Íbúum Englaborgarinnar í Kaliforníu gafst um helgina tækifæri til að bragða á íslenskri kreppusúpu. Friðgeir Helgason opnaði þá ljósmyndasýningu undir nafninu Lognið á undan storminum. Í viðtali við Samúel kvað hann opnunina hafa gengið mjög vel og myndirnar rokselst. Sýninguna heldur hann í Gallerýi Stellu í Downtown Los Angeles. Það muna eflaust margir eftir Stellu, sem er móður Friðgeirs, en hún er fatahönnuður og rak Tískuhús Stellu í Hafnarstræti á áttunda áratugnum. Þau mæðgin fluttu til New Orleans fyrir nokkrum árum en fluttust þaðan til Los Angeles eftir að fellibylurinn hafði lagt þar allt í rúst.
Friðgeir stóð sjálfur yfir súpupottinum við opnunina á laugardaginn og jós íslensku kreppusúpunni í skálar fyrir sýningargesti eða Icelandic Depression soup eins og hún mundi kallast þarna fyrir vestan. Fyrir tiltölulega stuttu var hann sjálfur í þeirri aðstöðu að eiga allt undir velviljuðum aðilum sem gáfu umrenningum súpu.
BJÓ Í PAPPAKASSA FYRIR TILTÖLULEGA STUTTU
Í viðtali við Samúel segist hann hafa búið við Skid Row í Englaborginni. “Ég gjó í pappakassa og höslaði fyrir brensa,” segir hann. “Ég bý enn við Skid Row, en núna í ágætis íbúð. Ég er þó enn með annan fótinn á The Midnight Mission þar sem þeir halda sig sem minna mega sín í þjóðfélaginu hér í landi allsnægtanna.”“Það er svo sannarlega ekki allt með felldu hér í sæluríki Arnoldar frænda,” heldur Friðgeir áfram máli sínu. “Þúsundir heimilislausra vafra um götur Skid Row í leit að næstu máltíð eða næsta fixi. Þetta er ólýsanlega dapurlegt. Kannski ég sendi Samúel nokkrar myndir héðan. Er ekki sagt að ein mynd segi meira en þúsund orð?”
ER NÚNA Í LJÓSMYNDANÁMI Í LOS ANGELES
Sjálfur reif Friðgeir sig upp úr eymdinni og fór að stúdera kvikmyndagerð og síðan ljósmyndun. Myndirnar á sýningu Friðgeirs eru allar svart-hvítar og teknar á hringferð hans um Ísland síðasta sumar. “Það var dásamlegt sumar,” segir Friðgeir og segist hafa notið ferðarinnar í botn. Þeir sem eiga leið um englaborgina í desember ættu að líta inn hjá Stellu og Friðgeiri, en gallerý Stellu er að finna á 430 S.Main st. L.A Ca 90013 í Downtown Los Angeles.
Þeir sem ekki hafa tök á að líta þar við geta skoðað drjúgt myndasafn Friðgeirs með því að SMELLA HÉR
Við eigum svo eftir að segja nánar frá Friðgeiri og Stellu hér á vefsíðunni.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.