Samúel er á því að nær væri að tala um Gamla Ísland í stað Nýja Ísland. Allt virðist hníga í sömu átt. Tökum t.d. stjórnmálin, báðir hugleiddu þeir Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson endurkomu á þeim vettvangi. Allt útlit er svo fyrir að Bjarni Ben setjist í formannssætið í Sjálfstæðisflokknum.
Bankar landsins eru komnir í eigu ríkisins og gjaldeyrishömlur í gildi. Hvalveiðar eru að hefjast eins og í den. Mótmæli eru jafnvel enn algengari en á þeim tíma sem 68 kynslóðin var reiðust.
SUNNUDAGSBÍLTÚRAR Í STAÐ UTANLANDSFERÐA?
Utanlandsferðir eru munaður sem almenningur lætur tæpast hvarfla að sér nema hafa unnið í DAS eða Hskólahappdrættinu. Útlit er fyrir straum íslenskra ferðamanna innanlands í sumar og Samúel hefur í hyggju að opna tjaldaleigu með vorinu.
SMÍÐA HILLUR, BAKA OG PRJÓNA
Prjónablöð seljast nú betur en dönsku blöðin gerðu nokkurn tíma og garn rokselst í hann- yrðabúðum. Svo eru húsmæður farnar að smyrja gömlu saumavélarnar. Saumaklúbbar eru víst farnir að bera nafn með réttu og ekki kæmi það Samúel á óvart að karlar færu að leita á háaloftum og í fornbókabúðum að gömlum tölublöðum af Bo Bedre. Þar eru nefnilega leiðbeiningar fyrir þá sem vilja berja saman hillur, borð og stóla.
Í bókabúðum er mest eftirspurn eftir matreiðslubókum og æ fleiri eru víst farnir að baka sitt daglega brauð. Sú hugmynd fékk líka byr undir báða vængi að bygginga- lóðunum, sem skilað var til sveitafélaganna, yrði breytt í kartöflu- og kálgarða.
SKÁKUM VIÐ SVÍUM?
Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum. Hvern hefði t.d. grunað í fyrravetur, að Ís- land næði hugsanlega þeim árangri að flytja út fleiri bifreiðar en Svíar á þessu ári?
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.