Til að sjá í hvaða merki þú ert smellir þú HÉR
ÞORSTEINN EGGERTSSON ÞÝDDI
ROTTAN
Ég er safnarinn sjálfskapaði.
Ég er hlekkur en virka sem heild.
Ég stefni upp á víðsýnar hæðir og næ markmiðum mínum með vissu.
Lífið er mér skemmtiferð.
Hver leit verður að enda á nýrri spurningu.
Ég er framför, könnun og innsæi.
Ég er vagga framkvæmdanna.
Ég er rottan.
UXINN
Ég bý yfir aflinu stöðuga sem viðheldur hringrás lífsins.
Ég stend óhagganlegur á móti tilraunum andstæðingsins, einbeitt og flekklaus.
Ég leitast við að þjóna ráðvendninni og bera byrðar réttlætisins.
Ég hlýði lögmálum náttúrunnar – þoka örlagahjólinu með þolinmæði.
Þannig vef ég örlög mín.
Ég er uxinn.
TÍGRISDÝRIÐ
Ég er þversögnin yndislega.
Allur heimurinn er leiksvið mitt.
Ég uppljóma nýjar slóðir; leita þess ófáanlega og reyni það óreynda.
Ég dansa eftir tónlist lífsins í glaðværu hömluleysi.
Komdu með mér í hringekjuakstur.
Sjáðu margbrotna litadýrðina, flöktandi ljósin.
Allir hylla mig, óviðjafnanlegan leikarann.
Ég er tígrisdýrið.
KANÍNAN
Ég lifi í takt við púls alheimsins.
Í hljóðri einsemd minni heyri ég hljómkviður sálarinnar.
Ég er hafin yfir hversdagslegt andóf og hnignun.
Ég yfirbuga með aðlögunarhæfni minni.
Ég lita orð mín með viðkvæmum, fölum litbrigðum.
Ég er dæmigerð fyrir samræmi og innri frið.
Ég er kanínan.
DREKINN
Ég er eldurinn óslökkvandi, miðpunktur allrar orku, hetjuleg hugdirfskan.
Ég er sannleikur og ljós.
Í sveiflu minni er máttur og dýrð.
Návist mín tvístrar dimmum skýjum.
Ég hef verið valinn til að temja örlögin.
Ég er drekinn.
SNÁKURINN
Ég bý yfir vísdómi aldanna.
Ég held lyklinum að leyndardómum lífsins.
Ég dreifi sæði mínu í frjóa mold og fóstra það með tilgangi og festu.
Sjón mín er hnitmiðuð.
Augnaráð mitt er óhagganlegt.
Ósveigjanlegur, staðfastur og djúpur nálgast ég á stöðugu markvissu skriði
trausta jörðina undir mér.
Ég er snákurinn.
HESTURINN
Ég er kviksjá hugans.
Ég leysi í sundur ljós, liti og eilífðarhreyfingu.
Ég hugsa, ég sé, ég hreyfist með rafmögnuðum þokka.
Stöðugur aðeins í breytileika mínum er ég ófjötraður af jarðneskum gildum.
Hömlulaus af kröftugum markmiðum.
Ég hleyp óhindraður um ótroðnar slóðir.
Andi minn er ósigraður – sál mín frjáls að eilífu.
Ég er hesturinn.
KINDIN
Ég er sérstakt barn náttúrunnar.
Ég treysti og fæ traust að launum.
Gæfan brosir við ásýnd minni.
Allir hlutir blómstra í blíðu kærleika míns.
Ég sækist eftir fegurð í öllu sem ég sé.
Svipur minn er hreinn og fullur þokka.
Ég er kindin.
APINN
Ég er árstíðarbundinn flakkari völundarhússins,
snillingur röskleikans, töframeistari hins ómögulega.
Andagift mín er óviðjafnanleg í frumleika sínum.
Hjarta mitt er fullt af voldugum töfrum og gæti framið hundruð galdra.
Svona er ég settur saman vegna eigin ánægju.
Ég er apinn.
HANINN
Ég er til taks til að boða komu dagsins og tilkynna brottför hans.
Ég þrífst á nákvæmni og stundvísi.
Í endalausri leit minni að fullkomnun verður öllu skilað aftur á sinn stað.
Ég er nákvæmur verkstjóri og sískoðandi stjórnandi.
Ég leita fullkominnar reglu í veröld minni.
Ég er fulltrúi óbriðgðullar hollustu.
Ég er haninn.
HUNDURINN
Bardagaáreynslan hefur agað mig til að heyra sorgir þínar og stilla kvalir mínar.
Ég er verndari réttvísinna; jafnrétti er mér að skapi.
Innsæi mitt óskýrist aldrei vegna hugleysis.
Sál mín verður aldrei hlekkjuð.
Líf án sæmdar er líf til einskis.
Ég er hundurinn.
SVÍNIÐ
Af öllum börnum Guðs hef ég hreinast hjarta.
Mð sakleysi og trygglyndi geng ég í verndandi ljósi kærleikans.
Með því að gefa rausnarlega af sjálfu mér verð ég ríkari og tvisvar blessað.
Tengd öllu mannkyni með almennri vinátt
er velvild mín altæk og þekkir egin takmörk.
Ég er svínið.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.