NOSTRADAMUS SÁ KONU Í FRAMBOÐI Í BYRJUN ALDAR
Flestir í heiminum hefðu trú- lega spáð því í byrjun síðustu aldar að fyrr frysi í helvíti en að negri vogaði sér að gefa kost á sér í opinbert embætti í Bandaríkjunum, hvað þá hrein- ræktaður Afríkunegri.
Það hefði heldur ekki þótt boð- leg hugmynd að kona ætti eftir að fara í slíkt framboð. Hvorki konur eða negrar höfðu þá einu sinni kosningarétt.
Með þetta í huga er enn athyglisverðara að fyrir 453 árum skuli franskur smyrslagerðar- maður hafa spáð því að negrar hefðu í byrjun þessarar aldar náð umtalsverðum árangri í réttinda- baráttu sinni, en á þeim tímum gengu negrar kaupum og sölum eins og húsdýr.
Nostradamus sagði líka, að hann sæi konu í forsetakosn- ingunum í Bandaríkjunum í byrjun aldarinnar. Viti menn, þær voru frekar tvær en ein sem gáfu kost á sér í embætti forseta eða varaforseta.
TIL AÐ SJÁ FYRSTA HLUTA SMELLIR ÞÚ HÉR
SMELLA HÉR TIL AÐ FÁ BÓKINA Á HÁLFVIRÐI HJÁ SAMÚEL
Í fyrsta hluta umfjöllunar Samúels á net- inu um spádóma Nostradamusar (sem lesa má HÉR) var þess getið hvaða fyrirsagnir mætti lesa á köflunum um þá tíma sem við nú upplifum okkur til mikillar skelfingar. En hvaða spádómar bjóða upp á slíkar fyrirsagnir, fyrirsagnir sem mætti halda að væru sóttar í fjölmiðla síðustu missera?
Eins og öllum er kunnugt lauk Nostradamus við að skrá spádóma sína árið 1555, en spádómana setti hann fram sem vísur sem var ekki á allra færi að ráða í. Textinn var hlaðinn líkingamáli, einstökum feluorðum og grískum og latneskum orðmyndunum. Í bókinni er upprunalegi textinn birtur auk orðskýringa Guðmundar Sigurfreys þar sem hann útskýrir hvernig ráðið er í textann. Þegar horft er til þess hve spádóma- ráðningarnar fara nærri um atburðina sem fjallað er um geta menn verið sammála um að þýðingin hafi tekist býsna vel.
MEIRA EN HELMINGUR SPÁDÓMANNA HAFA KOMIÐ FRAM
Óhugnalegast er það, að meira en helmingurinn af spádómum Nostradamusar hafa komið fram á þeim 453 árum sem liðin eru frá því þeir voru settir fram. Heims- kreppunni sem skyndilega skall á í haust er lýst af óhugnalegri nákvæmni og nú eru okkur að berast þær fréttir að ráðgjafar og rýnendur Bandaríkjaforseta telji miklar líkur á heimsstytrjöld – sem bera muni einmitt að með sama hætti og lýst er í spádómum Nostradamusar.
En fyrst að spádómumnum um heimskreppuna:
SKAPADÆGUR NEYSLUSAMFÉLAGSINS
Í bókinni birtist fyrst þýðing á vísu og síðan strax á eftir frumtextinn. Þar fyrir neðan kemur svo skýring á þýðingarmestu orðum textans og hvernig þau eru túlkuð. Loks kemur svo víða til viðbótar nánari greinargerð þýðandans.
SMELLA HÉR TIL AÐ SJÁ VÍDEÓ OG PANTA BÓKINA Á SÉRKJÖRUM
Til að gefa hugmynd um hvernig lesið er úr vísum Nostradamusar má taka upphaf þeirrar fyrstu sem dæmi:
Ráðamenn og stjórnendur framleiða
eftirlíkingar og fræðimenn gera
áætlanir sem eru gjörsneyddar ráðvísi.
Gnægtahornið verður fyrir barðinu
á þeim og ofbeldi kemur í stað friðar.
Spádómarnir munu rætast.
Des Roys & Princes dresseront simulacres,
1
Augures,
2 creuz esleuez aruspices:
3
Corne,
an lang="EN-GB"> 4 victume d'oree, & d'azur,
5
d'acre,
6
Inrerpretez
7 seront les extipices.
8
III:26
1) Latína
simulacrum;
táknmynd, eftirlíking. „Framleiðsla eftirlíkinga“ vísar til þess er ríkisstjórnir prenta peninga án innstæðu og stuðla þannig að verðbólgu.
2) Spámaður, spáprestur í Róm til forna. Í þessu samhengi hagfræðingar og stjórnmálamenn.
3) Latína
haruspex;
sjáandi, spámaður.
4) Nægtahorn, tákn allsnægta. Horn fullt af blómum, ávöxtum og grænmeti svo að út úr flóir. Stendur fyrir neyslusamfélagið.
5) Himinblár, heiðblár. Táknar sakleysi, ró, frið og spekt.
6) Latína
acer;
beittur, hvass, harður, ofbeldishneigður.
7) Latína
interpretor;
útskýringar, túlkanir, umsögn (höfundar).
8) Latína
extipex;
spámaður sem les framtíðina í innyflum fórnardýra.
EFNAHAGSKREPPA OG HRUN VERÐBRÉFAMAKAÐARINS
Í næstu vísu segir orðrétt í þýðingu Guðmundar Sigurfreys: Fáir vilja fylgja þeim (ráðamönnum) lengur að málum né láta síbylju þeirra draga sig á tálar.
Næsta vísa fjallar um kreppuna og þar segir m.a.: Verðbréfin verða að engu. Og þar næsta vísa er undir fyrirsögninni: Samsöfnun auðs á fárra hendur og vaxandi þörf fyrir lánsfé. Hljómar kunnuglega, ekki satt?
Þá lýsir Nostradamus því hvernig almenningur jafnar reikninginn við vestrænar stofnanir með því að fremja ótrúleg spellvirki í hræðilegum óspektum. Við erum svo sem ekki óvön því að heyra sagt frá götuóeirðum víða erlendis, eins og t.d. í þeirri annars rómantísku hámenningarborg París. En hér á landi hefur þurft að leita aftur um marga áratugi til að rifja upp fréttir af uppþoti í henni Reykjavík, sem þó geta ekki flokkast undir hræðilgar óispektir.
ÍSLENSKIR RÁÐAMENN MEÐ LÍFVERÐI
En stöldrum nú við; hvenær hafa íslenskir ráðamenn og einstaka stjórnendur fyrirtækja séð áður ástæðu til að kalla eftir lífvörðum? Samúel er heldur ekki kunnugt um að íslenskir löggæslumenn hafi þurft að grípa áður til þess ráðs að nota piparúða til að hrekja burt úr lögreglustöð fólk sem hafði brotið sér leið þangað inn með djöfulgangi og látum.
Talandi um París hér á undan má bæta því hér við, að Nosatradamus talar um í spá sinni að þar muni fólk fljótlega eftir efnahagshrunið gera uppreins gegn valdhöfum og borgin hafi aldrei verið í jafn sárri óreiðu.
ENN ÆSAST LEIKAR
Síðan æsast leikar enn frekar. Fréttir taka að berast af óförum Egypta og stríðsvofu í Grikklandi. Efnahag hnignar í vestri og á Ítalíu og ekki verður ástandið hótinu skárra í Páfagarði og Mónakó. Ringulreið skapast í Evrópu. Ófriðlega horfir þar sem svo lengi hafði ríkt friður og friðarviðræður skila engu á þeirri hörmungaröld sem gengin er í garð.
Í bókinni um spádóma Nostradamusar er síðan rakin óhugnaleg atburðarás þar sem stríðs átök eru rauði þráðurinn í textanum ...
OBAMA ÞARF AÐ HLUSTA Á RÁÐ LEYNIÞJÓNUSTUNNAR ...
Obama virðist greinilega hafa fulla ástæðu til að kynna sér rækilega skýrslu leyni- þjónustu Bandaríkjanna þar sem varað er við válegum tíðindum eins og sagði í frétt Ríkisútvarpsins okkar. En í fréttinni sagði einnig að þrátt fyrir svartnættið mætti gefa mönnum von og segja að leiðtogar þjóðanna hafi svigrúm til þess að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að allt fari á versta veg. Það sé mannlegum mætti gerlegt að grípa til aðgerða og fyrirbyggja þann vanda sem við blasi.
Leyniþjónustan skorar á leiðtogana að koma í veg fyrir þriðju heimsstyrjöldina. Eigum við ekki að líta líka á spádóma Nostradamusar sem viðvörunarorð sem að gagni geti komið - þó að við höfum ekki tekið mark á honum varðandi afleiðingar dansins í kringum gullkálfinn!
Samúel á eftir að rýna enn meira í þessa merkilegu spádóma á næstu dögum.
SMELLA HÉR TIL AÐ SJÁ VÍDEÓ OG PANTA BÓKINA Á SÉRKJÖRUM
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.