SILJA MAGG - Í hópi 30 bestu nýliðanna í Bandaríkjunum
Silja Magg var í byrjun mars 2011 valin í hóp 30 bestu ljósmyndara sem fram hafa komið í Bandaríkjunum undanfarið að mati PDN-v efritsins, leiðandi fagtímarits á sviði atvinnuljósmyndunar. Að valinu komu tugir ljósmyndara og ljósmyndaritstjóra blaða, tímarita og vefrita í Bandarikjunum auk forstöðumanna myndasafna. Silja Magg hefur búið í New York síðan hún hóf lauk þar ljósmyndanámi.
SVEN FENNEMA - Heilaður af yfirgefnum byggingum
Vart eru liðin fjögur ár síðan Þjóðverjinn Sven Fennema fór fyrir alvöru að taka ljósmyndir, en hann hefur næmt auga og var fljótur að heil last af stafrænni rækni og ná tökum á henni. Sven er sjálfmenntaður í ljósmyndun. Með þolinmæði og takmarkalausum áhuga hefur honum tekist að skapa sér sinn eigin stíl í myndvinnslunni.
ÓLÖF ERLA EINARSDÓTTIR - Tarotspil voru kveikjan
Ólöf Erla Einarsdóttir er menntaður grafískur hönnuður úr Listaháskólanum árið 2002 en er amatör ljósmyndari, eins og hún kemst að orði.
Lokaverkefni Ólafar í Listaháskólanum voru tarot spil þar sem m.a. var unnið með ljósmyndir í myndvinnsluforritinu Photoshop. Verkefnið kveikti áhuga hennar á að skapa sögur á þennan hátt og hélt hún því áfram listrænni endursköpun ljósmynda.
Að námi loknu vann Ólöf við auglýsingagerð. Hún hugði á framhaldsnám í hönnun fyrir kvikmyndir og sjónvarp þegar henni bauðst vinna sem grafískur hönnuður hjá RÚV.
ERIK JOHANSEN hugmyndaríkur húmoristi
Hann er frændi okkar, heitir Erik Johansen og býr í Gautaborg í Svíþjóð. Verkfæri hans eru tölvan og Canon EOS 5d mark II, Canon EF 24-70/2.8L USM, Canon EF 50/1.8, Canon EF 17-40/4L USM, Elinchrom flass. Erik er þrælklár á photoshop og hugmynda- flugið er þrælgott, en hann segist m.a. sækja innblástur í sitt daglega líf, M.C. Escher, Salvador Dali, Renť Magritte og Rob Gonsalves.
Til að sjá syrpu af snilldarverkum Eriks smellir þú HÉR
ANNIE LEIBOVITZ ljósmyndar þá frægustu
Anna er af 68 kynslóðinni. Hóf frægðaferil sinn sem ljósmyndari á tímaritinu Rolling Stone. Um skeið vann hún svo sem fréttaljósmyndari, en hefur nú um langt skeið verið ljósmyndari á tímaritinu Vanity Fair. Samúel vísar þér á tvær skemmtilegar myndasyrpur hennar af frægu fólki. Þú getur líka séð vídeó þar sem hún svarar tíu spurningum lesenda TIME.
JÓNAS VALTÝSSON - ruddalega góður
Paolo Pellegrin (1964) var við nám í arkitektúr í Róm árið 1980 þegar það rann upp fyrir honum, að hann vildi verða atvinnuljósmyndari. Í dag býr hann í New York og Róm en síðasta áratug hefur hann verið á þönum heimshorna á milli, svo sem frá Gaza til Haiti, Bólivíu til Malí og Súdan til Írans, til að ljósmynda stríðsátök og óeirðir fyrir Newsweek og fleiri merka fjölmiðla. Hér má hins vegar sjá flotta syrpu af myndum sem hann tók 2008 af vinsælum Hollywood-leikurum. MEIRA
PAOLO PELLEGRIN myndir stríð og stórleikara
Paolo Pellegrin (1964) var við nám í arkitektúr í Róm árið 1980 þegar það rann upp fyrir honum, að hann vildi verða atvinnuljósmyndari. Hann snaraði sér í nýstofnaðan ljósmyndaskóla á Ítalíu og að loknu námi hélt hann til Parísar þar sem hann hóf störf fyrir ljósmyndaumboðið VU. Þaðan lá leiðin loks á New York Times þar sem hann hefur aðallega verið sendur á vígvelli en einnig til að mynda heimsfræga Hollywood-leikara. Til að lesa um Pellegrin í Samúel SMELLA HÉR
Til að sjá leikaramyndirnar á vef New York Times SMELLA HÉR
Til að fræðast um ljósmyndarann á vef Magnum Photos SMELLA HÉR
ANDREY RAZOOMOVSKY hraðfrystir augnablikið
Þó að rússneski ljósmyndarinn Andrey Razoomovsky hafi orðið að láta sér nægja bronsverðlaunin á austurísku ljósmyndasýningunn i Trier enberg Super Circuit nýverið dró hann að sér langmesta athygli sýningargesta. Sömuleiðis hafa fagtímarit og vefsíður víða um heim hlaðið hann lofi. Einstakt lag hans á að ljósmynda vökva vekur furðu og aðdáun. Það hefur fáum tekist að frysta augnablikið með sama hætti. Hann virðist líka ráða yfir mikilli kunnáttu í myndvinnslu eins og myndasyrpurnar, sem hér er vísað á, sýna:
‘Milk’ Photosession by Andrey Razoomovsky (NSFW) | Demonicious.com
A R T D E S I R E: The Great Razoomovsky
HERR BUCHTA hlýfir ekki áhorfandanum ...
Tomas Buchta er fertugur Þjóðverji sem sinnir ljósmyndun og úrvals myndvinnslu jafnt sem spilamennsku í rokkhljómsveit. Herr Buchta hefur endaskipti á raunveru- leikanum og kemur ekki hugsunum sínum kurteislega á framfæri heldur ryðst fram á sjónarsviðið með látum og hlýfir ekki viðkvæmum. Smelltu á fyrirsögnina til að kynnast myndlist hans og tónlist. MEIRA
MARINÓ THORLACIUS er súper ljósmyndari
Marinó Thorlacius var fyrsti SÚPERLJÓSMYNDARINN sem kynntur var á vefsíðum Samúels. Marinó telst hiklaust til athyglisverðustu ljós myndara landsins í dag en hann er menntaður í auglýsingatækni. Kynningarfyrirtækið DEUS sem hann rak um skeið ásamt félaga sínum, Atla Snæ, gaf út bók með ljósmyndum hans undir nafninu LAND fyrir um tveimur árum og hlaut bókin verðskuldað lof. Bók sem sannir ljósmyndaunnendur verða að eiga. MEIRA
GASSI er einn vinsælasti ljósmyndari stjarnanna
Útvarpsmaðurinn Gassi hefur hefur haft nóg að gera síðan hann opnaði ljósmyndastú díó. Hann á heiðurin af fjölmörgum auglýsingamyndum og plötuumslögum sem við höfum verið að dáðst að. Hann hefur ekki enn náð að halda ljósmyndasýningu eða gefa út ljósmyndabók, en þegar litið er í albúm hans á netinu má sjá nokkuð af því sem hann hefur unnið fyrir auglýsingar og útgáfufyrirtæki. Augljóst að Gassi er að verða einn vinsælasti ljósmyndari stjarnanna í íslensku tónlistarlífi. MEIRA
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.