STJÓRNMÁL Vart telst það lengur til tíðinda að stórlaxar í bandarískum stjórnmál um séu gripnir með buxurnar á hælunum. En nú er kominn fram á sjónar-sviðið nýr frambjóðandi sem er einmitt að nýta sér það til framdráttar að hafa um nokkurra ára skeið verið áberandi í klám- iðnaðinum vestra.
SÁTT VIÐ AÐ VERA VANMETIN AF ANDSTÆÐINGUM SÍNUM
Vitter hafði setið þrjú ár í öldungadeildinni árið 2007 þegar fjölmiðlar gerðu sér mikinn mat úr því að nafn hans fannst í kladdanum hjá umsvifamikilli hórumömmu. Kann kynlífs- hneykslið að kosta Vitter þingsætið í komandi kosningum.
Klámdrottningin segist þess fullviss að andstæðingar hennar telji hana heimska ljósku. En hún segir að það, að þeir skuli vanmeta hana, auðveldi henni að læðast upp að hliðinni á þeim í baráttunni og síga loks fram úr þeim.
Undanfarnar vikur hefur hún stormað um kjördæmið til að kynna sér viðhorf kjósenda til þjóðmálanna og aðstæður almennings eftir hrunið. Óhætt er að segja að hún dragi að sér margmenni þar sem hún fer um.
VERÐUR KLÁMIÐ ÁHRIFAVALDUR Í LÍFI BEGGJA FRAMBJÓÐENDANNA?
Það kaldhæðnislega er, að allt útlit er fyrir að það verði klámmyndaleikkona sem tekur sæti Vitters í öldungadeildinni, en Stormy Daniels vann eftirsóknarverðustu verðlaunin í bransanum, „Gullna g-strenginn”, sama ár og Vitter var tekinn með buxurnar á hælunum …
Stormy Daniels hefur leikið í fáeinum Hollywood-kvikmyndum og má þar nefna gamanmyndina The 40-Year-Old Virgin. Mest af tekjum sínum hefur hún þó haft af leik í klámyndum. Hún hefur líka halað inn drjúgar tekjur af fyrirsætustörfum og þá m.a. fyrir tímarit á borð við FHM, Penthouse, Hustler, Playboy og GQ.
Til að sjá þokkalegar myndasyrpur af Stormy Daniels smellir þú HÉR
STORMAR HÚN INN Á ÞING LÍKT OG CICCIOLINA FORÐUM?
Það skildi þó aldrei fara svo að bandaríska klámdrottningin næði sama árangri og Ilona Staller árið 1987. Hún var fædd í Ungverja- landi, en fluttist ung til Ítalíu þar sem hún hóf síðar störf í kláminu undir nafninu Cicciolina. Hún bauð sig fram til þings og þótti framboðið hneyksli og í besta falli ósmekklegt grín. En öllum að óvörum glansaði stelpan inn á þing.
Hér fyrir neðan getur þú séð umfjöllun CNN-sjónvarpsstöðvarinnar um Stormy Daniels .
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.