Silja Magg hefur verið valin í hóp 30 bestu ljósmyndara sem fram hafa komið í Bandaríkjunum undanfarið að mati PDN-vefritsins, leiðandi fagtímarits á sviði atvinnuljósmyndunar. Að valinu komu tugir ljósmyndara og ljósmyndaritstjóra blaða, tímarita og vefrita í Bandarikjunum auk forstöðumanna myndasafna.
Silja Magg var við ljósmyndanám í New York síðustu vetur samhliða því að vera þekktum ljósmyndurum til aðstoðar þar í borg, sem er ekki síður lærdómsríkt. Hún hefur sömuleiðis unnið sjálfstætt við ljósmyndun og þá einkum á sviði tísku og náð þar góðum árangri.
Hún hefur tekið þátt í nokkrum ljósmynda-sýningum og hlotnaðist í fyrra sá heiður að fá sýningarpláss í Hermitage safninu í St.Pétursborg í Rússlandi, sem er eitt merkasta listasafn heims, byggt af myndlistarunnandanum Pétri mika.
Ari Magg, bróðir Silju, hefur einnig vakið athygli á heimsvísu, en það eru ekki mörg ár síðan hann var settur á blað með 100 bestu ljósmyndurum heims. Það hefur orðið til þess að honum hafa boðist mörg eftirsóknarverð verkefni erlendis.
Silja og Ari hafa ekki langt að sækja ljósmyndaáhugann. Faðir þeirra er Magnús Hjörleifsson, sem hefur starfað sem ljósmyndari í áratugi. Saman reka þau þrjú stúdíó við Hverfisgötu undir nafninu MAGG. Þær eru orðnar margar auglýsingamyndirnar og bækurnar sem þau hafa myndskreytt og væri vert að gera nokkra grein fyrir því hér á vefsíðum Samúels síðar. Það stæði líka Samúel nærri þar eð öll hafa þau þrjú myndað fyrir tímarit Samútgáfunnar á liðnum árum. Ari var fastráðinn við Hemsmynd og Magnús var aðal ljósmyndari Samútgáfunnar á þeim árum sem Sam gaf út Vikuna, Bleikt & Blátt, Hús & Híbýli og fleiri tímarit.
Fyrst við erum lomin út í ættfræðina má geta þess að afi Magnúsar og amma, þau Guðbjartur Ásgeirsson og Herdís Guðmundsdóttir, ráku einu ljósmyndaþjónustuna í Hafnarfirði árum saman og liggja eftir þau margar stórmerkar myndir úr bæjarlífinu. Auk þess tók Guðbjartur mikinn fjölda mynda til sjós, en hann var kokkur á bæði togurum og millilandaskipum. Þau hjónin voru þekkt undir nöfnunum Bjartur og Dísa í Kassahúsinu, hús þeirra var nefnilega ekki með valmaþak eins og flest landsins hús.
Enn eitt úr ættfræðinni; þau Silja og Ari eru náskild Ólafi Elíassyni, einum vinsælasta myndlistarmanni Íslands nú um stundir. Þau eru bræðrabörn.
VEFSÍÐUR SEM SÝNA MYNDLIST SILJU MAGG:
http://bentrovatoblog.com/fashion/photography-by-silja-magg/
http://iconolo.gy/archive/beach-silja-magg/1524
http://antonioacevedogarrido.wordpress.com/photograpy-websites/silja-magg/
http://www.eroglamour.com/2010/06/22/photographer-silja-magg.html
http://fashiongonerogue.com/angelika-kocheva-silja-magg
Vídeó, sem er samstarfsverkefni Silju Magg og stílista að nafni Masha Orlov.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.