Ýmsir hafa orðið til þess að stæra sig af því að hafa varað við heimskreppunni nokkrum mánuðu m fyrir hrunið. Gott hjá þeim. En hvað segja menn þá um það, að fyrir meira en 450 árum ritaði franskur spámaður nákvæma lýsingu á því sem einmitt hrellir heimsbyggðina núna. Lýsing hans er óhugnalega nákvæm.
Verðbólga og gerræði. Nauðungaruppboð og vaxandi vantrú á getu stjórnmálamanna. Efnahagskreppa. Hrun verðbréfamarkaðar. Samsöfnun auðs á fárra hendur og vaxandi þörf fyrir lánsfé. Þverrandi trú á stjórnmála- mönnum vegna verðbólgu.
Það sem hér er tínt til af fyrirsögnum gæti hæglega verið allt saman úr fjölmiðlum undanfarinna vikna. Fyrirsagnirnar snúast vissulega um ástandið í dag, en lýsingin var skrifuð áður en til þessara tíðinda dró. Löngu fyrr. Nánar tiltekið 1555 eða fyrir 453 árum. Sá er þetta ritaði hét Nostradamus (1503-1566) og var smyrslagerðarmaður í Frakklandi.
ÞÝÐING SPÁDÓMANNA VAR GERÐ FYRIR ALDAMÓT
Framangreindar fyrirsagnir er að finna í bók um spádóma Nostradamusar sem kemur hér á markaðinn innan tíðar. Hún er í þýðingu gamalkunnugs blaðamanns Samúels, Guðmundar Sigurfreys Jónassonar. Það er ekki eins og hann hafi setið við að undanförnu og lagað þýðinguna að atburðum líðandi stundar. Þýðinguna gerði hann á síðasta áratug síðustu aldar.
HEFUR REYNST ÓTRÚLEGA SANNSPÁR
Spádómshæfileikar Nostradamusar hafa vakið furðu. Meira en helmingurinn af spádómum hans hafa komið fram. Hann spáði m.a. fyrir um frönsku stjórnarbylt-inguna, nasismann, morðið á Olof Palme, Persaflóastríðið og útbreiðslu alnæmis svo eitthvað sé nefnt.
Nostradamus spáði því að um þetta leiti mundi renna upp skapadægur neyslu- samfélagsins, eins og hann kallaði ástandið, og hafa í för með sér verðbréfahrun, verðbólgu og gerræði með tilheyrandi nauðungaruppboðum. Lýsingin er ófögur og samkvæmt spádómum Nostradamusar erum við aðeins stödd í ljósaskiptunum og myrkrið ekki skollið á fyrir alvöru.
ÓFÖGUR FRAMTÍÐARSÝN
Nú eru sem sé að koma fram spádómar hans um hrikalega efnahagskreppu. Í ljósi þess hve sannspár Nostradamus hefur reynst er því afar hrollvekjandi að lesa þýðingar Guðmundar Sigurfreys á því sem spámaðurinn sagði að fylgja mundi í kjölfarið: Almenningur muni jafna reikningana við vestrænar bankastofnanir og muni vinna ótrúleg spellvirki.
Í beinu framhaldi af fjármálakreppunni muni síðan brjótast út stríð á Vesturlöndum og eru lýsingar Nostradamusar vægast sagt hrollvekjandi.
Til að lesa meira um spádómana smellir þú HÉR
Til að sjá vídíó, lesa meira og panta bókina smellir þú HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.