Tomas Buchta er fertugur Þjóðverji, sem sinnir ljósmyndun og úrvals myndvinnslu jafnt sem spilamennsku í rokkhljóm- sveitinni Vernissage. Hann er gítarleikari og söngvari og semur megnið af efni hljómsveitarinnar.
Tomas Buchta er magnaður náungi eins og lesendur Samúels geta sannfærst um með því að skoða gallerí listamannsins, sem vísað er til hér neðst á síðunni, og eins með því að hlýða á tónlist hans s em hægt er að nálgast á sömu síðu.
Sem myndlistarmaður kynnir hann sig sem Herr Buchta. Hann er gríðarlega afkastamikill í myndlistinni. Undirbýr hverja myndatöku af kostgæfni; leitar uppi nákvæmlega réttu fyrirsæturnar og sviðsmunina, fer ótroðnar slóðir í förðun og hárgreiðslu sem og vali á myndatökustöðum.
En þegar hann hefur lokið myndatöku er vinnunni langt frá því lokið. Þá tekur við gríðarleg nákvæmnisvinna við myndvinnslu sem hann leysir af hendi af stakri snilld.
sp; Sýningar Herr Buchta eru vel sóttar og myndir hans seljast vel – þó að fjöldi manna hafi lýst andstygggð á verkum hans. Hann er umdeildur, sem segir okkur aðeins það, að hann hreyfir við fólki. Myndlist hans er veitt athygli.
Herr Buchta hefur endaskipti á raunveruleikanum og kemur ekki hugsunum sínum kurteislega á framfæri heldur ryðst fram á sjónarsviðið með látum og hlýfir svo sannarlega ekki viðkvæmum.
En látum verkin tala!
Þú kemst inná heimasíðu Herr Buchta með því að SMELLA HÉR
Eftir að hafa smellt þar á ENTER opnast önnur síða sem veitir þér meðal annars aðgang að afar fjölskrúðugu GALLERÍI hans með miklum fjölda mynda. Láttu heldur ekki undir höfuð leggjast að smella á MUSIC og kynnast því sem hann er að gera á tónlistarsviðinu.
Hér eru tvær ólíkar syrpur Herr Buchta:
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.