FORSÍÐA JÓN ÁSGEIR MISSTI AF LINKENHOLTI
Hvernig skildi Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu konu hans lítast á makaskipti? Í því gæti falist góð tilbreyting eftir allt þotulífið og gauraganginn. Samúel er búinn að finna heppilegan kost f yrir þau. Fréttir bárust í gær af því að lítið og sætt þorp að nafni Linkenholt væri til sölu með öllu tilheyr- andi. Baugshjónin gætu hugsanlega boðið lúxusþakíbúðina á Manhattan í makaskiptum.
Núna, þegar þeim hefur tekist að selja þotu sína snekkju, eiga þau helst í vandræðum með að losna við þessa 650 fermetra íbúð þar sem Kennedy og Jackie bjuggu á sínum tíma. Að vísu gerðu forsetahjónin sér þar heldur færri fermetra að góðu en stórgrósserinn. Ásett verð á íbúðina er um 3 milljarðar króna, en menn vilja helst fá um eða yfir 3,5 milljarða króna fyrir hið 2000 hektara land í Hampshire.
ÖNNUR BÍLSKÚRSSALA GRÆJAR MISMUNINN
Ef hinum slinga samningamanni, Jóni Ásgeiri, tækist ekki að fá verðið lækkað gæti hann einfaldlega haldið aðra bílskúrssölu í London eins og hann gerði um daginn. Þá seldi hann, sem kunnugt er, nokkuð af því fíneríi sem prýtt hafði skrifstofur hans í stórborginni. Þetta er fljótt að koma þegar hann getur t.d. selt stykkið af skrifstofustól á 32 þúsund krónur, en heildarverðmæti húsgagnanna á bílskúrssölunni um daginn svaraði til 2,4 milljarða íslenskra króna.
FUGLASÖNGUR Í STAÐINN FYRIR UMFERÐARNIÐ
Hugsaðu þér að vakna upp við fuglasöng í bresku smáþorpi í staðinn fyrir umferðar- nið í milljónaborginni New York. Það eru að vísu 17.300 veitingastaðir í stórborginni, en bara ein einasta krá í Linkenholti, en þú átt hana ef þú gengur að þeim díl sem fasteignasalan er að bjóða. Díllinn innifelur nefnilega allt nema kirkjuna, sem er frá 12. öld. Prestssetrið er hins vegar innifalið sem og klukkuturninn.
Annað sem er innifalið er 1.500 ekrur af ræktarlandi auk 450 fermetrar skóglendis, tvær járnsmiðjur, krikketvöllur og 22 íbúðarhús þar sem búa um 60 manns. Er búist við því að þeir vilji leigja þar áfram. Svo má ekki gleyma því að með í kaupunum fylgir pínulítil verslun með helstu nauðsynjar. Þar getur Bónusforstjórinn dúllað sér á daginn ef honum leiðist.
Þorpið er í eigu góðgerðarsjóðs, sem komið var álaggirnar fyrir auð kappreiða- knapa, sem ánafnaði auð sinn öldruðum, veikum börnum og meiddum knöpum. Sjóðurinn hefur nú falið fasteignasölu að auglýsa þorpið til sölu í lok þessarar viku. Fyrir andvirðið á að koma upp nýju þorpi frá grunni annars staðar.
GÆTU HÝST ALLA ÍBÚA TÍU MINNSTU SVEITARFÉLAGANNA
Samúel hefur verið að pæla í því hvernig Jón Ásgeir og Ingibjörg gætu fjárfest ef þeim tekst að selja þakíbúðina í New York fyrir þrjá milljarða og kærðu sig ekki um að gerast þorparar í Bretlandi.
Það þarf ekki mikla samningamenn til að koma verði á rúmgóðri íbúð í Reykjavík í 21 milljón króna. Hvað þá ef við erum að tala um eitthvað í kringum 140 íbúðir alls. Skárra væri það nú. Sæmilegur afsláttur er borðliggjandi. Hvað þá ef um stað- greiðslu væri að ræða.
Gengið er út frá því að á hverju heimili búi um 3,7 íbúar. Fjölbýlishúsahverfið í höfuðborginni, sem Samúel er að sjá fyrir sér, hýsti því eitthvað í kringum 525 íbúa. Það þýðir að þangað gætu flutt allir íbúar Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Nú eða allir íbúar tíu minnstu sveitarfélaganna á Íslandi í dag.
Hefur þú áhuga á að kaupa þakíbúðina. Nánari upplýsingar HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.