríi. En með sigri sinum í Forsíðukeppninni varð Laufey jafnframt fulltrúi Íslands í keppninni um titilinn Queen of Europe 1992 sem fram fór í Tyrklandi. Einnig öðlaðist hún þátttökurétt í keppninni um titilinn Miss Hawaian Tropic, sem fram fór á Daytona ströndinni á Flórída og komu keppendurnir víðs vegar að úr heiminum. Með Laufeyju fóru tvær aðrar íslenskar stúlkur til að taka þátt í keppninni, þær Nanna Guðbergs og Árný Hilmarsdóttir.
LJÓSMYNDATÖKUR OG MTV Í CANNES OG VÍÐAR
“Ævintýraleg ferð okkar stelpnanna til Daytona í kjölfar Forsíðutitilsins er mér í fersku minni,” segir Laufey. Það hefur væntanlega ekki spillt fyrir ánægju hennar, að hún skildi komast í þriðja sæti, en keppendur voru um áttatíu talsins. Verðlaunasæti í Tropic-keppninni leiddi til þess að hún var kölluð síðar í myndatökur á Flórída fyrir dagatal fyrirtækisins. Einnig fór hún á vegum Hawaian Tropic til myndatöku í Aþenu í Grikklandi og á kvikmyndahátíðina í Cannes í Frakklandi þar sem var bæði glaumur og gleði en einnig stöðugar myndatökur fyrir Hawaian Tropic, fjölda tímarita og sjónvarpsstöðva, þar á meðal MTV sjónvarpsstöðina. Voru það ekki fyrstu upptök- urnar fyrir MTV, öðru nær.
STELPUNNI FRÁ ÍSLANDI MJÖG FRAMANDI
"Þær ferðir sem ég fór á vegum Hawaian Tropic voru stórkostleg upplifun fyrir mig svona unga," segir Laufey. "Fyrir utan það að upplifa mjög fallega staði í heiminum, þar sem myndatökur fóru fram í hópi skemmtilegra stelpna, þá voru veislurnar, sem forstjórinn Ron Rice hélt stórstjörnum og VIP liðinu, stelpunni frá Íslandi mjög framandi."
FLEIRI FLOTTAR ÚR SAMÚEL
Samúel mun halda áfram að rifja hér upp kynni sín af fallegustu konum landsins og tékkar á næstu dögum á einni af þeim stúlkum sem bar titilinn Ungfrú Hoillywood, Valgerði Gunnarsdóttur, en hún var fyrsta íslenska fegurðardrottningin til að fá til afnota bifreið sem hluta af sigurlaununum. Glænýjan, gylltan Mitsubishi Colt frá Heklu.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.