Samúel gerir það að tillögu sinni að umhverfislistamanninum Christo og konu hans Jeanne-Claude verði boðið á næstu Listahátíð. Fátt er betur við hæfi með tilliti til þess hve umræða um umhverfismál og húsafriðun hefur verið hér ofarlega á baugi.
PAKKI INN MORGUNBLAÐSHÚSINU
Samúel leggur til að Christo og frú verði fengin til að pakka inn gamla Morgunblaðshúsinu við Aðalstræti. Það yrði til mikilla bóta að þessi mikla sjónmengun á einum mest áberandi stað í gamla miðbænum hyrfi sjónum um hríð og helst til frambúðar. Það væri þá skömminni skárra að horfa á bygginguna umvafða segli sem fest væri með góðu snæri eða köðlum.
LÍKA PÓSTHÚSTRÆTI 9, TAKK FYRIR!
Svo mætti líka fá hjónin til að hylja með svipuðum hætti framhliðina á Pósthússtræti 9, hússins á milli Apóteksins og Hótel Borgar sem hýsir m.a. Kaffibrennsluna. Bygging sem stingur hræðilega í augu svona gjörsamlega úr öllu samhengi við hinar öldnu, virðulegu byggingar til sinnar hvorrar handar.
LÖG ÞURFA AÐ NÁ YFIR SVONA LAGAÐ
Yfirvöld mættu svo hugleiða það alvarlega að setja lög sem ná yfir sjónmengun af því tagi sem spillir miðborginni. Þessi byggingarstíll var vissulega barn síns tíma og klappað lof í lófa. En hann er alls ekki viðeigandi á milli þeirra rismiklu bygginga sem eru til sinnar hvorrar handar. Arkitektar þeirra húsa hafa áreið- anlega snúið sér í gröfum sínum yfir þeirri hryggðarmynd sem risin var.Borgaryfirvöldum barst í sumar beiðni þess efnis að breyta mætti gluggunum á jarðhæðinni, þar sem Kaffibrennslan er til húsa. Samúel skorar á skipulagsyfirvöld að stíga skrefið til fulls og láta taka alla fram- hliðina í gegn. Uppúr og niðrúr!
Til Íslands með Christo og frú! Haldið þið að það mundi ekki vekja athygli ef þau fengju einnig að pakka inn hinum heimsfræga Seðlabanka okkar þó að þar sé um að ræða kúl arkitektúr. Ávísun á straum túrista, sannið þið til!
HEIMASÍÐA CHRISTO OG JEANNE-CLAUDE
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.