Samúel er ekki alveg klár á því hvernig ber i að taka þeirri táknrænu aðgerð unga mannsins um daginn að flagga Bónus-fánanum á Alþingishúsinu.
Átti það að vera ríkisstjórninni til háðungar? Af því kannski að hún hafði ekki tekið almennilega í lurginn á útrásarvíkingunum og fryst tafarlaust allar þeirra eigur; þotur, snekkjur, lúxusíbúðir í stórborgunum, hlutabréfaeignir og annað slíkt.
Eða var kannski verið að upphefja Bónus-feðgana með þessu? Ár eftir ár hefur almenningur nefnilega sett þetta fyrirtæki í efsta sæti vinsældalistans yfir landsins geðþekkustu fyrirtæki.
Það er ekki gott að segja fyrir hverju var verið að flagga. Núna er nefnilega allt í einu farið að velja þessum útrásarvíkingum svo svakaleg ónefni, að meint einelti Davíðs Oddssonar og orðbragð í þeirra garð bliknar í samanburði.
Skildi móðir fánaberans vera hætt að kaupa handa honum í matinn í Bónus?
HVENÆR ERU TAFIR ÁSÆTTANLEGAR?
Allt frá því bankakreppa skall á íslensku þjóðfélagi, eins og víðast annars staðar í heiminum í október, hefur ríkis- stjórnin verið sökuð um að draga lappirnar og redda ekki málum í hvelli. Stór orð voru viðhöfð strax í annarri og þriðju viku bankakrísunnar um seinagang og að engan tíma mætti missa til að ekki færi illa. Tíminn er dýrmætur, mikið rétt.
En hvernig stendur þá á því að svo margir skuli hafa uppi háværar kröfur um að ráðist verði í tímafrekar kosningar einmitt núna?Jafnvel stjórnarandstæðingurinn Guðni Ágústsson lýsti þeirri skoðun sinni að ríkisstjórnin yrði að fá frið til að bregðast við vandanum og því óráðlegt að tefja tímann með kosningabaráttu fram undir þorra. (Að svo mæltu skellti hann sér með baðfötin og eiginkonuna til Kanarý og eftirlét fyrrum bankamálaráðherra, Valgerði Sverrisdóttur, formannsætið í Framsókn.)
SLÖKKVILIÐ EÐA BRUNALIÐ?
Þegar stórbruninn braust út á horni Lækjargötu og Austurstrætis í fyrra hefði nú tæpast þótt skynsamlegt að stöðva allt slökkvistarf á meðan kannað væri hverjum ónógar eldvarnir hefðu verið að kenna. Kannað hvort eldvarnareftirlitið hefði ef til vill brugðist í störfum sínum og hvort ekki væri ráðlegt að ráða nýjan slökkviliðsstjóra og stokka upp í slökkviðinu áður en slökkvistarfi yrði haldið áfram. Í reglugerðum (1998/194) heyrir eldvarnaeftirlit nefnilega undir slökkviliðsstjóra og það er ótækt að sá sem á hugsanlega einhverja sök á brunanum sinni slökkviliðsstörfum.
UMFJÖLLUN NORSKA SJÓNVARPSINS UM JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON
Til að lesa forsíðufrétt NRK-heimasíðunnar um Jón Ásgeir smellir þú HÉR
Til að sjá fréttaskýringaþátt NRK, Í BRENNIDEPLI, smellir þú HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.