Í HVAÐA MERKJUM ERU ALÞINGISMENNIRNIR SEM SÁTU Á ÞINGI 2008?
Arnbjörg Sveinsdóttir, api.
Atli Gíslason, svín.
Ágúst Ólafur Ágústsson, snákur.
Álfheiður Ingadóttir, kanína.
Ármann Kr. Ólafsson, hestur.
Árni Páll Árnason, hestur.
Árni Johnsen, api.
Árni M. Matthiesen, hundur.
Árni Þór Sigurðsson, rotta.
Ásta R. Jóhannesdóttir, uxi.
Ásta Möller, api.
Birgir Ármannsson, api.
Birkir J. Jónsson, kind.
Bjarni Benediktsson, hani.
Björgvin G. Sigurðsson, hundur.
Björk Guðjónsdóttir, snákur.
Björn Bjarnason, api.
Einar K. Guðfinnson, kind.
Einar Már Sigurðarson, kanína.
Ellert B. Schram, kanína.
Eygló Harðardóttir, rotta.
Geir H. Haarde, kanína.
Grétar Mar Jónsson, kind.
Guðbjartur Hannesson, tígrisdýr.
Guðfinna S. Bjarnadóttir, hani.
Guðjón A. Kristjánsson, api.
Guðlaugur Þ. Þórðarson, kind.
Gunnar Svavarsson, tígrisdýr.
Helga Sigrún Harðardóttir, hani.
Helgi Hjörvar, kind.
Herdís Þórðardóttir, dreki.
Höskuldur Þórhallsson, uxi.
Illugi Gunnarsson, kind.
Ingibjörg Sólrún Gíslad., snákur.
Jóhanna Sigurðardóttir, hestur.
Jón Bjarnason, kind.
Jón Gunnarsson, api.
Jón Magnússon, hundur.
Karl V. Matthíasson, dreki.
Katrín Jakobsdóttir, dreki.
Katrín Júlíusdóttir, tígrisdýr.
Kjartan Ólafsson, snákur.
Kolbrún Halldórsdóttir, kind.
Kristinn H. Gunnarsson, dreki.
Kristján Þór Júlíusson, hani.
Kristján L. Möller, snákur.
Lúðvík Bergvinsson, dreki.
Magnús Stefánsson, rotta.
Ólöf Nordal, hestur.
Pétur H. Blöndal, api.
Ragnheiður E. Árnadóttir, kind.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, uxi.
Rósa Guðbjartsdóttir, snákur.
Sigurður Kári Kristjánsson, uxi.
Siv Friðleifsdóttir, tígrisdýr.
Steingrímur J. Sigfússon,kind.
Steinunn Valdís Óskars., snákur.
Sturla Böðvarsson, hani.
Valgerður Sverrisdóttir, tígrisdýr.
Þorgerður K. Gunnarsd., snákur.
Þórunn Sveinbjarnard., snákur.
Þuríður Backman, svín.
Ögmundur Jónasson, rotta.
Össur Skarphéðinsson, snákur.
ATH.: Samantekt þessi er gerð árið 2008
Til að sjá lýsingu á kínversku mekjunum smellir þú HÉR
Um Kínversku stjörnumerkin og spá þín á ári Vatnsdrekans sem gengur í garð 4. febrúar. HÉR
Elsta stjörnuspekikerfi sem vitað er um rekur uppruna sinn til Kína árið 2637 fyrir Krist þegar Huang Ti kynnti það fyrir þegnum sínum. Hver hringur þessa kerfis tekur heil sextíu ár. Hringur númer 78 í röðinni hófst því árið 1984 og endar árið 2044. Ýmsar söguskýringar eru til á því hvers vegna árin tólf í kínversku tímatali bera dýranöfn og hefur Samúel rakið söguna um kapphlaup dýranna, en önnur saga er líka vinsæl.
Sagan segir að Gautama Búdda hafi boðið öllum dýrum jarðarinnar að vera viðstödd þegar hann hyrfi af jörðinni. Aðeins tólf létu sjá sig og hann launaði þeim með því að nefna árin eftir þeim í þessari röð: Rotta, uxi, tígrisdýr, kanína, dreki, snákur, hestur, kind, api, hani, hundur, svín.
MERKIÐ SAGT BERA EIGINLEIKA VIÐKOMANDI DÝRS
Hvert ár átti að búa yfir eiginleikum þess dýrs sem það var nefnt eftir, enda segja Kínverjar gjarnan: "Þetta er dýrið sem dvelst hjarta þínu." Inn í hvert tólf ára tímabil fléttast svo frumkraftarnir fimm, tré, eldur, jörð, málmur og vatn.
Þessi speki hefur þróast hægt og sígandi á þeim 4645 árum sem liðin eru síðan hún var sett fram, en hefur ekki mikið verið kynnt á Vesturlöndum fyrr en á síðustu áratugum.
ÞANNIG ER SNÁKINUM LÝST
Könnun Samúels leiddi í ljós að Geir H. Haarde, sem er kind, var í hálfgerðri ormargryfju sem forsætisráðherra þar sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins og flestir ráðherrar Samfylkingarinnar í ríkisstjórn hans eru snákar. En er það endilega svo slæmt? Hvernig eru snákarnir? Þorsteinn Eggertsson þýddi grein um kínversku merkin fyrir Sam á sínum tíma. Þar var snáknum lýst á eftirfarandi hátt:
Ég bý yfir vísdómi aldanna.
Ég held lyklinum að leyndardómum lífsins.
Ég dreifi sæði mínu í frjóa mold og fóstra það með tilgangi og festu.
Sjón mín er hnitmiðuð.
Augnaráð mitt er óhagganlegt.
Ósveigjanlegur, staðfastur og djúpur nálgast ég á stöðugu markvissu skriði trausta jörðina undir mér.
Ég er snákurinn.
ALLIR APARNIR SJÁLFSTÆÐISMENN
ROTTURNAR Í STJÓRNARANDSTÖÐU
Það er svolítið forvitnilegt að skoða hvernig þingmennirnir raðast í merki. Í ljós kemur, að átta alþingismenn eru apar. Sjö þeirra eru í Sjálfstæðisflokknum og sá áttundi var það hér í eina tíð. Sá heitir Guðjón A. Kristjánsson og er núna formaður Frjálslyndra.
Fjórar rottur eru á þingi, tvær þeirra í Framsókn og hinar tvær í Vinstri Grænum. Hins vegar tilheyra allir snákarnir stjórnarliðinu, en þeir eru tíu talsins, þar af eru sex konur. Einn íhaldssnákanna, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, er ráðherra, en fjórir snákanna í Samfylkingunni. Sá fimmti er varaformaður flokksins og sá sjötti var borgarstjóri í tíð R-listans, Steinunn Valdís Óskarsdóttir - já, og svo auðvitað hún Ingibjörg Sólrún líka. Þess má svo geta, að Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, er einnig snákur.
Fimm hanar eru á þingi. Allt Sjálfstæðismenn utan Helga Sigrún Harðardóttir, sem er þingmaður Framsóknar. Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherrra var svín. Nú eru bara tvö svín á þingi og bæði í Vinstri grænum.
FINNDU MERKIÐ ÞITT
Nýtt ár hefst á öðru nýju tungi eftir vetrarsólstöður. Núna síðast hófst það 7. febrúar. Þar sem merkin byrja ekki öll á sama tíma birtir Samúel hér töflu yfir öll merkin frá því árið 1940.
SMELLTU HÉR til að sjá lýsingu á hverju merki fyrir sig.
Dreki: 8. feb. 1940 - 26.jan. 1941. Málmur.
Snákur: 27. jan. 1941 - 14. feb. 1942. Málmur.
Hestur: 15. feb. 1942 - 4. feb. 1943. Vatn.
Geit: 5. feb. 1943 - 24. jan. 1944. Vatn.
Api: 25. jan. 1944 - 12. feb. 1945. Tré.
Hani: 13. feb. 1945 - 1. feb. 1946. Tré.
Hundur: 2. feb. 1946 - 21. jan. 1947. Eldur.
Svín: 22. jan. 1947 - 9. feb. 1948. Eldur.
Rotta: 10. feb. 1948 - 28. jan. 1949. Jörð.
Uxi: 29. jan. 1949 - 16. feb. 1950. Jörð.
Tígrisdýr: 17. feb. 1950 - 5. feb. 1951. Málmur.
Kanína: 6. feb. 1951 - 26. jan. 1952. Málmur.
Dreki: 27. jan. 1952 - 13. feb. 1953. Vatn.
Snákur: 14. feb. 1953 - 2. feb. 1954. Vatn.
Hestur: 3. feb. 1954 - 23. jan. 1955. Tré.
Kind: 24. jan. 1955- 11. feb. 1956. Tré.
Api: 12. feb. 1956 - 30. jan. 1957. Eldur.
Hani: 31. jan. 1957 - 17. feb. 1958. Eldur.
Hundur: 18. feb. 1958 - 7. feb. 1959. Jörð.
Svín: 8. feb. 1959 - 27. jan. 1960. Jörð.
Rotta: 28. jan. 1960 - 14. feb. 1961. Málmur.
Uxi: 15. feb. 1961 - 4. feb. 1962. Málmur.
Tígrisdýr: 5. feb. 1962 - 24. jan. 1963. Vatn.
Kanína: 25. jan. 1963 - 12, feb. 1964. Vatn.
Dreki: 13. feb. 1964 - 1. feb. 1965. Tré.
Snákur: 2. feb. 1965 - 20. jan. 1966. Tré.
Hestur: 21. jan. 1966 - 8. feb. 1967. Eldur.
Kind: 9. feb. 1967 - 29. jan. 1968. Eldur.
Api: 30. jan. 1968 - 16. feb. 1969. Jörð.
Hani: 17. feb. 1969 - 5. feb. 1970. Jörð.
Hundur: 6. feb. 1970 - 26. jan. 1971. Málmur.
Svín: 27. jan. 1971 - 15. jan. 1972. Málmur.
Rotta: 16. jan. 1972. 1972 - 2. feb. 1973. Vatn.
Uxi: 3. feb. 1973 - 22, jan. 1974. Vatn.
Tígrisdýr: 23. jan. 1974 - 10. feb. 1975. Tré.
Kanína: 11. feb. 1975 - 30. jan. 1976. Tré.
Dreki: 31. jan. 1976 - 17. feb. 1977. Eldur.
Snákur: 18. feb. 1977 - 6. feb. 1978. Eldur.
Hestur : 7. feb. 1978 - 27. jan. 1979. Jörð.
Kind: 28. jan. 1979 - 15. feb. 1980. Jörð.
Api: 16. feb. 1980 - 4. feb. 1981. Málmur.
Hani: 5. feb. 1981 - 24. jan. 182. Málmur.
Hundur: 25. jan. 1982 - 12. feb. 1983. Vatn.
Svín: 13. feb. 1983 - 1. feb. 1984. Vatn.
Rotta: 2. feb. 1984 - 19. feb. 1985. Tré.
Naut: 20. feb. 1985 - 8. feb. 1986. Tré.
Tígrisdýr: 9. feb. 1986 - 28. jan. 1987. Eldur.
Kanína: 29. jan. 1987 - 16. feb. 1988. Eldur.
Dreki: 17. feb. 1988 - 5. feb. 1989. Jörð.
Snákur: 6. feb. 1989 - 26. jan. 1990. Jörð.
Hestur: 27. jan. 1990 - 14. feb. 1991. Málmur.
Kind: 15. feb. - 1991 - 3. feb. 1992. Málmur.
Api: 4. feb. 1992 - 22. jan. 1993. Vatn.
Hani: 23. jan. 1993 - 9. feb. 1994. Vatn.
Hundur: 10. feb. 1994 - 30. jan. 1995. Tré.
Svín: 31. jan. - 1995 - 18. feb. 1996. Tré.
Rotta: 19. feb. 1996 - 6. feb. 1997
Uxi: 8.feb 1997 - 27.jan 1998
Tígrisdýr: 28.jan 1998 - 5.feb 1999
Kanína: 6.feb 1999 - 27.jan 2000
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.