Ár rottunar rennur senn sitt skeið, en samkvæmt tímatali Kínverja stendur það til 7. febrúar. Þá tekur við ár uxans og því næst ár tígrisdýrsins. Í upphafi árs rottunnar rýndu kínverskir spekingar í árið framundan og sáu fram á fjárhagslegan óróa í heiminum. Flestir hljóta að vera sammála um að spáin hafi gengið eftir. En það var fleira í spánni sem visslega rættist.
ÁTÖK VIÐ TÍBETA SÉÐ FYRIR?
Hvort sem horft er eingöngu til Kína eða heimsbyggðarinnar allrar er skollin á meiri háttar kreppa sem lætur fátt eða ekkert ósnortið. Á ári rottunar sáu spekingarnir jafnframt mikil flóð og nóg var af þeim í Kína og víða, sömuleiðis þeim sjúkdómum sem spáð var.
Loks vöruðu spekingarnir við pólitískum óróa á árinu en hann var ekki minnstur á þeirra heimaslóðum. Átök Kínverja við Tíbeta voru þeim mun meira áberandi sem nær dró Olympíuleikunum og viðstöðulausari fréttum af kínverskum málefnum.
ÞEGAR SAMAN KEMUR JÖRÐ OG VATN
Spekingarnir skýrðu spár sínar með því að á ári rottunar rækjust saman vatn og jörð, tvö af fimm frumefnum sem talin eru uppspretta alls. “Jörð er venjulega vatni yfirsterkari en hún er of veik til að stjórna rottunni, sem er sterkasta táknmynd vatsnins,” sagði Raymond Lo, meistari í feng shui, þegar ár rottunnar gekk í garð 7. febrúar síðastliðinn.
ROTTAN SVINDLAÐI
Ár rottunnar er hið fyrsta í tólf ára hringrás kínverska tímatalsins og bera öll árin dýraheiti. Sagan segir að rottan sé fyrst eftir að hafa sigrað hin dýrin ellefu í kapphlaupi, ekki vegna þess að hún var fljótust, heldur vegna kænsku.
Eftir að hafa logið að tígrisdýrinu um dagsetningu keppninnar fór rottan mesta hluta leiðarinnar á baki uxans áður en hún stökk af og hljóp lokaspölinn í mark fyrst allra.
SKÁKA JAFNVEL OKKUR ÍSLENDINGUM Í GLEÐILÁTUM
Ár uxans tekur við af ári rottunnar, en síðan koma þau hvert á fætur öðru í þessari röð: tígrisdýr, kanína, dreki, snákur, hestur, kind, api, hani, hundur og svín.
Tilstandið hér á landi um hátíðirnar þykir mörgum yfirgengilegt. Það bliknar þó við hliðina á hátíðahöldum Kínverja er þeir fagna áramótum í febrúar. Skólabörn fá tveggja vikna frí og flest fyrirtæki gefa starfsmönnum sínum jafn langt frí til að þeir geti fagnað áramótunum ærlega. Allt viðskiptalíf lamast og fólk notar tímann til að heimsækja vini og ættingja.
Það þarf svo ekki að koma neinum á óvart að flugeldum sé skotið á loft í miklum mæli þegar nýtt ár gengur í garð. Við erum skotglaðir, Íslendingar, en það ku vera enn meira púður í gleðinni í Kína.
Líklegt má telja að nýju ári verði fagnað af heilum hug og hamfaraár rottunar kvatt með litlum söknuði ...
Í HVAÐA MERKI ERT ÞÚ?
Til að komast að því í hvaða merki þú ert fæddur smellir þú HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.