NEÐST Á SíÐUNNI: Patrick Swayze í viðtali í Barböru Walters Special
Spjallþáttadrottningin Barbara Walters spurði leikarann Patrick Swayze að því í janúar hvað hann teldi sig eiga langt eftir. Hann kvaðst vera löngu dáinn samkvæmt blaðafréttum. Nú er hann loks látinn, 57 ára að aldri. Swayze greindist fyrir áramót með illkynja æxli í briskirtli.
Í janúar var síðan skýrt frá því að meinið hafi breiðst út og væri komið í lifrina. Sérfræð- ingar sögðu að þegar svo væri komið ætti hann vart nema hálft ár ólifað og uppskurður væri gagnslaus. Leikarinn ákvað engu að síður að taka að sér hlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni The Beast. Til að geta einbeitt sér að hlutverkinu neitaði hann sér um verkjastillandi lyf. Sinnti hann sínu hlutverki í þáttaröðinni alveg fram undir það síðasta.
Í mars þurfti blaðafulltrúi Swayze að senda út tilkynningu til að slá á fréttaflutning þess efnis að leikarinn væri þá við það að deyja á hverri stundu og væri að kveðja sína nánustu. Sem sé, ótímabær fréttaflutningur.
Leikarinn, sem var þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndunum Dirty Dancing og Ghost, sá sig tilneyddan til að hóa í ljósmyndara 25. maí og fá tekna af sér mynd til að sýna og sanna, að hann væri þá enn á lífi. Ljósmyndin sýndi leikarann og eigin- konu hans, Lísu, á búgarði þeirra ásamt heimilishundunum.
Tilefni tilkynningarinnar var það, að daginn áður fullyrti hin vinsæla útvarpsstöð Kiss FM í Bandaríkjunum, að leikarinn væri látinn. Óðara var fréttin höfð eftir í öðrum fjölmiðlum. Ljósmyndinni, sem leikarinn lét taka í lok maí, fylgdu þau orð, að leikarinn nyti lífsins og hefði líkami hans brugðist vel við þeirri krabbameinsmeðferð sem hann hafði þá gengist undir um skeið.
Hér fyrir neðan er Patrick Swayze í viðtali í við Barböru Walters í ársbyrjun.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.