Ringo Starr fagnaði sjötugs afmæli sínu síðastliðinn miðvikudag með hljóm- leikum í Radio City Music Hall í New York. Paul McCartney flaug vestur um haf til að samfagna félaga sínum og tók með honum lagið „They Say I’ts your Birthday.” Paul varð 68 ára í síðasta mánuði.
Meðal annara þekktra sem stigu á svið má nefna Íslandsaðdáandann Yoko Ono, ekkju Bítilsins, John Lennons. Tók hún undir í laginu „With a Little Help From My Friends”.
Snemma á hljómleikunum kom Ringó auga á borða sem aðdáandi hans úti í sal hélt á loftu. Á honum stóð „Ringó, ég elska þig. Til hamingju með afmælið.” Ringo brást við á kunnuglegan hátt og sagði þurrlega: „Flottur borði, en hvar er afmælisgjöfin?”
Engin ellimörk sjást á Ringó Starr, sem stóð sig með stæl á sviðinu í rúma tvo tíma hvort sem hann var við hljóðnemann eða hamaðist á trommunum með hljómsveit sinni All Starr. Var þetta ellefta útgáfan af hljómsveitinni sem hann hefur sýnt sig með á liðnum árum, en hljóðfæraleikararnir eru úr röðum þeirra vinsælustu í poppinu á sjöunda og áttunda áratugnunum.
Á meðal laga sem hljómuðu á afmælistónleikunum voru „It Don’t Come Easy”, „Frankenstein”, „Rock 'n' Roll Hoochie Coo" og „Yellow Submarine”.
SMELLA HÉR til að sjá myndir frá hljómleikunum.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.