WESLEY SNIPES:
Staurblankur
í steininum
Leikarinn Wesley Snipes, sem þénaði jafnvirði ríflega fjögurra milljarða íslenskra króna á árunum 1999 til 2001 láðist að gera skattyfirvöldum grein fyrir tekjum sínum. Fyrir bragðið var hann dæmdur til þriggja ára fngelsisvistar og hóf hann afplánun um síðustu áramót.
Bankareikningar hinnar föllnu stjörnu eru tæmdir og berst Snipes nú við það með aðstoð lögfræðinga að kría út einhvern framfærslueyri fyrir fjölskyldu sína án árangurs. Segir hann eiginkonu sína og fjögur börn hvorki hafa til hnífs né skeiðar.
Ef einhver útrásarvíkinganna okkar vill koma honum til bjargar má t.d. vekja athygli á því að hús hans á New Jersey er falt fyrir jafnvirði 184 milljóna króna. Þá hefur umboðsmaður hans árangurslaust reynt að landa kvikmyndasamningi með fyrirframgreiðslu til að leikarinn geti staðið fullnaðarskil á eftirstöðvum skulda sinna við skattinn þegar hann losnar úr steininum árið 2013. Skuldirnar eru sagðar tikka á umtals- verðum vöxtum.
BALL ÁRSINS Í VÍN:
Miðaverðið
kr. 414.000
Söngkonan Janet Jackson, leikkonan Brook Shields og Bill Clinton fyrrverandi forseti Bandaríkjanna eru á meðal ríka og fræga fólksins sem streymir nú til Vínarborgar til að taka þátt í samkomunni Life Ball, sem haldin er í nítjánda sinn til styrktar baráttunni gegn alnæmi.
Er þess sérstaklega minnst, að nú eru liðin þrjátíu ár síðan HIV alnæmisveiran uppgötvaðist.
Janet Jackson mun hefja upp raust sína og sömuleiðis söngkonan Natasha Bedingfield. Auk þess má nefna fiðluleik snillingsins Nigels Kennedy.
Life Ball þykir bera af þeim hundruðum stórdansleikja sem haldnir eru í Vín ár hvert hvað varðar íburð og fjárútlát. Klæðnaður stjarnanna á rauða dreglinum á Óskarshátíðinni þykir ekki komast í hálfkvist við glæsileikann þegar gestirnir mæta til kvöldverðarins á Imperial Palace, sem er styrktur af forseta Austurríkis.
Miðaverðið er hátt, kr. 414 þúsund á mann. Þetta er jú fjáröflunardansleikur og í fyrra söfnuðust um 220 milljónir króna til alnæmisvarna í heiminum.
NOV. DES. JAN. FEB. MARS APRÍL MAÍ: 2 - 5 - 6 - 8 - 11 - 14 - 17 - 24
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ
Synir Schwaezenaggers fæddust með aðeins viku millibili haustið 1997. Afurð framhjáhals leikarans kostaði móðurina hjónabandið þremur vikum síðar og nú, 14 árum síðar, er María hans Schwarzenaggers farin að heiman með börnin.
Einn og atvinnulaus
Samúel veltir því fyrir sér hvort hafi valdið fráfarandi ríkissstjóra Kalíforníu meira hugarangri síðustu árin, hrikalegur fjárlagahalli ríkisins eða afurð framhjáhalds hans með þjónustustúlkunni á hemili hans. Svo mikið er víst að Arnold Schwarzenegger treysti sér ekki til að kljást við hvoru tveggja í senn, vandamál ríkisins og tilkynningarskyldu hans sem eiginmanns.
Það var ekki fyrr en Schwartzenegger var staðinn upp úr stóli ríkisstjóra sem hann tók loks á s ig rögg og játaði fyrir eiginkonu sinni, Maríu Owings Shriver, að 2. október 1997, viku eftir að þau hjónin eignuðist yngsta son þeirra, hafi Mildred Patricia Baena, einnig alið honum son.
Kennedyar og kvennamál
Baena var þjónustustúlka í aldarfjórðung á heimili Schwarzeneggers-hjónanna og hafði þá sjálf verið gift í áratug, en skildi við eiginmanninn aðeins þremur vikum eftir barnsfæðinguna.
Maria hefur yfirgefið Schwarzenegger með börnin og í fyrradag, fimmtudag, sendi hún fjölmiðlum stuttorða yfirlýsingu þar sem hún koms svo að orði: „Ég bið fjölmiðla um að sýna okkur skilning. Ég og börnin þurfum næði til að byggja upp líf okkar að nýju og komast yfir áfallið.” María er sem kunnugt er úr Kennedy-fjölskyldunni sem þurfti reglulega að kljást við fjölmiðlafár vegna kvensemi Kennedy-bræðranna.
Einsamall og atvinnulaus
Samúel hefur ekki heyrt hvað Schwarzenegger muni nú taka sér fyrir hendur þegar hann er skyndilega orðinn atvinnulaus og búinn að klúðra hjónabandinu. Það er þó vitað, að hann hefur tekið að sér lítið hlutverk í næstu mynd um Tortímandann.
Frægustu fréttaljósmyndirnar
Hér er vídeó sem sýnir frægustu fréttaljósmyndir síðustu áratuga. Hvað er það sem gerir eina mynd þess megnuga að hreyfa við fólki um víða veröld? Sagt er að ein mynd segi meira en þúsund orð. Sumar þessara mynda segja enn magnaðri sögur.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.