Einhver færasti ljósmyndahönnuður landsins, Ólöf Erla Einarsdóttir, sýnir margar af sínum áhugaverðustu myndum í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi fram til 11. október. Á sýningu hennar eru fjórtán myndir, allar prentaðar á striga.
Ólöf Erla Einarsdóttir er menntaður grafískur hönnuður úr Listaháskólanum árið 2002 en er amatör ljósmyndari, eins og hún kemst að orði. Hún starfar í dag sem grafískur hönn- uður hjá Ríkisútvarpinu.
Að námi loknu vann Ólöf við auglýsingagerð. Hún hugði á framhaldsnám í hönnun fyrir kvikmyndir og sjónvarp þegar henni bauðst vinna hjá RÚV.
Lokaverkefni Ólafar í Listaháskólanum voru tarot spil þar sem m.a. var unnið með ljósmyndir í myndvinnsluforritinu Photoshop. Verkefnið kveikti áhuga hennar á að skapa sögur á þennan hátt og hélt hún því áfram listrænni endursköpun ljósmynda.
„Þetta eru ljósmyndir sem ég tek. Bara hráar. Svo klippi ég þær út og vinn bak- grunninn og öll element þar til ég er sátt við söguna sem ég er að segja þannig að þetta verði ævintýralegt," sagði Ólöf Erla í viðtali í tilefni af opnun sýningarinnar. Með því að setja saman ótal ljósmyndir og vinna þær áfram með hjálp tölvutækninnar hefur Ólöfu Erlu tekist að skapa einstakan ævintýraheim. Yfir myndunum hvílir heillandi dulúð. Þær eru sögur án orða. Áhorfandinn getur gefið ímyndunarafli sínu lausan tauminn og skapað sínar eigin sögur við myndir hennar.
Í framtíðinni hefur Ólöf Erla áhuga á að auka við listsköpun sína og skrifa sögur og jafnvel myndskreyta þær.
Samúel mælir eindregið með að ljósmyndaáhugafólk sjái þessa sýningu.
http://oloferla.deviantart.com/
http://oloferla.daportfolio.com/about/
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.