Ronnie Wood fæddist inn í músíkalska fjölskyldu í Middlesex í Englandi fyrsta dag júnímánaðar árið 1947 og er því 63 ára. Áður en hann hóf tónlistarferil sinn stundaði hann myndlistarnám við myndlistarskóla í London. Samhliða því að hefja leik með Jeff Beck Group, The Faces og the Rollong Stones þróaði hann áfram myndlistarhæfileika sína.
Fyrirmyndirnar voru tónlistarmenn sem hann dáðist að, þekkti og spilaði stundum með. En einnig ættingjar hans og nánir vinir og síðast en ekki síst hann sjálfur. Hann málar með olíumálningu. Ýmist eftir ljósmyndum eða þá að hann fær fólk til að sitja fyrir í stúdíóinu.
SÝNIR ÚT UM ALLAN HEIM
Með árunum hefur myndlist hans notið vaxandi viðurkenningar. Til marks um það er meðal annars það, að árið 1999 var honum boðið að halda einkasýningu í Museum of Modern Art í Sao Paulo í Brasilíu. Hann hefur líka haldið nokkrar sýningar á verkum sínum í Norður- og suður Ameríku, í Austurlöndum fjær og út um alla Evrópu.
Hann viðurkennir að hann hali inn á einu kvöldi með gítarinn mikið hærri upphæð en það sem hann getur haft upp úr krafsinu með þrotlausri vinnu í stúdíóinu dögum saman. Seljast þó myndir hans fyrir þúsundir dollara. En hann segist hafa það mikla ánægju af að mála að hann setji ekki launamuninn fyrir sig. Ronnie Wood er heldur ekki listamaður á flæðiskeri staddur. Ó, nei!
MÁLVERK FYRIR TUGI MILLJÓNA KRÓNA
Samúel minnist þess að árið 2003 seldist olímynd eftir hann fyrir jafnvirði 25 milljóna króna og var þá tekið fram, a ð það væri ekki hans dýrasta mynd fram að því.
Síðastliðinn vetur kom svo á markaðinn fatalína sem skartaði myndum eftir Ronnie. SMELLA HÉR. Framleiðandinn er verslanakeðjan Liberty. Eigum við ef til vill eftir að sjá GK í Reykjavík stilla fram fatalínum með málverkum eftir Jóhann G í Óðmönnum og söngkonuna Þuríði Sigurðar, en þau standa bæði við málaratrönurnar alla daga og mála þessar líka flottu myndir.
Til að skoða vænt sýnishorn af myndlist Ronnie Wood skaltu SMELLA HÉR
Fleiri sýnishorn af myndlist Ronnie Wood SMELLA HÉR
Ronnie Wood endurvekur the Faces. SMELLA HÉR
The Rolling Stones aftur á hljómleikum SMELLA HÉR
Hér fyrir neðan er stutt vídeó frá opnun sýningar á 45 verkum Ronnie.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.