LOFUM BARA HOMMUNUM AÐ GIFTAST ...
SAMÚEL vill ekki vera með neina fordóma en getur ekki stillt sig um að birta bráðfyndið vídeó með hinum vel þekktu leikurum Justin Long og Mike White. Þeir eru hér í hlutverkum homma sem kynnast í gleðigöngu, verða ástfangnir, giftast og hefja búskap. Vídeóið er gert af nýstofnuðum samtökum í Banda- ríkjunum sem bera nafnið Make Homosexuals Marry. Boðskapurinn virðist í stuttu máli vera sá að ef hommar vilja giftast sé sjálfsagt að láta það eftir þeim. Þeir eigi ekki betra skilið. Hjónabandöndin verði eins og hjá gagnkynhneigðum. SMELLA HÉR
CLAY AIKEN STEFNIR GREINILEGA Á LAS VEGAS
CLAY AIKEN (fæddur 30. Nóvember 1978) er afar vinsæll bandarískur söngvari sem öðlaðist frægð og frama eftir að hafa tekið þátt í American Idol árið 2003. Hann hafnaði að vísu í öðru sæti keppninnar en engum öðrum í þeirri stöðu hefur tekist betur að nýta sér það sæti sem stökkbretti inn í tónlistarheiminn. Smáskífa var gefin út í snatri með lögunum Bridge Over Troubled Water og This Is The Night. Hún varð mest selda smáskífa ársins … og Clay Aiken var rétt að byrja. Í kjölfarið fylgdu fjórir diskar. Hann hefur farið í átta stórar hljómleikaferðir, skrifað metsölubók og verið aðstoðarframleiðandi jólaþáttar, Jól með Clay Aiken, og verið gestur í ótölulegum fjölda sjónvarpsþátta öðrum. Hann var sendiherra Barnhjálpar Sameinuðu þjóðanna í tvö ár, varð faðir … og kom skömmu síðar út úr skápnum.
Nýlega kom á markaðinn hljómleikaplata með honum sem ber nafnið Tried and True, en hún var hljóðrituð í heimabæ hans, Raleigh. Þar tekur hann gamla slagara eins og Suspicious Mind sem Elvis Presley söng svo eftirminnilega, Mack the Knife úr smiðju Bobby Darin og What Kind of Fool Am I? sem Sammy Davis jr. gerði vinsælt. Samúel veðjar á að Idol-stjarnan sé líkleg til að komast á svið í Las Vegas eins og gömlu raulararnir.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.