Nú eru liðin rétt fjörutíu ár síðan söngleikurinn HÁRIÐ var frumsýndur á Broadway í endanlegri mynd og sló þá í gegn. Árið áður höfðu tveir leikarar frá Pittsburgh fengið Hárið sett upp sem leikrit á Off-Broadway, en fengu þá háðulega útreið. Leikritið, sem þeir höfðu verið í þrjú ár að skrifa, öðlaðist ekki það líf sem færði því metað- sókn um allan heim áratugina á eftir og enn þann í dag, fyrr en kanadískur tónlistarmaður hafði endurunnið það sem söngleik. Þá fór það á svið á Broadway og sigraði heiminn í kjölfarið. Áratug síðar gerði Milos Forman kvik- mynd eftir handritinu og jók þannig enn á vinsældirnar.
ÞRJÁR UMFANGSMIKLAR UPPFÆRSLUR Á HÁRINU HÉR Á LANDI
Hér hefur söngleikurinn HÁRIÐ verið sýndur þrisvar sinnum. Núna síðast fyrir fjórum árum í Austurbæ og tíu árum fyrr í Gamla bíói. En fyrst var söngleikurinn settur upp í Glaumbæ af Leikfélagi Kópa- vogs undir Leikstjórn Brynju heitinnar Benediktsdóttur. Það var árið 1971 þegar hippatímabilið hafði enn ekki runnið sitt skeið, enda tóku áhorfendur vel við sér, margir hverjir nýlega búnir að taka þátt í stúdentamótmælum.Rjóminn af íslensku leikaraliði af yngri kantinum valdist í hlutverkin og hljóm- sveitin var heldur ekki af verri endanum, Náttúra, sem var þá með vinsælustu hljómsveitum landsins.
NEKTIN FORDÆMIMG EÐA FARARHEILL Í PÓLITÍK?
Hingað til lands höfðu borist fréttir af nektarsenunum í Hárinu. Sá er þetta ritar var fréttamaður á Vísi á þessum tíma og var sendur á frumsýninguna. Á rit- stjórnarfundinum morgunin eftir var fyrsta spurning allra vinnufélaganna hvort íslenski leikhópurinn hefði treyst sér úr tuskunum. Fyrirsögnin, sem fréttastjórinn valdi fréttinni á útsíðu, var “Þau þorðu það!” Hann vissi sem var að þetta var spurning dagsins meðal lesenda.
Hér hafði verið brotið blað í Íslandssögunni og leist mönnum misjafnlega á það. Þannig kallaði þáverandi forsætisráðherra einn leikaranna á sinn fund, en sá var afar áberandi í Heimdalli um þær mundir. Spurði hann unga manninn ósköp kurteislega hvort honum þætti strípl á almannafæri viðeigandi ef hann ætlaði sér frama í pólitík. Strípalingurinn hélt áfram leik sínum í Hárinu. Hann náði nokkrum frama á tónlistarsviðinu en fór aldrei í pólitískt framboð.
ÖÐRU MÁLI GEGNDI UM SÆTU STELPUNA Á VINSTRI VÆNGNUM
Öðru máli gegndi um unga, snotra stúlku úr Menntaskólanum við Tjörnina, sem sinnti hinum ýmsu störfum fyrir sýning- una og einnig baksviðs á sýningunum sjálfum. Hún lét sig heldur ekki muna um að skella sér undir fallhlífina frægu, hátta sig úr hverri spjör og taka keik þátt í nektarsenunni.
Þessari stúlku hefur sennilega ekki verið talin trú um að hún gæti af þeim sökum látið pólitíska framadrauma lönd og leið. Samúel nefnir engin nöfn, en telur óhætt að láta þess getið, að í dag situr hún sem formaður síns flokks og í ráð- herrastóli að auki.
NEKTARATRIÐIÐ ÞVÆLIST ENN FYRIR LEIKHÚSFÓLKI
Þeir sem tóku þátt í sýnngunni í Glaumbæ kváðu það ekki hafa verið neitt mál að ná sátt um nektarsenuna. Það hefur hins vegar ekki alls staðar verið jafn auðvelt. Á þessu ári er verið að frumsýna Hárið víða um heim, m.a. á nokkrum stöðum í Badaríkjunum. Núna síðast í New York en þar stóð nektaratriðið lengi vel í leik- húsfólkinu þó að það hafi að lokum afráðið að láta vaða.Samúel hefur ekki efast um það eitt augnablik að nokkurt uppistand hafi líka orðið í rússnesku leikhúslífi þegar ákveðið var að taka Hárið til sýninga í þarlendum leikhúsum á síðasta ári.
HÁRIÐ SÝNT Í FJÖLMÖRGUM SKÓLUM LANDSINS
Hér yrði alltof langt mál að telja upp öll þau lönd sem hafa tekið Hárið til sýninga á þeim 40 árum sem liðin eru frá því söngleikurinn var frumsýndur á Broadway. Bæði leikhús og skólar. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan Hárið var síðast frumsýnt í íslenskum skóla, það var í Grunnskólanum á Ísafirði.
Aðrir skólar sem Samúel man eftir að hafi sýnt söngleikinn á síðustu árum eru Menntaskólarnir á Akureyri og Egils- stöðum, Hvassaleitisskóli, Hagaskóli og grunnskólarnir í Grindavík og Borgarnesi. Auk þess hafa svo hin ýmsu áhuga- mannaleikhús víða um land spreytt sig á þessum margfræga söngleik. Síðast í Vestmannaeyjum.
Ekki fer sögum af nektarseum í þessum uppfærslum. Þeim hefur trúlega ósköp einfaldlega verið sleppt.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.