Myndirnar tók Jónas Valtýsson að beiðni Snorra Guðmundssonar fyrir þungarokks- sveit hans A Red Sun Rising árið 2006. Þar eð Snorri er mikill unnandi hryllingskvik- mynda og tónlist hans ofsafengin sá Jónas fljótt hvað stefnu skildi taka í ljósmynda- tökunni. Hann lagaði heilmikið blóð úr sýrópi og sprautaði yfir Snorra. „Ég held að hann hafi verið að fíla þetta í botn. Jafnvel meira en ég. Þetta var hin besta skemmtun og við vorum báðir sáttir við útkomuna,” segir Jónas.
Samúel hefur svo sannarlega smekk fyrir því sem Jónas Valtýsson er að gera. Ljósmyndir hans eru ruddalega góðar í bókstaflegri merkingu. Hér er ein úr myndasyrpu sem hann tók fyrir annan snilling á listasviðinu, Mugison. Tónlistarmaðurinn sagðist vilja fá eitthvað brútalt og blóðugt.
Mugison fékk vissulega slíkar myndir!
„Ég var innblásinn af post mortem myndum þegar tók þessar ljósmyndir,” segir Jónas Valtýsson um þá myndasyrpu sem Samúel dregur fram í dag, en hún var unnin fyrir tæpum tveimur árum.
„Hugmyndin er að náunginn á myndunum sé uppvak ningur og ráfi um án þess að vera klár á því hvort hann sé á meðal lifenda eða ekki. Þetta áttu að verða tísku- myndir fyrir skóla, en snérist upp í að verða mikið frekar einskonar leiklistarmyndir.”
Jónas upplýsir að fyrirsætan heiti Sveinn Davíðsson. „Hann var með þennan draugalega farða dágóðan tíma. Svona farðaður hámaði hann í sig samloku og drakk gos. Ég hugsa að fólki hafi orðið hrætt þegar það sá hann sitja svona á sig kominn í bílnum hjá mér,” segir Jónas.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.