LJÚFA VERÖLD Palestínumenn hafa hrópað eftir hjálp umheimsins og athygli á meðan ísraelskir hermenn murka lífið úr konum, börnum og gam- almennum jafnt sem öðrum á Gazasvæðinu.
Samúel hefur þótt alþjóðasamfélagið heldur áhugalítið. Svona viðlíka og þegar Hitler stóð í útrýmingarherferð sinni forðum daga. Í dag, árið 2009, getur umheim- urinn ekki látið sem hann viti ekki af ódæðunum. Til þess er fjölmiðlun orðin of öflug.
STUÐNINGUR ÚR ÓVÆNTUSTU ÁTTINNI
En nú hefur íbúum Gaza borist stuðningur úr óvæntustu áttinni. Sjálfum kvölurum þeirra er farið að blöskra það sem til er ætlast af þeim í Gaza og eru hermennirnir farnir að tjá sig opinskátt um grimmdarverkin.
Samúel birtir hér tengil á óhugnalegar fréttamyndir sem margar sjást ekki í fjöl- miðlum. Viðkvæmum er eindregið ráðið frá því að skoða þær! Eins er viðkvæmum ráðið frá því að starta videóinu hér fyrir neðan. Smella HÉR (á þína ábyrgð!)
HÖRMUNGARSAGA AYMAN AL NAJAR, 13 ÁRA
Til að sjá gott dæmi um það sem palestínks börn upplifa vill Samúel vísa þér á vídeó á heimasíuðu breska fréttamiðilsins Guardian þar Ayman al Najar, 13 ára drengur í suðurhluta Gaza, segir frá. Hann varð vitni að því er afi hans og systir létust í sprengjuárás á heimili þeirra. Þar var fosfórsprengja á ferðinni og grær drengurinn sjálfur illa sára sinna. Krabbamein er jafnframt talinn algengur fylgifiskur sprengj- unnar. Smella HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.