Halle Berry er nýjasta sönnun þess að það er líf eftir fertugt – ef einhver skildi hafa verið að velkjast í vafa um það. Hún er 42ja ára og aðeins hálft ár síðan hún átti sitt fyrsta barn. Hún prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs eins vinsælasta og virtasta karlatímarits Bandaríkjanna, Esquire, í tilefni af því að lesendurnir höfðu valið hana kynþokkafyllstu konu heims. Þá eru aðeins liðnir átján mánuðir frá því hún prýddi forsíðu þess tímarits síðast.
Þetta er ekki fyrsta fegurðarsamkeppnin þar sem leikkonan ber sigur úr bítum. Árið 1985 var kosinn sætsta táingastelpa Bandaríkjanna og ári síðar var hún krýnd Miss Ohio.
FORSÍÐA MEÐ BANDARÍKJAFORSETA VAR FYRIRMYNDIN
Forsíðumyndin á Esquire af Halle Berry er nákvæm endurgerð á forsíðumynd desemberheftis tímaritsins árið 2000 nema hvað þáverandi Bandaríkjaríkjaforseti var í hlutverki fyrirsætunnar í það skipti. Sami ljósmyndari myndaði bæði Clinton og Berry.
LÍKT OG EKKI LÍKT MEÐ CLINTON OG BERRY
Hér verður ekki farið út í að rifja upp helstu æviágrip úr lífshlaupi þeirra tveggja til þessa. Látum bara nægja að pikka upp þá staðreynd að árið 2005, þegar Clinton hlaut mikilsverða viðurkenningu fyrir starfs sitt í þágu baráttunnar gegn alnæmi, varð Berry að sætta sig við að Golden Raspberry verðlaunin komu í hennar hlut fyrir að hafa gert Kattarkonunni í samnefndri kvikmynd svo arfaslök skil að annað hafi ekki sést á hvíta tjaldinu það árið. Hún mætti til athafnarinnar og veitti verðlaununum viðtöku með stólpagóðri ræðu sem Samúel birtir á vídeói hér fyrir neðan.
CLINTON-GATAN OG NÝLENDUVÖRUVERSLUNIN
Esquire bendir líka á að Clinton geti státað af því að gata í Pristina í Kosovo hafi verið skýrð eftir honum á meðan Berry verði að kyngja því að hafa verið skýrð eftir nýlenduvöruverslun í Cleveland.
ÞAÐ LEIKUR CLINTON EKKI EFTIR ...
En tímaritið lætur þess líka getið að Halle Berry hafi verið fyrsta blökkukonan til að vinna Oskarsverðlaun fyrir bestan leik konu í aðalhlutverki. Samúel sæi Clinton fyrir sér reyna að leika það eftir ...?!!
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.