SMELLA HÉR TIL AÐ SJÁ SUPERBOOBS-SÝNINGUNA
Enn á ný eru fjölmiðlar farnir að bera okkur fréttir af Jackson s systkinunum Michael og Janet. Hann er í fréttunum vegna bílskúrssölu sem hann hélt til að redda fjárhagnum þar til tónleikahald hans í Lundúnum fer að skila honum peningi. Hún vegna þess að Hæstiréttur Bandaríkj- anna hefur ákveðið að taka á ný fyrir fræga sýningu á öðru brjósti hennar sem 90 milljónir sjónvarpsáhorfenda nutu í lékhléi á útsendingu frá úrslitaleik banda- rísku ruðningsdeildarinnar fyir hálfum áratug. Hún mun hafa viðurkennt í viðtali við MTV síðar, að þetta augnablik hafi verið vandlega undirbúið af henni og Justin Timberlake, sem með henni söng.
Af þessu tilefni vill Samúel rifja upp eftirfarandi skrif sem hann birti í kjölfarið:
„Sjónvarpsstöðvar hafa það fyrir sið að vara áhorfendur við bæði fréttamyndum og kvikmyndum sem eru ekki fyrir viðkvæmar sálir og er það vel. Flestir koma börnun- um í skjól og færa sig síðan nær tækinu sjálfir, en aðrir kæra sig ekki um að horfa.
Hver man ekki eftir fréttatímum íslensku sjónvarpsstöðvanna daginn eftir að Janet Jackson beraði á sér annað brjóstið á bandarískum íþróttaleikvangi frammi fyrir herskara áhorfenda á pöllunum og við sjónvarpstækin um gjörvöll Bandaríkin? Íslensku stöðvarnar skörtuðu brjóstasýn- ingunni í yfirliti frétta fyrir og eftir lestur og svo auðvitað líka almennilega í fréttatímunum sjálfum. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur kærðu sig kollótta. Karlpeningurinn sjálfsagt hinn ánæðasti upp til hópa. Ameríkaninn varð hins vegar fyrir taugaáfalli og við beinar útsendingar hefur síðan verið beitt þeirri tækni sem gerir útsendingarstjóra kleift að klippa ef einhver á sviðinu sýnir ósæmilega tilburði.
Aftur á móti voru heilu haugarnir af útsend- ingartækjum og herskari myndatökumanna fyrir utan dómhúsið í Los Angeles til að ná sem flestum og bestum andlitsmyndum af bróður söngkonunnar, Michael Jackoson, meðan á réttarhöldunum yfir honum stóð. Mikið erum við á Samúel ánægðir með að dómur skuli loks vera fallinn. Það ættti þá að draga úr þeim ófögnuði sem myndbirtingar af andliti söngvarans eru, en þær hafa oft verið birtar án viðvörunar í fréttatímum sjónvarps- stöðvanna á miðjum kvöldmatartíma! Oj, oj!
Hver ákveður eiginlega hvað sé viðkvæmt og hvað ekki hjá fréttamiðlunum?″
Megum við þá heldur biðja myndir af Janet.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.