Paolo Pellegrin (1964) var við nám í arkitektúr í Róm árið 1980 þegar það rann upp fyrir honum, að hann vildi verða atvinnuljósmyndari. Hann snaraði sér í nýstofnaðan ljósmyndaskóla á Ítalíu og að loknu námi hélt hann til Parísar þar sem hann hóf störf fyrir ljósmyndaumboðið VU.
Umboðið sendi hann meðal annars til Uganda til að gera myndaþátt um eyðnismit- aða og til Rúanda til að ljósmynda munaðarleysingja. Þóttu myndir hans framúr- skarandi góðar heimildir á skýru máli. En listrænir hæfileikar hans vöktu jafnframt athygli, hann lék sér til dæmis að því að nýta ljós og skugga til að skerpa áhrif myndefnisins á tilgerðarlausan en áhrifamikinn hátt.
HEIMSHORNA Á MILLI TIL AÐ LJÓSMYNDA STRÍÐSÁTÖK
Í dag býr Paolo Pellegrin í New York og Róm en síðasta áratug hefur hann verið á þönum heimshorna á milli, svo sem frá Gaza til Haiti, Bólivíu til Malí og Súdan til Írans, til að ljósmynda stríðsátök og óeirðir fyrir Newsweek og fleiri merka fjölmiðla.
Hann hefur unnið til fjölmargra mikilsvirtra verðlauna. Má þar nefna átta verðlaun í World Press Photo of the Year og nokkur verðlaun í Photographer of the Year. Einnig má nefna W. Eugene Smith Grant in Humanistic Photography (2006) og Overseas Press Club’s Robert Capa gullverðlaunin (2007), auk þess sem hann hefur unnið til verðlauna tvö síðustu ár í The og þrenn verðlaun fyrir tvær ljósmyndabækur sem hann sendi frá sér á síðustu tveimur árum.
LEIKARAR- OG TÍSKUMYNDATÖKUR TIL TILBREYTINGAR
Þó Paolo Pellegrin sé eftirsóttur stríðsfréttaljósmyndari skapast oft stund milli stríða og þá hefur hann meðal annars verið iðinn við tískuljósmyndun og myndatökur af frægum einstaklingum sem kæra sig ekki um að vera myndaðir af hverjum sem er. Þannig var honum falið að mynda marga heimsþekkta leikara fyrir The New York Times á síðasta ári.
Myndirnar eru margar að leikurunum utan ljósmyndastúdíós þar sem þeir eru án farða og tilgerðar. Tímaritið birtir úrval myn da úr slíkum tökum í stórkostlegri mynda- syrpu af átta leikurum, þeim Kate Winslet, Robert Downey jr., Kat Dennings, Mickey Rourke, Penélope Cruz, Fran Langella, Sean Penn og Brad Pitt.
Til að sjá myndasyrpurnar á vef New York Times SMELLA HÉR
Til að fræðast um ljósmyndarann á vef Magnum Photos SMELLA HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.