Nýjasta Bond-stúlkan, Olga Kurylenko, er vissulega geðþekk leikkona. En stenst hún samanburð við vinsælustu Bond- stúlkurnar úr fyrri kvimyndum um leyni- þjónustumann hennar hátignar? Sjáðu Quantum of Solace og felldu þinn eigin dóm. Hér neðst á síðunni er líka gott vídeó til að auðvelda þér samanburðinn.
Olga Kurylenko er 28 ára gömul og fædd og uppalin í Ukraníu. Hún leitaði frægðar og frama í Frakklandi og varð fljótt vinsæl ljósmyndafyrirsæta. Þar er NEKTIN mjög gjarnan í hávegum höfð.
ÚR FYRIRSÆTUSTÖRFUM Í LEIKLISTINA
Olga varð áður en langt um leið áberandi í auglýsingaherfeðum fyrir Kenzo, Helena Rubenstein og Cavalli. Tískumyndir hafa birst af henni í virtum tískublöðum eins og US Glamour, French Elle, Madame Figaro og Marie Claire.
Það kom að því að hún fékk hlutverk í vinsælli sjónvarpsþáttaröð í frönsku sjónvarpi og þá leið ekki á löngu þar til kvikmyndaleikstjórar sýndu henni áhuga. Mesta athygli hefur hún vakið fyrir leik sinn í hasarmyndinni The Hitman sem frumsýnd var í fyrra. Líttu á ferilinn HÉR .
NEKTIN HEFUR EKKI ORÐIÐ HENNI EKKI FJÖTUR UM FÓT
Olga hefur viðurkennt, að hún beinlínis njóti þess að strippa. Hún hefur verið ófeimin við að tína af sér spjarirnar í ljósmyndastúdíóum jafnt sem kvikmyndaverum. Þannig afþakkaði hún afdráttarlaust að fá staðgengil í nektar- atriðin í The Hitman og afgreiddi þann hluta myndatökunnar jafn smekklega og annað. „Við vorum á ströndinni og þar er maður hvort eð er nánast ekki í neinu. Mig munaði því ekkert um að fara úr því litla sem huldi líkama minn. Sem leikkona þýðir ekki að vera með neinn tepruskap,” sagði hún. Í kvikimyndinni The Serpent árið áður hafði feimni enn síður orðið henni fjötur um fót …En líkami hennar er ekki það eina sem heillar kvikmyndaáhorfendur. Hún getur líka leikið, stúlkan. Fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Ring Finger var hún kjörin Besta leikkona ársins 2006 á The Brooklyn International Film Festival.
KEMST OLGA Á TOPP TÍU LISTANN?
En Samúel spyr á ný: Kemst hún á topp Bond-listann? Þær hafa ekki verið af lakara taginu, stúlkurnar sem fram hafa komið í Bond-myndunum, sem nú eru orðnar tuttugu og tvær talsins. Hver man ekki eftir hinnu kynþokkafullu Ursulu Andress koma seiðandi úr sjónum og ganga hægum skrefum í átt að Bond við strandbarinn í myndinni Dr. No árið 1962? Halle Berry var svo látin leika þann sama leik í Bond- myndinni Die Another Day 40 árum síðar og gerði það líka tignarlega þó að þessi kynþokkafyllsta kona heims í dag hafi ekki komist nema í áttunda sæti Bond-listans.
VINSÆLDALISTINN
Báðar komust þær Andress og Berry að sjálfsögðu á lista yfir tíu þokkafyllstu Bond-stúlkurnar í nýlegri könnun. Í tíunda sæti var Grace Jones, söngkonan dularfulla sem kom hingað forðum daga, í níunda sæti röðuðust þær Lois Maxwell, Caroline Bliss og Samantha Bond sem farið hafa með hlutverk Miss Moneypenny, í áttunda sæti var Halle Berry, Barbara Bach, eiginkona bítilsins Ringo Starr, í því sjöunda, Honor Blackman í sjötta sæti, þá Diana Rigg í fimmta og Famke Janssen í fjórða, Maud Adams í þriðja, Ursula Andress í öðru særi en á toppnum trjónir Eva Green í hlutverki Vesper Lynd í Casino Royale frá 2006.
Þú hefur örugglega gaman af að líta á upprifjunina á myndbandinu hér fyrir neðan.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.