Er ekki tímanna tákn, að tvær af bestu fréttaljósmyndum ársins í World Press Photo 2008 skuli sýna fólk rekið með valdi af heimilum sínum?
Fréttamyndirnar eru til sýnis í Kringlunni og þar má sjá ljósmynd ársins 2008, en hana tók bandaríski ljósmyndarinn Anthony Suau. Myndin er af lögreglumanni sem mundar byssu sína þegar hann er að rýma íbúð vegna ógreiddra reikninga.
Fréttamynd ársins, sem hefur raunar birst hér á forsíðu Samúels, er svo af óeir ðalögreglu í Brasilíu ganga harðákveðna til verka – þrátt fyrir mó tspyrnu konu með barn í fanginu.
Neðri ljósmyndin hlaut þriðju verðlaun í flokki fréttamynda, en hún var tekin í Georgiu og sýnir mann syrgja nákominn ættingja, sem rússnesk sprengja hafði orðið að bana.Er ekki tímanna tákn, að tvær af bestu fréttaljósmyndum ársins í World Press Photo 2008 sýni fólk rekið með valdi af heimilum sínum? Spurning hvort þeir hafi ekki verið heldur færri sem hafa verið að missa heimili sín af völdum náttúruhamfara, þó svo að náttúran hafi aldeilis farið hamförum?
Samtals bárust um 5.600 ljósmyndir til ljósmyndakeppninnar frá 124 löndum. Verðlaunin skiptust niður í 20 flokka og komu í hlut 44 ljósmyndara frá 27 löndum.
SMELLTU HÉR og sjáðu verðlaunamyndirnar í World Press Photo.
SMELLTU HÉR til að sjá vandaða vídeósýningu frá MSNBC þar sem sjá má bestu ljósmyndir síðasta árs að mati vefsíðustjóranna þar á bæ.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.